Móðurfélag Fréttablaðsins tapaði milljarði

365 miðlar seldu alla fjölmiðla sína til Sýnar, en hafa keypt í verslunar­risanum Högum. Félagið er í eigu Ingibjargar Pálma­dóttur og á helmings­hlut í útgáfu­félagi Frétta­blaðsins.

Ingibjörg Pálmadóttir og Helgi Magnússon
Ingi­björg Pálma­dóttir og Helgi Magn­ús­son Helgi eign­að­ist helm­ings­hlut í Frétta­blað­inu nýverið á móti félag­inu 365 miðlum.

365 miðlar, félag Ingibjargar Pálma­dóttur sem á helmings­hlut í útgáfu­félagi Frétta­blaðsins og áður rak Stöð 2 auk fjölda annarra fjölmiðla, tapaði 1.027 milljónum króna árið 2018. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Ingibjörg er forstjóri og stærsti eigandi 365 miðla. Félagið á helmings­hlut í Torgi, útgáfu­félagi Frétta­blaðsins, en Helgi Magnússon fjár­festir keypti 50 prósenta hlut í byrjun júní.

365 miðlar seldu allar eignir sínar til Fjar­skipta árið 2017, en það félag heitir nú Sýn. Varð 365 þar með næst stærsti eigandi Fjar­skipta, en hélt eftir Frétta­blaðinu og tíma­ritinu Glamour. Síðasta haust seldu svo 365 miðlar allt hlutafé sitt í Sýn og keyptu í stað þess um 3 prósenta hlut í Högum, sem reka meðal annars Bónus, Hagkaup og Olís. Samkeppnis­eftirlitið hafði sett 365 miðlum þær kvaðir að selja annað hvort hlut sinn í Sýn eða Torgi.

Undan­farin ár stóðu 365 miðlar í deilum við íslenska ríkið vegna endur­skoðunar á álagningu opinberra gjalda. Féll dómur í Hæstarétti síðasta haust þar sem ríkið var sýknað af kröfu 365 og voru þar hundruð milljóna í húfi fyrir félagið.

Að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðsins skýrist tap 365 miðla að stærstum hluta af  „einskiptis­leiðum sem tengjast aflagðri starfsemi félagsins í kjölfar sölu á ljósvaka-, fjölmiðlaog fjarskipta­rekstri, eða 591 milljón króna. Þá nam álagður og reiknaður tekju­skattur vegna fyrri ára 537 milljónum króna og gangvirðisleiðréttingar af hluta­bréfum 294 milljónum króna. Samtals höfðu framan­greindir liðir því neikvæð áhrif á afkomu síðasta árs að fjárhæð 885 milljónir króna.“

Eigið fé nam 1.409 milljónum króna í árslok 2018 og var eiginfjár­hlutfall félagsins 41 prósent. Ákveðið hefur verið að auka hlutafé um 1,2 milljarða króna í ár, samkvæmt fréttinni.

 „Afkoma ársins 2018, sjóð­streymi og breytingar á efnahags­reikningi litast mjög af eftir­fylgni sölu á rekstri 365 í árslok 2017 ásamt áhrifum af því að ágreiningsmál við skatta­yfirvöld hafa verið til lykta leidd,“ er haft eftir Ingibjörgu Pálma­dóttur. „Eftir þetta tiltektarár hjá félaginu og hlutafjár­aukningu hefur eignasafn og fjárhagur 365 styrkst til muna og mun félagið halda áfram að nýta þau tækifæri sem gefast og vera virkur þátt­takandi í fjár­festingar­verkefnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár