Hjólar í jólabókaflóðinu

Þórdís Gísla­dóttir rit­höf­undur segir jóla­bóka­flóðið vera sér efst í huga þessa dag­ana. Hún hjólar í öllum veðrum og vindum og kallar eftir því að Lauga­veg­inum verði taf­ar­laust lokað fyrir bíla­um­ferð.

Það sem er mér efst í huga þessa dag­ana er jóla­bóka­flóðið. Ég er sjálf að gefa út tvær bækur; ljóða­bók sem heitir Mislæg gatna­mót og barna­bók sem heitir Randalín, Mundi og leynd­ar­málið. Þær komu báðar út núna í vik­unni [í síð­ustu viku].

Svo er það jóla­bóka­flóð hinna líka, ég var að klára bók í nótt sem heitir Svíns­höfuð, eftir Bergþóru Snæ­björns­dóttur, og ég tendrað­ist svo upp, þetta er svo áhuga­verð bók að ég hef eig­in­lega ekki getað hugsað um annað síðan ég lauk við hana áður en ég fór að sofa í gær­kvöldi.

En á þess­ari stundu, fyrir utan þetta, ég var að hjóla heiman frá mér í Norð­ur­mýri og hérna niður í bæ á leið­inni í vinn­una mína, sem er á Tún­göt­unni, og sumum finnst kannski kalt en þegar maður er kom­inn út og klæðir sig vel þá er aldrei eins kalt og maður heldur. 

Það er ekk­ert mál að hjóla í kulda og það er leið­in­legt að Lauga­veg­ur­inn sé ekki orð­inn göngu­gata. Þar hjóla ég niður og bæði er ég með bíla á eftir mér og svo mæti ég bílum á öðrum stað. Það á að fara að breyta þessu en mér finnst að það eigi bara að drífa í því, bara núna, loka Lauga­veg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár