Vill endurskoða lög um loftferðir

Núgildandi lög um loft­ferðir eru komin til ára sinna og þrátt fyrir fjölda breytinga er talið tímabært að yfirfara þau heild­stætt, samkvæmt samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, áformar að leggja fram nýtt frumvarp til laga um loft­ferðir næsta vetur en um er að ræða frumvarp til nýrra heildar­laga. Endur­skoðunin er nú komin á samráðs­gátt stjórn­valda og er umsagnar­frestur til 19. júní næst­komandi.

Á samráðs­gáttinni segir að núgildandi lög um loft­ferðir séu nokkuð komin til ára sinna og þrátt fyrir fjölda breytinga sé talið tímabært að yfirfara þau heild­stætt.

Markmið heildar­endur­skoðunar og þeirra áforma sem hér eru lögð fram er, samkvæmt stjórn­völdum, einkum að tryggja flug­starfsemi skýra laga­umgjörð í samræmi við flug­stefnu, stuðla að samkeppnis­hæfni flug­starfsemi hér á landi og að umgjörð eftirlits sem henni er búin sé í samræmi við þær reglur sem gilda innan EES. Þá sé jafnframt hugað að því að tryggja ESB-reglugerð, afleiddum EES-gerðum á sviði flug­öryggis og öðrum EES-gerðum fullnægjandi lagastoð og skýrar heimildir séu fyrir hendi til setningar reglu­gerða á grund­velli laganna.

Óska eftir ábendingum og tillögum

Á samráðs­gáttinni segir jafnframt að í þeirri endur­skoðun sem fara mun fram verði byggt á þeim þjóðréttar­legu skuld­bindingum sem Ísland hefur undir­gengist. Beri þar sérstak­lega að nefna EES-gerðir á sviði flug­öryggis, flug­verndar, neytenda­verndar og umhverfis­verndar. Einkum ESB-reglugerð um sameiginlegar reglur um almennings­flug og stofnun Flugöryggis­stofnunar Evrópu­sambandsins og þeim afleiddu gerðum sem á reglu­gerðinni byggja og fyrir­hugað er að taka upp í EES-samninginn og innleiða í landsrétt. Enn fremur aðra alþjóða­samninga sem Ísland hefur fullgilt þar á meðal samninginn um sameiginlega evrópska flug­svæðið frá 2006.

Samfara endur­skoðun sé einnig áformað að leggja til „nauðsynlegar breytingar á lögum“ svo hægt sé að fullgilda þrjá alþjóða­samninga á sviði flug­verndar. Þá sé með frum­varpinu einnig áformað að gera breytingar á fáeinum öðrum lögum til að ná framan­greindum markmiðum og fella brott tvenn lög sem talin eru úrelt.

Sérstak­lega er óskað eftir ábendingum og eða tillögum frá hagsmuna­aðilum sem stutt geta við þá vinnu sem fram undan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár