Einn þingmaður Framsóknarflokks og tveir þingmenn Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, að beita sér fyrir því að einstaklingar sem setið hafa í gæsluvarðhaldi eða afplánað refsivist og stundað vinnu, nám eða starfsþjálfun til samræmis við lög um fullnustu refsinga ávinni sér rétt til atvinnuleysisbóta meðan á varðhaldi eða vist stendur.
Samkvæmt tillögunni, sem Silja Dögg Gunnarsdóttir er fyrsti flutningsmaður að og Helgi Hrafn Gunnarsson og Björn Leví Gunnarsson er einnig skrifaðir fyrir, á ráðherrann að leggja fyrir Alþingi frumvarp sem miðar að þeim markmiðum sem sett eru fram í tillögunni á haustþingi 2020.
Í greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögunni segir að flutningsmennirnir þrír telji að núverandi kerfi auki líkur á því að einstaklingar sem lokið hafa afplánun brjóti af sér á ný og vinni þannig gegn markmiðum refsivörslukerfisins um betrun.
Einstaklingar sem lokið hafi afplánun búi oft við mikið fjárhagslegt óöryggi auk þess sem þeir njóta ekki sömu félagslegu réttinda og einstaklingar sem hafa verið á vinnumarkaði. „Leggja þarf aukna áherslu á að skapa verði jákvæða hvata til náms og starfsþjálfunar meðan á afplánun stendur. Liður í því er að tryggja að einstaklingar sem stunda nám, vinnu eða starfsþjálfun meðan á afplánun stendur ávinni sér rétt til atvinnuleysisbóta. Einnig leggja flutningsmenn áherslu á að samhliða þeim breytingum sem lagðar eru til í þurfi að móta heildstæða betrunarstefnu. Í því felst m.a. að auka fjölbreytni starfa í fangelsum og bæta aðgengi að menntun.“
Finnland er sem stendur eina ríkið á Norðurlöndunum sem veitir einstaklingum sem nýlega hafa lokið afplánun afkomubætur úr atvinnuleysistryggingasjóðum fagfélaga ef umsækjandi er atvinnulaus og getur sýnt fram á að vera í virkri atvinnuleit.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir