Vísaði frá kvörtun vegna ummæla Þórhildar Sunnu um merki á lögreglubúningum

Viðbrögð þing­manns Pírata í pontu Alþingis við umfjöllun í fjöl­miðlum um þýð­ingu merkja sem lög­reglu­menn hefðu borið við störf sín fela ekki í sér brot á siða­reglum þing­manna.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

For­sætis­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu á fundi sínum í síð­ustu viku, 24. nóv­em­ber, að erindi sem henni barst um meint brot Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn í til­efni af ummælum hennar á þing­fundi 21. októ­ber 2020 væri ekki tækt til fyr­ir­töku. Því var erind­inu vísað frá. Greint var frá þessu á vef Alþingis í dag.

Erindið snýst um við­brögð Þór­hildar Sunnu við umfjöllun í fjöl­miðlum um þýð­ingu merkja sem lög­reglu­menn hefðu borið við störf sín og ósk hennar um fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd um málið.

Ummæli þing­manns­ins féllu í pontu Alþingis og því hefði það átt að vera for­seta Alþingis að gera athuga­semdir við þau ef til­efni væri til, sem hann gerði ekki. Í nið­ur­stöðu nefn­ar­inn segir að telji almennur borg­ari að for­seti Alþingis hafi ekki gætt þess að þing­menn gæti góðrar reglu í máli sem hann varðar verði að hafa í huga að athafnir eða athafna­leysi for­seta við stjórn þing­funda sæta ekki end­ur­skoðun. „Ágrein­ingur um slíkt verður því ekki bor­inn undir for­sætis­nefnd eða eftir atvikum leitað álits siða­nefndar á honum. Í ljósi þess er það nið­ur­staða for­sætis­nefndar að skil­yrði brestur til þess að nefndin taki erindi þitt til athug­unar á grund­velli siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Er þá einnig horft til þeirrar ríku verndar sem tján­ing­ar­frelsi þing­manna nýtur sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.“

Búið er að fjar­lægja nafn þess sem kvart­aði yfir ummælum þing­manns­ins úr nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar, en heim­ildir Kjarnans herma að kvart­and­inn hafi verið lög­reglu­konan sem bar ofan­greind merki.

Taldi skorta á fræðslu um rasísk og ofbeldisfull merki

Viðbrögð Þór­hildar Sunnu, sem vísað var til for­sætis­nefndar til umfjöll­unar, sner­ust um fjöl­miðlaum­fjöllum um ljós­mynd Morg­un­blaðs­ins af lög­reglu­konu sem bar merki hvítra þjóð­ern­is­sinna og tákn­mynd teikni­mynda­and­hetj­unnar „The Punisher“ eða Refs­arans við skyldu­störf sín. „Punisher-­merkið er ekki sak­leys­is­leg til­vísun í teikni­mynda­per­sónu úr Marvel-heim­inum heldur tákn­mynd lög­regl­unnar vestan hafs sem refsandi afls þeirra sem taka lögin og refs­ingar í eigin hendur og sneiða fram hjá rétt­ar­kerf­in­u,“ sagði þing­mað­ur­inn í pontu á Alþingi þann 21. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Þá benti Þór­hildur Sunna á að skila­boðin með merk­inu væru þau að lög­reglan hefði það hlut­verk að refsa borg­ur­unum fyrir ætluð lög­brot þeirra, rétt eins og Refs­ar­inn gerði – en slík við­horf gætu ekki talist æski­leg í sam­fé­lagi sem segð­ist að minnsta kosti styðja betr­un­ar­stefnu og rétt­ar­ríki.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lýsti því yfir á Twitter þennan sama dag að hún hefði ítrekað við allt sitt starfs­fólk að lög­reglu­menn ættu ekki að bera nein merki sem ekki eru við­ur­kennd á lög­reglu­bún­ingi og því verði fylgt eft­ir.

Þór­hildur Sunna sagði það vera jákvæðar fréttir en betur mætti ef duga skyldi. Sér­stak­lega í ljósi ummæla lög­reglu­kon­unnar sem um ræddi sem sagði í sam­tali við Vísi þennan dag að merki sem þessi væru notuð af mörgum lög­reglu­mönnum og að hún teldi ekki að þau þýddu neitt nei­kvætt. Hún hefði sjálf borið merkin í árarað­ir. „Um­mæli lög­reglu­kon­unnar benda til þess að annað hvort skorti mik­il­væga fræðslu innan lög­regl­unnar um rasísk og ofbeld­is­full merki eins og Vín­lands­fán­ann og pun­is­her- eða refs­ara­merkið – nú eða það sem verra væri: Að ras­ismi og ofbeld­is­full menn­ing fái að grass­era innan lög­regl­unn­ar. En hvoru tveggja er óásætt­an­leg staða.“

Þór­hildur Sunna óskaði í kjöl­farið eftir því að nefnd­ar­menn alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar myndu ræða við full­trúa lög­regl­unnar um ras­isma innan lög­regl­unnar og aðferðir til að sporna við hon­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár