Ég dó í þrjátíu og þrjár mínútur og þrjár sekúndur

Þorvaldur Sigur­björn Helgason fékk hjarta­stopp á fyrstu önninni í mennta­skóla og hefur verið með bjargráð síðan.

Einn sá atburður sem hefur breytt mér hvað mest er þegar ég lenti í hjarta­stoppi 15 ára gamall. Ég var þá á fyrstu önninni minni í mennta­skóla. Þetta var á þriðju vikunni í skólanum. Ég var nýkominn úr hádegismat og að bíða eftir næsta tíma þegar ég fékk skyndi­lega mjög hraðan hjartslátt. Ég hafði lent í þessu nokkrum sinnum áður og það hafði alltaf bara liðið hjá. Ég var búinn að tala um þetta við foreldra mína og þau sannfærðu mig um að óþarfi væri að hafa áhyggjur. 

Ég settist því bara niður og reyndi að anda rólega. Svo allt í einu leið yfir mig, þá hafði hjartað mitt hætt að slá. Ég man auðvitað ekki meir en við tók endur­lífgun í sirka hálftíma þar sem sjúkra­flutninga­menn komu og stuðuðu mig í gang. Ég fékk tólf stuð í hjartað. Í kjölfarið var farið með mig á spítala þar sem mér var haldið sofandi í öndunarvél í um það bil sólar­hring. Þegar ég vaknaði var ákveðið að koma fyrir tæki við hjartað sem kallast bjargráður. Það er svipað tæki og gangráður nema það heldur ekki hjartanu þínu gangandi heldur fylgist stöðugt með því. Ég hef verið með þetta tæki við hjartað í tólf ár. 

Ég skrifaði nýverið ljóðabók upp úr þessari reynslu. Í henni fjalla ég um þessa upplifun og þessa tíu ára sögu frá því að hjartað mitt stoppaði og þar til í dag. Ég fékk aðgang að lækna­skýrslum frá hjarta­stoppinu sjálfu og aðgerðum sem ég hef þurft að fara í í kjölfarið. Ég skrifaði ljóð upp úr skýrslunum og blandaði þessu tvennu saman, semsagt klínísku mati og upplifun. Bókin kom út fyrir nokkrum mánuðum og heitir Gangverk. Fyrsta línan í bókinni er: Árið 2007 stendur tíminn í stað. Í þrjátíu og þrjár mínútur og þrjár sekúndur stendur tíminn í stað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár