Fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp: „Auðveldara að lifa með þessum dómi,“ segir sonur hins látna

Lands­réttur dæmid Val Lýðsson í fjórtán ára fang­elsi fyrir mann­dráp á bróður sínum að Gýgj­ar­hóli II. Ingi Rafn Ragn­ars­son, sonur hins látna, segir dóm­inn vera létti fyrir alla fjöl­skyld­una. Í dóms­orði segir að árásin hafi verið svo ofsa­fengin að Vali hljóti að hafa verið ljóst að bani hlyt­ist af henni.

Fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp: „Auðveldara að lifa með þessum dómi,“ segir sonur hins látna

„Það er miklu auð­veld­ara að lifa með þessum dómi heldur en sjö árum,“ segir Ingi Rafn Ragn­ars­son, sonur Ragnars Lýðs­sonar heit­ins. Rétt í þessu þyngdi Lands­réttur dóm­inn yfir föð­ur­bróður Inga Rafns, Vali Lýðssyni, sem var dæmdur í fjórtán ára fang­elsi fyrir að verða Ragnari bróður sínum að bana að bænum Gýgj­ar­hóli II aðfar­arnótt 31. mars 2018.  

Í nið­ur­stöðu dóms­ins segir meðal ann­ars: „Er í ljós leitt að ákærði veitt­ist að Ragnari bróður sínum með mörgum, þungum hnefa­höggum og spörkum og lét ekki af atlög­unni þótt Ragnar félli í gólfið og gæti sér þar litla eða enga björg veitt. Þótt gögn máls­ins beri með sér að ein­hver átök hafi átt sér stað milli bræðr­anna er ljóst að ákærði hafði þar algjöra yfir­burði og hlaut aðeins smá­vægi­lega áverka af. Af nið­ur­stöðum krufn­ingar og blóð­ferla­grein­ingar verður ráðið að ákærði hafi veitt Ragnari högg eða spörk í höf­uðið þar sem hann var í álútri stöðu eða kom­inn niður á hnén og sparkað eða stappað á höfði hans og lík­ama þar sem hann lá í gólf­inu.“ 

„Atlaga ákærða að Ragnari var svo ofsa­fengin að honum hljóti að hafa vera ljóst að lang­lík­leg­ast væri að bani hlyt­ist af henni“

Ragnar hafi lát­ist af völdum höf­uð­á­verka en áverkar í brjóst- og kvið­ar­holi voru einnig ban­vænir. Þeir ákverkar hafi verið veittir þegar hann var orð­inn með­vit­und­ar­lít­ill eða með­vit­und­ar­laus vegna höf­uð­högga, jafn­vel að honum látnum. „Atlaga ákærða að Ragnari var svo ofsa­fengin að honum hljóti að hafa vera ljóst að lang­lík­leg­ast væri að bani hlyt­ist af henni.“

Fékk sjö ára fangelsi í héraði

Áður hafði Valur fengið sjö ára fang­els­is­dóm fyrir lík­ams­árás í hér­aði en rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði dómnum og fór fram á sextán ára fang­els­is­dóm. Í dag var Valur sak­felldur fyrir mann­dráp, en ekki lík­ams­árás. „Var um ásetn­ings­verk að ræða,“ segir í nið­ur­stöðu dóms­ins. 

Börn hins látna hafa greint opin­ber­lega frá því hversu þung­bært það væri þeim að bana­maður föður þeirra og náfrændi hefði aðeins fengið sjö ára fang­els­is­dóm. Bróðir þeirra Vals og Ragnars sagði dóm­inn sömu­leiðis allt of vægan. Ingi Rafn skrif­aði tvær greinar um málið sem báðar birt­ust á Stund­inni, þar sem hann rakti atburð­ar­rás­ina eins og henni hafði verið lýst í dóms­sal og eins um við­brögð sam­sveit­unga sem höfðu reynt að rétt­læta árás­ina á föður hans.

„Það er mér mik­il­vægt að þetta komi fram,“ sagði Ingi Rafn þegar dómur hafði verið kveð­inn upp í dag: „Sögu­sagnir gengu hjá ákveðnu fólki í Bisk­ups­tung­unum um að þetta hefði verið slags­mál eða slys. Þessu hélt ákveðið fólk ein­beitt fram í marga mán­uði, á meðan við systk­inin þögðum og létum þetta yfir okkur ganga. Í dag var því svarað. Valur var dæmdur á grund­velli 211 greinar hegn­ing­ar­laga, eða mann­dráp af ásetn­ingi. Það er besta nið­ur­staðan sem við gátum vænst, enda stað­fest­ing á því hversu ógeðs­leg þessi árás var og hversu fárán­legar þessar sögu­sagnir hafa verið. Það er gíf­ur­legur léttir að fá hann dæmdan fyrir þessa laga­grein.

„Mér líður tölu­vert betur í dag en áður“

Hvorki í máls­skjölum né í dóms­orði er tekið fram hvað var metið Vali til refsi­lækk­unnar svo að nið­ur­staðan var fjórtán ár en ekki sextán. Ekki nema þeir séu enn fastir í því að áfeng­is­magn hafi haft áhrif á dán­ar­or­sök, eins og tekið var fram í hér­aðs­dómi, jafn­vel þótt rétt­ar­meina­fræð­ingur hafi sagt að þessir sömu áverkar hefðu getað valdið alls­gáðum manni bana. Sjálfur hef ég fengið heila­hrist­ing alls­gáður og átt í erf­ið­leikum með upp­köst, svo ég þekki það.“

Líður betur í dag

Ingi Rafn mætti í dóms­upp­kvaðn­ing­una með elsta bróður sínum og kær­ustu hans. Ástæðan var sú að aðrir fjöl­skyldu­með­limir eru staddir erlendis í afmæl­is­fögn­uði móður hans. „Við vorum búin að bóka afmæl­is­ferð fyrir mömmu til Póllands með margra mán­aða fyr­ir­vara. Það hitt­ist akkúrat þannig á að dóm­ur­inn var kveð­inn upp í dag, svo ég stytti ferð­ina og tók flug heim í gær. Reyndar vissi ég ekki fyrir víst  hvort dóm­ur­inn yrði kveð­inn upp í dag eða ekki, en vildi vera við­staddur fyrir hönd fjöl­skyld­unnar.“

Hann er því feg­inn. „Mér líður tölu­vert betur í dag en áður. Þetta er léttir. Ég er samt enn í sjokki eftir þetta allt saman og við öll. En það sýnir kannski hvernig þeir mátu stöðu sína að hvorki Valur né verj­andi hans mættu fyrir dóm, og ekk­ert af hans stuðn­ings­fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár