Forsætisráðherra um þungunarrof: „Hefði sjálf stutt það að hafa engin tímamörk“

Katrín Jakobs­dóttir er hlynnt sams konar fóstur­eyðingar­löggjöf og er við lýði í Kanada. Hún segir frumvarp Svandísar Svavars­dóttur mikilvægt framfara­skref. „Ég treysti kon­um fyr­ir þeirri ábyrgð sem fylg­ir þess­um rétt­ind­um.“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra hefði viljað ganga lengra en gert er í frumvarpi Svandísar Svavars­dóttur heilbrigðis­ráðherra og heimila þungunarrof án tímamarka.

Þetta kom fram í ræðu hennar áðan þar sem hún lýsti yfir eindregnum stuðningi við frumvarp heilbrigðis­ráðherra til laga um þungunarrof. Atkvæða­greiðsla stendur nú yfir um þingmálið.

„Þetta er grund­vall­ar­mál sem snýst um sjálfræði kvenna að mínu viti, rétt­indi þeirra til að ráða yfir eig­in lík­ama og eig­in lífi, langþráð rétt­inda­mál, en um leið fylg­ir því frelsi sem boðað er í frum­varp­inu mik­il ábyrgð,“ sagði forsætis­ráðherra og bætti við: „Ég treysti fólki og kon­um til að taka ekki slík­ar ákv­arðanir af neinni léttúð. Ég treysti kon­um fyr­ir þeirri ábyrgð sem fylg­ir þess­um rétt­ind­um.“

Sagði Katrín að kona yrði ekki frjáls nema hún réði yfir eigin líkama. „Þetta er skref í þá átt að gera konur í þessu landi frjálsari og ég styð það frumvarp heilshugar og hefði sjálf stutt það að hafa engin tímamörk.“ Þess má geta að lögin eru með þeim hætti í Kanada.

Sigmundur Davíð sagði yfir­lýsingu Katrínar sláandi og kvartaði yfir því að umræðan hefði „aldrei fengið að snúast um það hver eru hin eðlilegu tímamörk“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár