Vilja Trump úr embætti forseta

Tengsl Bandaríkja­forseta við forseta Úkraínu eru ástæðan fyrir því að Demó­kratar vilja að Donald Trump hætti sem forseti.

Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings, ætlar að leggja formlega fram kröfu um að Donald Trump Bandaríkja­forseti missi embætti sitt sem forseti (impeachment) vegna máls sem snýr að samskiptum hans við Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Er Trump sagður hafa beitt hann þrýstingi til skoða mál sem tengjast Joe Biden, forseta­fram­bjóðanda Demókrata og fyrr­verandi vara­forseta Banda­ríkjanna, og syni.

Pelosi sagði á blaða­mannfundi í Banda­ríkjaþingi, að enginn væri hafinn yfir lögin.

Trump hefur neitað að hafa gert nokkuð óeðlilegt, og segist ekki hafa beitt neinn þrýstingi. Á Twitter síðu sinni segist hann hafa átt vingjarnlegt spjall við forseta Úkrúínu, og ekkert hafi verið athuga­vert við það.

Nú fer í gang formleg rannsókn á því hvort Trump hafi farið út fyrir lögin, með því að beita leiðtoga annars ríkis þrýstingi til að koma höggi á pólitískan andstæðing sinn heima fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár