Úttekt á mennta- og menningarmálaráðuneytinu í vinnslu

Ráðu­neytið bregst við ábend­ingum umboðs­manns Alþingis en það hefur falið Capacent að gera úttekt á vinnu­lagi, skipu­lagi og við­horfum stofn­ana sem heyra undir ráðu­neytið.

Capacent vinnur nú að úttekt á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu en stefnt er að því að ljúka henni á næstu vikum. Loka­nið­ur­stöður hafa ekki borist ráðu­neyt­inu en þær verða gerðar aðgengi­legar þegar þar að kemur. Þetta kemur fram í svörum ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu fól það Capacent í októ­ber síð­ast­liðnum að gera úttekt á ráðu­neyt­inu; vinnu­lagi, skipu­lagi, fyr­ir­tækja­menn­ingu, við­horfum stofn­ana sem heyra undir ráðu­neytið og svo fram­vegis. Ekki sé þó um eig­in­lega stjórn­sýslu­út­tekt að ræða.

„Vinnan er enn í gangi, en stefnt er að því að ljúka henni á næstu vikum. Hún hefur meðal ann­ars falist í rýni á ýmsum vinnu­gögnum, við­horfs­mæl­ingum, starfs­lýs­ingum og svo fram­vegis,“ segir í svar­inu.

Þá kemur enn fremur fram að meðal ann­ars hafi ráðu­neytið verið að bregð­ast við ábend­ingum frá umboðs­manni Alþingis frá síð­asta hausti. Sömu­leiðis hafi þetta verið gott tæki­færi til að kanna hvernig skipu­lags­breyt­ingar frá árinu 2016 hafi reynst.

Ráðuneytið yrði að bæta starfshætti og verklag

Í frétt RÚV frá 1. októ­ber síð­ast­liðnum kom fram að umboðs­maður Alþingis hefði talið að við­brögð mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins í þremur málum hefðu ekki verið full­nægj­andi með hlið­sjón af yfir­stjórn­unar og eft­ir­lits­heim­ildum ráðu­neyt­is­ins. Ráðu­neytið yrði að gera við­eig­andi ráð­staf­anir til að tryggja að starfs­hættir þess, verk­lag og með­ferð mála yrði fram­vegis betur úr garði gerð.

Fram kom í frétt umboðs­manns á vef­síðu hans að um mitt síð­asta ári hefði hann bent ráðu­neyt­inu á að ítrekað hefðu orðið tafir á að það svar­aði fyr­ir­spurnum emb­ætt­is­ins. Þá hefði umboðs­manni jafn­framt borist kvart­anir og ábend­ingar um tafir á með­ferð mála og ófull­nægj­andi svör ráðu­neyt­is­ins.

Umboðs­maður tók það fram að unnið hefði verið að úrbótum á starfs­háttum ráðu­neyt­is­ins. Verið væri að gera skipu­lags­breyt­ingar og ráða nýja starfs­menn. Hann ætl­aði því að fara nánar yfir efni álita sinna með ráð­herra og starfs­mönnum hans þegar þessar breyt­ingar væru að baki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár