Skörp hlýnun á Íslandi

Hvernig mun veð­ur­far breyt­ast til 2050?

Skörp hlýnun á Íslandi

Frá því að sam­felldar mæl­ingar hófust fyrir mið­bik 19. aldar hefur hlýnað veru­lega á Íslandi og nemur sú  hlýnun 0,8 gráðum á Celsíus á öld. Hlýnunin varð áköfust fyrir mið­bik síð­ustu aldar og svo aftur í lok hennar.

Árið 2050 er lík­legt að hlýnun á Íslandi nemi um 1,3 til 2,3 gráðum á Celsíus. Hlýnunin mun ráð­ast af því hversu mikið verður losað af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum til þess tíma.

Þegar reiknað og spáð er fram í tím­ann um það hvernig ástand verður á Íslandi árið 2050 eru fjórar sviðs­myndir teikn­aðar upp um fjórar mis­mun­andi útkomur þeirra reikn­inga. Litið er til þeirra sviðs­mynda þegar veð­ur­far á Íslandi er reiknað fram í tím­ann.

Hver sviðs­mynd fyrir sig dregur upp mynd af ákveð­inni spá, sem er unnin út frá því hversu mikið við losum af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. Í fyrstu sviðs­mynd­inni, þar sem minnst er losað, verður þá minnsta breyt­ingin á hita­stigi og í þeirri fjórðu, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár