Kókaínframleiðsla í mikilli sókn í Kólumbíu

Þrátt fyrir að það sé vitað með frekar mikilli nákvæmni, hvaðan kókaínið í heiminum kemur til landa heimsins, þá gengur lítið að hefta fram­leiðsluna. Dauðsföllum vegna ofneyslu hefur farið fjölgandi.

Kókaín er unnið úr kókalaufum og er stærsta framleiðslu­land heimsins Kólumbía. Samkvæmt umfjöllun The Economist hefur eftir­spurn eftir kókaíni farið vaxandi og fram­leiðsla í landinu hefur aldrei veriði meiri en nú.

Ýmislegt hefur verið reynt til að hefta kókaín­framleiðslu og reyna að fá bændur - sem hafa ræktað upp kókalauf og þannig unnið að fram­leiðslu kókaíns, oft í samvinnu við skipulögð glæpa­samtök - til að sinna annarri í ræktun.

Þannig gripu stjórn­völd í Kólumbíu til þess ráðs, í samvinnu við stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn fíkni­efnum og skipulagðri glæpa­starfsemi, UNODC, að borga bændum fyrir að hætta kókalaufsframleiðslu og snúa sér frekar að öðru. Þannig fengur þeir 312 Bandaríkja­dali, jafnvirði rúmlega 42 þúsund króna, á mánuði fyrir að hefja ræktun á einhverju öðru, löglegu.

Þetta skilaði árangri í sumum tilvikum, en öðrum ekki. Svo virðist sem bændur sjái sér oftar hag í því að halda áfram kókalaufsframleiðslu - vegna hagnaðar­vonarinnar - og yfirvöld hafa ekki heft hana að neinu marki, þrátt fyrir að vitað sé með töluvert mikilli nákvæmni, hvar hún á sér stað. Vonir standa þó til þess að til langs tíma þá muni bændur snúa sér meira að annarri ræktun.

Samkvæmt umfjöllun The Economist hefur eftir­spurn eftir kókaíni í heiminum verið að aukast, að meðaltali. Í sumum löndum hefur hún aukist mikið.

Dauðsföllum vegna ofneyslu kókaíns hefur einnig farið fjölgandi, en erfiðlega hefur gengið að hefta útbreiðslu fíkni­efnisins.

Sá markaður sem hefur verið að eflast einna mest er í Asíu, en samhliða miklum efnahags­legum uppgangi hefur eftir­spurn eftir kókaíni aukist jafnt og þétt, og bæði dauðsföllum vegna ofneyslu og dómsmálum sem tengjast neyslu og dreifingu á kókaíni, hefur farið fjölgandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár