Grilluð rappveisla, leðurklæddir hakkarar og tilfinningaflæði

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 18–31. októ­ber.

Grilluð rappveisla, leðurklæddir hakkarar og tilfinningaflæði

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? Til 17. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur er stór og fjöl­breytt marg­miðl­un­ar­sýn­ing sem minnir á þau svæði sem þegar hafa glat­ast, með sér­stakri áherslu á áhrifa­svæði Kára­hnjúka­virkj­unar. Einnig vekur sýn­ingin athygli á nátt­úruperlum sem eru ýmist í nýt­ingar- eða bið­flokki ramma­á­ætl­unar og því í sigti orku­fyr­ir­tækja sem mögu­legir virkj­ana­kostir. Hjarta sýn­ing­ar­innar slær í aðal­sal Norræna húss­ins þar sem sýnd eru þrjú mynd­bands­verk eftir Ólafs Sveins­son um öræfin kringum Snæfell, áhrifa­svæði Kára­hnjúka­virkj­unar norð­austan Vatna­jök­uls og eyði­legg­ingu þess. Einnig verða til sýnis tveggja metra breiðar ljós­myndir af áhrifa­svæði Kára­hnjúka­virkj­unar sem sýna stór­brotið lands­lag, grósku­mik­inn gróður og fjöl­breytt dýra­líf.

Fjáröflunarteiti Andrýmis

Hvar? Andrými
Hvenær? 18. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög

Anar­kistar, aktí­vistar, mann­úð­ar­sinnar og holl­vinir hæl­is­leit­enda og flótta­manna hafa allir hreiðrað um sig í Andrými, sem er sam­komu­staður sem er rek­inn án hagn­aðar. Þar hafa farið fram fyr­ir­lestrar, nám­skeið, sam­stöðu­fundir, fræðslu­fundir, jóga­tímar, kvik­mynda­sýn­ingar og fleira. En þessi rekstur, sem er drif­inn áfram af sjálf­boða­liðum, er ekki ókeypis og því er efnt til þessa fjár­öfl­un­ar­teitis til að upp­færa net­kerfi rým­is­ins. Þema teit­is­ins er teknótón­list frá 9. ára­tugnum.

Matrix föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 18. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Kvik­myndin sem hefur end­ur­vakið áhuga á heim­speki Descartes og and­aði nýju lífi í goth-tísk­una og vís­inda­skáld­skap, Fylkið (einnig þekkt sem The Matrix), er tutt­ugu ára gömul og því verður fagnað í Bíó Paradís. Myndin fjallar um for­rit­ar­ann og hakk­ar­ann Neo sem lifir tvö­földu lífi og er far­inn að efast um eðli raun­veru­leik­ans. Með aðstoð ann­arra leð­ur­klæddra hakk­ara reynir hann að frelsa mann­kynið frá Fylkinu.

Hannah Gadsby

Hvar? Harpa
Hvenær? 18. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frá 4.990 kr.

Síðasta uppi­stand Hönnu Gadsby, Nanette, var á vörum allra í fyrra eftir að hún varð aðgengi­leg á Netflix. Á uppi­stand­inu tækl­aði hún for­dóma­fulla sam­fé­lagið á Tasmaníu, þar sem hún ólst upp, kyn­ferð­is­of­beldi, kynja­hlut­verk og hversu tak­mark­andi uppi­stand er sem list­form. Í raun má segja að Nanette hafi verið afbygg­ing á uppi­standi. Nú, ári síðar, er hún að sýna nýtt uppi­stand, Douglas, og mun flytja það í Hörpu.

Can’t Think Just Feel #10

Hvar? Loft
Hvenær? 18. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Can’t think just feel er mán­að­ar­leg tón­leika­sería skipu­lögð af kanadísku lista­kon­unni Maria-Carmela Raso, einnig þekkt sem MSEA. Á þessu kvöldi koma fram leðju­kenndu rokk­ar­arnir í Godchilla, en lög sveit­ar­innar ein­kenn­ast af sveim­kenndu gít­ar­spili og drynj­andi bassa, rólegum en takt­föstum trommum, með ómandi söng. Einnig koma fram orku­bolt­arnir í Man Kind! og indírokk­ar­arnir Skoffín.

Árstíðir

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 18. októ­ber kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Hljóm­sveitin sem varð heims­fræg 2013 fyrir að flytja „Heyr himna smiður“ a capella á þýskri lest­ar­stöð er að fagna því að ára­tugur hefur liðið frá því að fyrsta plata þeirra var gefin út. Á tón­leik­unum verða öll lög af fyrstu plöt­unni, Árstíðir, spiluð í beinni, ásamt vel völdu efni af öðrum plötum.

Úngl

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 19. okt. til 26. jan.
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Úngl er yfir­lits­sýn­ing á verkum Ólafar Nordal, en hún hefur verið afdrifa­rík í íslenska mynd­list­ar­heim­inum. Hún vísar gjarnan í verkum sínum til þjóð­sagna­arfs­ins, þjóð­legrar arf­leifðar og menn­ing­ar­legs minnis sem hún setur í nútíma­legt sam­hengi. Verk Ólafar varpa iðu­lega ljósi á mál­efni líð­andi stundar um leið og þau vísa bæði fram og aftur í tíma. Sérstakt opn­un­ar­teiti verður haldið 19. októ­ber klukkan 16.00.

Reikistjörnur: JóiPé og Króli

Hvar? Harpa
Hvenær? 19. októ­ber kl. 14.00
Aðgangs­eyrir: 2.200 kr.

Þeir ærsla­fullu og ynd­is­legu JóiPé og Króli hafa verið áber­andi í íslensku tón­list­ar­lífi síð­ustu ár og ósjaldan hafa færri kom­ist á tón­leika þeirra en vildu. Búast má við slíku á þessum við­burði sem er hluti af tón­leika­röð­inni Reiki­stjörnur þar sem fjöl­skyldum gefst tæki­færi til að sækja saman tón­leika flutta í sal með ein bestu hljóm­gæði lands­ins.

Sjón er sögu ríkari

Hvar? Lista­safn Sig­ur­jóns Ólafs­sonar
Hvenær? Frá 19. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Á þess­ari sýn­ingu á verkum Sig­ur­jóns Ólafs­sonar má finna fjöl­breytt verk sem hann gerði á árunum 1933–82. Þetta eru nat­úral­ísk verk, abstrakt­sjón og frum­drög að nokkrum lyk­il­verkum lista­manns­ins sem hafa verið stækkuð og stað­sett í opin­beru rými, svo sem Fót­bolta­menn (1936) sem stendur á Faxa­torgi á Akranesi. Sérstakt opn­un­ar­teiti verður haldið 19. októ­ber kl. 15.00.

Elli Grill – útgáfutónleikar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 19. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Klikk­að­asti og grill­að­asti rapp­ari lands­ins, Elli Grill, fagnar útgáfu plöt­unnar Rassa­bassi Vol. 3. Eins og vit­firr­ingur á ofsa­bræð­is­veg­inum býður Elli áhorf­endum að verða vitni að þessum trylltu tón­leikum, en honum til stuðn­ings kemur einnig fram Captain Syrup. Búast má við mik­illi ljósa­sýn­ingu, súlu­dansi og kóti­lettum, eða með öðrum orðum, hvers­dags­legu partíi fyrir við­kvæma og hefð­bundna ein­stak­linga.

RASK #1

Hvar? Mengi
Hvenær? 19. októ­ber kl. 14.00–23.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

RASK  #1 er fyrsti liður í nýrri við­burða­seríu í Reykja­vík sem leggur áherslu á nýmiðla­listir, tækni­þróun og til­raunir. Á þessu kvöldi koma fram Joon, sem er sjálf­stæður tölvu­leikja­hönn­uður, IDK IDA, sem er dönsk tón­list­ar­kona sem lætur hið vél­ræna og líf­ræna takast á í flutn­ingi sínum, raf­tón­list­ar­mað­ur­inn Guð­mundur Arnalds og Sól Ey sem notar heima­gerðar fjar­stýr­ingar til að stjórna tón­list sinni.

Vísinda Villi

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 19. októ­ber kl. 14.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Vísinda Villi leiðir krakka um undra­heim vís­ind­anna á lif­andi og skemmti­legan hátt með frá­bærum til­raunum. Hann spjallar, sprellar og fræðir svo úr verður frá­bær skemmtun fyrir alla fjöl­skyld­una. Eftir Villa liggja fimm met­sölu­bækur sem hafa hlotið verð­laun og til­nefn­ingar til verð­launa.

Ör

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? Til 30. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 6.200 kr.

Leik­ritið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) er byggt á sama grunni og skáld­saga Auðar Övu Ólafs­dóttur sem hlaut bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs árið 2018. Að sögn Auðar spratt skáldsagan upp úr upp­kasti að leik­rit­inu sem nú er full­klárað. Leik­ritið fjallar um frá­skil­inn mann á miðjum aldri sem lendir í til­vist­ar­kreppu og þarf að átta sig á hlut­verki sínu í líf­inu.

Halloween Iceland 2019

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 26. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Hið árlega hrekkja­vöku­ball Halloween Iceland fer fram á Gauknum. Eins og áður er þetta bún­inga­keppni og því verður bún­inga­lausum mein­aður aðgangur. Verðlaun eru veitt fyrir bestu bún­inga og til­þrif og síðan munu plötu­snúðar þeyta skífum fram í rauða bítið. Burlesque-hóp­ur­inn Dömur og herra verða með vel valin atriði út kvöldið.

Þjófaveisla

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 27. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þjófa­veisla er einka­sýn­ing Úlfs Karls­sonar, mynd­list­ar­manns og mál­ara. Í Þjófa­veislu leikur Úlfur sér með því að mála hurðir, stóla og borð auk mál­verks­ins, en Úlfur hefur unnið í gegnum tíð­ina bæði með vegg­myndir, mál­verk og ljós­myndir. Sýningin er inn­setn­ing, byggð á mál­verkum og þrí­víðum verkum sem fjalla um hungur, neyslu­menn­ingu og neyt­endur af ýmsum toga og í ýmsum myndum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár