Helmingur barna af erlendum uppruna stundar engar íþróttir

Tvöfalt lík­legra er að börn sem koma frá heim­ilum þar sem aðeins er töluð íslenska stundi íþróttir fjórum sinnum eða oftar í viku heldur en börn af heim­ilum þar sem ein­ungis eru töluð önnur tungu­mál.

Helmingur barna af erlendum uppruna stundar engar íþróttir
Ná þarf til barna af erlendum upp­runa Mun færri börn af erlendum upp­runa stunda skipu­lag­aðar íþróttir heldur en börn af íslensku bergi brotin. Per­sónu­lega nálgun þarf til að ná börn­unum inn í starfið að mati fólks sem starfar innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar.

Yfir helm­ingur barna af erlendum upp­runa stund­uðu engar skipu­lagðar íþróttir árið 2016. Hlutfall barna, sem koma frá heim­ilum þar sem báðir for­eldrar eru af íslensku bergi brotnir, sem engar skipu­lagðar íþróttir stund­uðu, var hins vegar rétt ríf­lega þriðj­ungur á sama tíma. Við­mæl­endur Stund­ar­innar telja að beita þurfi per­sónu­legri nálgun svo hægt sé að ná til inn­flytj­enda og nauð­syn­legt sé að ná tal­sam­bandi við bæði börnin og for­eldra þeirra.

Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSÍ) ásamt Ung­menna­fé­lagi Íslands fékk rann­sókna­mið­stöð­ina Rann­sóknir og grein­ingu til að setja spurn­ingar um íþrótta­iðkun inn í spurn­inga­lista sem lagðir voru fyrir alla nem­endur í 8. til 10. bekk á land­inu í febr­úar 2016, alls ríf­lega 10.500 ung­linga. Meðal þess sem í ljós kom var að nærri tvö­falt lík­legra er að börn, sem koma frá heim­ilum þar sem ein­göngu er töluð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár