ESA boðar samningsbrotamál út af íslensku leigubílalöggjöfinni

Þrátt fyrir að frum­varp um breyt­ingar á lögum liggi fyrir Alþingi sendi Eft­ir­lits­stofnun EFTA íslenskum stjórn­völdum bréf í dag og boðar að mögu­lega verði farið í mál út af núgild­andi lögum, sem brjóti gegn EES-samn­ingnum.

ESA hefur verið með augun á íslensku leigubílalöggjöfinni allt frá árinu 2017.
ESA hefur verið með augun á íslensku leigu­bíla­lög­gjöf­inni allt frá árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sendi í dag bréf á íslensk stjórn­völd, þar sem fram kemur að lög­gjöfin um leigu­bif­reiðar á Íslandi, sem fela í sér ákveð­inn hámarks­fjölda útgef­inna starfs­leyfa, fari gegn ákvæði EES-samn­ings­ins um að fólk hafi rétt til að hefja og stunda atvinnu­starf­semi.

Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu á vef ESA. Íslenskum stjórn­völdum eru gefnir tveir mán­uðir til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi og í kjöl­farið mun stofn­unin ákveða hvort hún fari lengra með málið.

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra lagði fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um leigu­bíla í októ­ber. Það er enn til með­ferðar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins.

Álit ESA er það að leyfis­kerfið á Íslandi eins og það er í dag hafi hamlandi áhrif á nýliðun á leigu­bíla­mark­aði. Skil­yrðin sem þurfi að upp­fylla til að fá leyfi séu ekki hlut­læg, heldur séu þeim sem hafi verið til staðar á mark­aðnum í hag.

Þetta hafa íslensk stjórn­völd í reynd við­ur­kennt að stand­ist að öllum lík­indum ekki 31. gr. EES-samn­ings­ins og frum­varpið sem lagt var fram í októ­ber var til þess gert að mæta fyrri aðfinnslum. Hefur Sigurður Ingi sam­göngu­ráð­herra meðal ann­ars sagt það ætlað til þess að tryggja að Ísland stand­ist þjóð­rétt­ar­legar skuld­bind­ingar sínar.

Núgild­andi lög um leigu­bif­reiðar tóku gildi árið 2001, en unnið hefur verið að end­ur­skoðun þeirra á und­an­förnum árum.

Athuga­semdir ESA voru til­efni þess að ráð­ist var í vinnu við að end­ur­skoða lögin, en í jan­úar 2017 til­kynnti stofn­unin íslenskum stjórn­völdum að hún hefði hafið frum­kvæð­is­at­hugun á leigu­bif­reiða­mark­aðnum á Íslandi og mögu­legum hindr­unum á aðgengi að hon­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár