Óléttar konur ætla að mótmæla brottvísuninni

Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir boðar til mót­mæla við dóms­mála­ráðu­neytið á morgun vegna brott­vís­unar óléttrar albanskrar konu.

Óléttar konur ætla að mótmæla brottvísuninni
Albanska konan Konan fór á sjúkra­hús í Albaníu eftir flug­ferð­ina.

Boðað hefur verið til „óléttu­kell­inga­mót­mæla“ fyrir utan dóms­mála­ráðu­neytið við Sölv­hóls­götu á morgun kl. 15. Tilefnið er brott­vísun albanskrar konu, sem gengin er 37 vikur á leið, og fjöl­skyldu hennar úr landi aðfar­arnótt þriðju­dags.

Konunni hafði verið neitað um alþjóð­lega vernd, en hún var send úr landi með flugi þvert á ráð­legg­ingar læknis á kvenna­deild Land­spít­ala. Fjöl­skyldan er nú í Albaníu og þurfti konan að fara á sjúkra­hús eftir ferða­lagið af ótta við fyr­ir­bura­fæð­ingu.

„Ófrískar konur og mæður með ung börn ætla að mæta í Dóms­mála­ráðu­neytið á Sölv­hóls­götu á morgun, föstu­dag, kl.15 og mót­mæla þeirri ómann­úð­legu með­ferð á fólki sem varð til þess að ófrískri konu og tveggja ára barni hennar var vísað úr landi á aðfara­nótt þriðju­dags!“ skrifar Salka á Twitter. „Barnlaus og ó-ólétt auð­vitað líka vel­komin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár