Hjónin í Borgarplasti græddu 800 milljónir í fyrra

Hjónin Guðni Þórð­ar­son og Sjöfn Guð­munds­dóttir, sem stýrt hafa Borg­arplasti und­an­farna ára­tugi, fengu 778 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur í fyrra. Þau seldu fyr­ir­tækið til Alfa fram­taks­sjóðs síð­asta haust.

Hjónin í Borgarplasti græddu 800 milljónir í fyrra
Kaupunum fagnað Alfa fram­tak, sem þá hét Fram­taks­sjóð­ur­inn Umbreyt­ing, keypti og sam­ein­aði Borg­arplast og Plast­gerð Suð­ur­nesja.

Hjónin Guðni Þórð­ar­son og Sjöfn Guð­munds­dóttir fengu sam­tals um 808 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur í fyrra sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatt­stjóra. Guðni og Sjöfn hafa átt iðn­að­ar­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­isið Borg­arplasts hf. sem selt var til fjár­festa­sjóðs síð­asta haust.

Guðni, sem verður átt­ræður í haust, stofn­aði Borg­arplast ásamt sex öðrum Borg­firð­ingum árið 1971. Fyr­ir­tækið er stærsti sölu­að­ili ein­angr­aðra fiski­kerja á Íslandi og flytur þau út til allra heims­álfa.

Fram­taks­sjóður­inn Umbreyt­ing keypti bæði Borg­arplast hf. og Plast­gerð Suður­nesja ehf. í sept­em­ber 2018 og voru fyr­ir­tækin sam­einuð undir nafni Borg­arplasts. Sjóð­ur­inn er 7 millj­arða króna fjár­fest­inga­sjóður sem heitir nú Alfa fram­tak. Guðni og Sjöfn voru tveir stærstu hlut­hafar Borg­arplasts og námu fjár­magnstekjur þeirra í fyrra 778 millj­ónum króna, sem að lík­indum má mest­megnis rekja til þess­ara við­skipta.

Þar fyrir utan námu mán­að­ar­laun Guðna í fyrra 1.713.622 krónum og mán­að­ar­laun Sjafnar 757.877 krónum. 

Eftir kaupin á Alfa fram­tak 78% í sam­ein­uðu fyr­ir­tæki, að því er fram kom í til­kynn­ingu við kaupin. „Verk­efnið er krefj­andi og fel­ur í sér umbreyt­ingu á rekstri og efna­hag sam­ein­aðs fé­lags. Fé­lög­in eru hins veg­ar rót­gró­in og rekst­ur þeirra traust­ur. Við hlökk­um til sam­starfs­ins við nýja lyk­il­stjórn­end­ur og með­eig­end­ur okk­ar og mun­um styðja fé­lagið til frek­ari vaxt­ar,” var haft eft­ir Gunn­ari Páli Tryggva­syni, fram­kvæmd­ar­stjóri Icora Partners, sem nú heitir Alfa fram­tak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár