Vilja greiða fyrir innkomu Uber og Lyft á íslenskan markað

Starfs­hópur um leigu­bif­reiðar leggur til að far­veitum á borð við Uber verði auð­veldað inn­komu á íslenskan markað, leigu­bíl­stjórar þurfi hvorki að hafa vinnu­skyldu af bif­reiðum sínum né að vera skyld­aðir til að hafa afgreiðslu á leigu­bif­reiða­stöð.

Í nýjum drögum að frum­varpi laga um leigu­bif­reiðar er lagt til að hámarks­fjöldi atvinnu­leyfa sé afnum­inn, far­veitum á borð við Uber og Lyft verði auð­veldað inn­komu á íslenskan markað og að leigu­bif­reiða­stjórar þurfi ekki að hafa vinnu­skyldu af bif­reiðum sínum. Jafn­framt verði leigu­bif­reiða­stjórar ekki skyld­aðir til að hafa afgreiðslu á leigu­bif­reiða­stöð. Til­lög­urnar eru afar umdeildar og ekki allir á einu máli um ágæti þeirra.

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið hefur kynnt í annað sinn til umsagnar drög að frum­varpi til nýrra laga um leigu­bif­reiðar og bár­ust alls 9 umsagnir. Í drög­unum stendur að mark­miðið með frum­varp­inu sé að auka frelsi á leigu­bif­reiða­mark­aðnum og tryggja örugga og góða þjón­ustu.

Við­skipta­ráð Íslands, Samtök Atvinnu­lífs­ins og Neyt­enda­stofa fagna breyt­ing­unum. SA og VÍ hvetja jafn­framt til þess að breyt­ing­arnar taki gildi sem fyrst. Hins vegar eru Hreyfill, Banda­lag íslenskra leigu­bif­reiða­stjóra og Bif­reiða­stjóra­fé­lagsið Frami afar gagn­rýnin á til­lög­urnar og vilja lengri tíma til aðlög­unar.

[adspot]Frum­varpið er samið í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu og byggir að meg­in­stefnu til á til­lögum starfs­hóps um heild­ar­end­ur­skoðun reglu­verks um leigu­bif­reiðakstur.

Mögulegt brot á EES samningnum

Tilefni frum­varps­ins er að í jan­úar 2017 til­kynnti Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, íslenskum stjórn­völdum að stofn­unin hefði hafið frum­kvæð­is­at­hugun á leigu­bif­reiða­mark­aðnum á Íslandi og mögu­legum hindr­unum á aðgengi að honum. ESA hefur nú gefið út rök­stutt álit varð­andi lög um leigu­bif­reiðar í Noregi en lög­gjöf þar í landi svipar um margt til þeirrar íslensku. Slíkt álit er und­an­fari dóms­máls fyrir EFTA dóm­stólnum, bregð­ist aðild­ar­ríki ekki við álit­inu.

Þá segir að ráða mátti af sam­skiptum ráðu­neyt­is­ins við ESA að stofn­unin teldi líkur á því að íslensk lög­gjöf um leigu­bif­reiðar fæli í sér aðgangs­hindr­anir sem ekki sam­ræmd­ust skyldum íslenska rík­is­ins að EES-rétti.

Fjölmargar breytingar lagðar til

Meðal breyt­inga sem lagðar eru til í drög­unum eru afnám tak­mörk­un­ar­svæða og fjölda­tak­mark­ana atvinnu­leyfa, afnám skyldu leigu­bif­reiða til að hafa afgreiðslu á leigu­bif­reiða­stöð og breyttar kröfur til þeirra sem hyggj­ast starfa sem leigu­bif­reiða­stjórar.

Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að til verði tvær teg­undir leyfa sem tengj­ast akstri leigu­bif­reiða. Annars vegar atvinnu­leyfi, sem mun veita rétt­indi til að aka leigu­bif­reið í eigu rekstr­ar­leyf­is­hafa í atvinnu­skyni, og hins vegar rekstr­ar­leyfi, sem mun veita rétt­indi til að reka eina leigu­bif­reið sem er í eigu rekstr­ar­leyf­is­hafa eða skráð undir umráðum hans og aka henni í atvinnu­skyni.

Gerðar eru breyt­ingar á skil­yrðum til að mega reka leigu­bif­reiða­stöð og rekstr­ar­leyf­is­höfum heim­ilað að fram­selja hluta af skyldum sínum með samn­ingi til leigu­bif­reiða­stöðvar. Einnig er gert ráð fyrir því að heim­ilt verði að aka án þess að gjald­mælir sé til staðar í bif­reið í þeim til­fellum þegar samið hefur verið fyrir fram um heild­ar­verð fyrir ekna ferð.

Fjöldi atvinnuleyfa ekki aukist frá árinu 1995

Í nýju frum­varps­drög­unum kemur fram að á Íslandi sé fjöldi atvinnu­leyfa fyrir leigu­bif­reiðar tak­mark­aður á stórum svæðum, jafn­framt sem atvinnu­leyfum hafi ekki fjölgað að ráði síðan 1995 þegar stjórn­völd settu þak á fjölda þeirra á til­teknum svæðum. Það ár voru atvinnu­leyfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 570. Fjöldinn var svo lengi 560 en haustið 2017 var atvinnu­leyfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað í 580.

Núgild­andi lög­gjöf geri enn fremur ráð fyrir að úthlutun atvinnu­leyfa sé á grund­velli starfs­reynslu og að við mat á starfs­reynslu reikn­ist starfs­reynsla innan tak­mörk­un­ar­svæða hærri en starfs­reynsla sem aflað er utan tak­mörk­un­ar­svæða. Þá sé ekki tekið til­lit til reynslu af leigu­bif­reiða­akstri utan Íslands. Þannig sé erlendum bíl­stjórum eða umsækj­endum gert mjög erfitt um vik að öðl­ast við­eig­andi akst­urs­reynslu miðað við íslenska bíl­stjóra.

„Telja verður með vísan til fram­an­greinds að umræddar fjölda­tak­mark­anir og skil­yrði fyrir úthlutun þeirra séu til þess fallnar að hindra aðgengi rík­is­borg­ara ann­arra aðild­ar­ríkja að leigu­bif­reiða­mark­aðnum og þar með frá stofn­setn­ingu á Íslandi,“ segir í drög­unum.

Þurfi ekki að vera tengdir leigubifreiðastöð

Starfs­hóp­ur­inn lagði til að fjölda­tak­mark­anir á tak­mörk­un­ar­svæðum yrði afnumið sem og afnám skyld­unnar að bíl­stjórar séu tengdir við leigu­bif­reiða­stöð til að selja þjón­ustu.

„Með fjölda­tak­mörk­unum leigu­bif­reiða­leyfa á tak­mörk­un­ar­svæðum ráða önnur sjón­ar­mið fram­boði en eft­ir­spurn og má leiða að því líkur að bæði magn og verð þjón­ustu sé annað en það væri fengi eft­ir­spurnin að ráða. Breyt­ingar á reglu­verki um leigu­bif­reiðar í frjáls­lynd­isátt eru því lík­legar til að vera til hags­bóta fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir í drög­unum. Því er talið að með afnámi fjölda­tak­mark­ana leigu­bif­reiða­leyfa muni aðgangur að leigu­bif­reiðum aukast.

Þá er bent á að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi leitað eftir úrbótum í reglu­verki er varða leigu­bif­reiðar. Til að mynda sé fákeppni á mark­aðnum og aðgangs­hindr­anir á mark­aði leigu­bif­reiða­stöðva fyrir þjón­ustu við leigu­bif­reiða­stjóra. Slaka þurfi á fjölda­tak­mörk­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og falla frá kröfu um að akstur leigu­bif­reiðar sé aðal­at­vinna þeirra sem hann stunda.

„Almennt taldi eft­ir­litið að ýmis efn­is­á­kvæði í núver­andi laga- og reglu­gerð­aum­hverfi væru til þess fallin að skerða frelsi í atvinnu­rekstri og hindra virka sam­keppni í við­skiptum. Reglu­verkið tak­mark­aði aðgang nýrra keppi­nauta að mark­aðnum og drægi úr hvata fyr­ir­tækj­anna til að keppa á grund­velli gæða þjón­ust­unnar.“

Liðka fyrir Uber og Lyft

Í drög­unum er bent á að neyt­endur hafi kallað eftir því að opnað verði fyrir þjón­ustu far­veita hér á landi á borð við þá sem þekk­ist erlendis frá fyr­ir­tækjum eins og Uber eða Lyft.

„Nið­ur­staða starfs­hóps­ins var sú að í raun væri ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að heim­ila far­veitum að bjóða þjón­ustu sína hér á landi. Hins vegar væri nauð­syn­legt að líta til þess að í ljósi nýlegs dóms Evr­ópu­dóm­stóls­ins bæri að líta á far­veitur sem far­þega­flutn­inga­fyri­tæki,“ segir í drög­unum.

Þá þurfi far­veitur að full­nægja öllum skil­yrðum sem leigu­bif­reiða­stöðvum verður gert að full­nægja og með sama hætti þurfi bíl­stjórar far­veitna að upp­fylla skil­yrði leigu­bif­reiða­lög­gjaf­ar­innar, hafa gilt rekstr­ar­leyfi og eftir atvikum atvinnu­leyfi.

Leigu­bif­reiða­stjórar munu enn fremur ekki þurfa að starfa í til­tek­inn daga­fjölda við leigu­bif­reiða­akstur til að eiga mögu­leika á að fá úthlutað atvinnu­leyfi sem og fjölda­tak­mark­anir á atvinnu­leyfum verða afnumdar.

Hreyfill með 60 prósent markaðshlutdeild

Starfs­hóp­ur­inn leggur einnig til að leigu­bif­reiða­stjórar skuli hafa náð 21 árs aldri og hafi haft öku­rétt­indi í B-flokki í minnst þrjú ár. „Skil­yrðið þykir til þess fallið að lík­legra sé að umsækj­andi hafi náð nauð­syn­legum þroska til að gegna starf­anum og að hann hafi reynslu af akstri bif­reiða.“

Í drög­unum segir að nokkrar leigu­bif­reiða­stöðvar séu reknar á Íslandi, flestar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum. Þær eru Hreyfill, Borg­ar­bíla­stöðin, BSR, Taxi Service, Astöðin og City Taxi Reykja­vík. Þá starfi tvær stöðvar utan þess­ara svæða, það er að segja Bif­reiða­stöð Oddeyrar og Leigu­bílar Suð­ur­lands. Þá segir jafn­framt að Hreyfill sé langstærsta stöðin með yfir 60 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á höf­uð­borg­ar­svæð­inu BSR komi þar á eftir með rétt undir 10 pró­senta hlut­deild.

SA, VÍ og Neytendastofa fagna tillögunum

Samtök atvinnu­lífs­ins fagna drög­unum í umsögn sinni en telja þó að ganga hefði mátt mun lengra í átt að opn­ari leigu­bif­reiða­mark­aði. Þá segir að aukið frjáls­ræði á leigu­bif­reiða­mark­aði á Íslandi sé fagn­að­ar­efni sem sé löngu tíma­bært og muni hafa í för með sér aukið hag­ræði fyrir sam­fé­lagið í heild þar sem aukin sam­keppni og lög­mál fram­boðs og eft­ir­spurnar fái að ráða verð­lagn­ingu og gæðum þjón­ustu.

SA og VÍ gagn­rýna þó að nám­skeið fyrir leigu­bif­reiða­stjóra, sem þeir þurfi að ljúka og stand­ast til að fá atvinnu­leyfi, séu á íslensku og ekki sé túlka­þjón­usta í boði fyrir þá. Sú til­högun geri erlendum umsækj­endum um atvinnu­leyfi erfitt fyrir og sé lík­leg til þess að telj­ast hindrun á stað­festu­rétti 31. gr. EES samn­ings­ins.

[adspot]Neyt­enda­stofa fagnar einnig breyt­ing­unum og að lagaum­hverfi leigu­bif­reiða­mark­að­ar­ins sé fært í frjáls­ræð­isátt. Þó segir í umsögn­inni að tryggja verði lág­marks­vernd fyrir neyt­endur, jafnt inn­lenda sem erlenda gesti sem nýta sér þjón­ust­una. Því telur stofn­unin að mik­il­vægt sé að reglur hér á landi séu í sam­ræmi við reglur í öðrum ríkjum EES.

Við­skipta­ráð Íslands fagnar mark­miði lag­anna að auka frjáls­ræði á leigu­bif­reiða­mark­aði og að sam­keppni sé efld með afnámi stöðv­ar­skyldu leigu­bif­reið­ar­stjóra og tak­mörk­unum á fjölda atvinnu­leyfa til leigu­bif­reið­arakst­urs. Ráðið telur breyt­ing­arnar jafn­framt löngu tíma­bærar.

„Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því í drögum að nýja frum­varp­inu má enn finna atriði sem skapa vafa um hvort far­veitur á borð við Uber og Lyft, eða sam­bæri­legar íslenskar far­veitur spretti þær upp, geti veitt þjón­ustu sína hér á landi. Við­skipta­ráð telur brýnt að taka allan vafa af um slík atriði í sam­ræmi við mark­mið lag­anna; að skapa skil­yrði til að veita fjöl­breytt­ari þjón­ustu með leigu­bif­reiðum.“

Eldri íslenskir karlmenn flestir leigubílstjóra

Ráðið bendir einnig á sam­setn­ingu starf­stétt­ar­innar. „Þeir 567 ein­stak­lingar sem höfðu leyfi til leigu­bíla­akst­urs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júlí í fyrra eru allir íslenskir rík­is­borg­arar. Með­al­aldur þeirra er 57,5 ár og aðeins 34 eru konur, rétt tæp 6% leyf­is­hafa. 100 leyf­is­hafar eru 56–60 ára, 99 eru 61–65 ára og 96 eru 66–70 ára. Aðeins tveir eru þrí­tugir eða yngri á meðan 54 eru yfir sjö­tugu. Tæp 75% leyf­is­hafa eru yfir fimm­tugu. Þegar töl­urnar voru sóttar var með­al­aldur Íslend­inga á bíl­prófs­aldri hins vegar tæp 46 ár og konur voru tæp­lega 49% íbúa lands­ins,“ segir í umsögn Við­skipta­ráðs Íslands.

Ráðið gagn­rýnir að far­veitur þurfi að full­nægja öllum skil­yrðum sem leigu­bif­reiða­stöðvar verði að upp­fylla. Í umsögn­inni segir að leigu­bíl­stjórar á Íslandi þurfi að lúta meira íþyngj­andi skil­yrðum hér­lendis en ann­ars staðar þar sem slíkar far­veitur starfa.

Íslenskukunnátta verði skilyrði

Umsögn Banda­lags íslenskra leigu­bif­reiða­stjóra, BÍLS, og Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Frama segir: „Við leigu­bif­reiða­stjórar leggjum meg­in­á­herslu á eft­ir­far­andi atriði: saka­vott­orð, íslensku­kunn­áttu, hér­lent lög­heim­ili, trygg­ingar, skatt­skil, bif­reiða­skrán­ingu, stöðva­skyldu, vinnu­skyldu, eft­ir­lit og aðhald.“

Hér verður að taka til­lit til far­þeg­anna hvað snertir sam­skipti við bíl­stjór­ann. Hver ferð og far­þegi, eru oftar en ekki háð sam­skiptum sem þarfn­ast krefj­andi skiln­ings og tján­ingu, eins og vill verða þegar erindi eru brýn og mikið er í húfi. Farþegar eru úr öllum hópum sam­fé­lags­ins, þar má telja marga ein­stak­linga sem geta hvorki skilið né tjáð sig á öðru máli en íslensku,“ segir í umsögn­inni.

Þá segir að leigu­bif­reiða­stjórum ætti að vera skylt að hafa vinnu­skyldu af bif­reið­inni. „Ef rekstr­ar­leyf­is­hafa verður gert frjálst að stunda ekki vinnu af leigu­akstri og hafa enga reynslu af slíku, hvernig getur hann metið rekst­ur­inn rétt? Margir hafa öku­rétt­indi án þess að hafa nokkra þekk­ingu á bif­reiðum og nauð­syn­legu við­haldi. Rekstr­ar­leyf­is­hafi þarf að axla ábyrgð á ástandi bif­reiðar og öryggi hennar í þjón­ustu við almenn­ing.“

Þá segir að atvinnu­leyf­is­hafi sem beri ekki ábyrgð á rekstri bif­reið­ar­innar muni láta sig fátt um varða þegar komi að við­haldi leigu­bif­reiðar sem sé ekki í hans eigu.

„Við hjá Banda­lagi íslenskra leigu­bif­reiða­stjóra leggj­umst alfarið gegn afnámi stöðva­skyld­unnar, með hags­muni allra að leið­ar­ljósi, við­skipta­vina, leigu­bif­reiða­stjór­anna sjálfra og yfir­valda. Með til­komu leigu­bif­reið­stöðva er skattaund­anskotum haldið í skefjum og allt eft­ir­lit reyn­ist stjórn­völdum aðgengi­legra en ella.“

Aukinn leyfisfjöldi muni hækka verð

Í umsögn Hreyfils segir: „Mikið er gert úr því að verð á leigu­bíla­þjón­ustu komi til með að lækka neyt­endum í hag en engin rök hafa verið lögð fram sem rök­styðja þær full­yrð­ingar, þvert á móti kemur í ljós við eft­ir­grennslan að í þeim löndum þar sem akstur og rekstur leigu­bif­reiða hefur verið gef­inn frjálst hefur verð hækkað.“

[adspot]Í umsögn Hreyfils stendur einnig að mik­il­vægt sé að tryggja að þeir sem aki sem leigu­bif­reiða­stjórar geti lesið og hafi lág­marks­þekk­ingu á Íslenskri tungu. „Þessar kröfur eru nayðsyn­legar þar sem not­endur leigu­bif­reiða hafa mjög ólíkar þarfir og koma all­staðar að úr þjóð­fé­lag­inu.“

Þá er und­an­þága frá gjald­mæla­skyldu þegar ferð sé seld fyrir fyr­ir­fram ákveðið gjald gagn­rýnt. „Það er mat stjórnar Hreyfils er að þarna sé verið að mis­muna rekstr­ar­að­ilum þar sem ekki eru lagðar jafnar kröfur á aðila varð­andi gjald­mæla. Þetta skekkir grund­völl sam­keppn­innar þegar einum rekstr­ar­að­ila er frjálst að keyra gegn föstu verði en hinn aðil­inn þarf að fjár­festa í dýrum gjald­mælum, bún­aði og ísetn­ingu, sem og að láta lög­gilda mæli með til­heyr­andi kostn­aði.“ Líkt og í umsögn BÍLS og Bif­reiða­stjóra­fé­lags­ins Frama er áréttað að stjórn­endum og bíl­stjórum Hreyfils gef­ist lengri tími til að aðlaga rekst­ur­inn að breyttum lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uber

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár