Það sem gerðist að Gýgjarhóli þegar faðir minn lést af völdum bróður síns

Ingi Rafn Ragn­ars­son skrifar um atvikin sem leiddu til þess að faðir hans lét lífið að völdum bróður síns á bænum Gýgj­ar­hóli II í Blá­skóga­byggð. „Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil opin­ber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síð­ustu orðin um föður minn vera nafn­lausan róg­burð frá Val Lýðssyni og fylgjum hans og því sett­ist ég við skriftir.“

Það sem gerðist að Gýgjarhóli þegar faðir minn lést af völdum bróður síns

„Þar sem ég þekkti báða máls­að­ila vel er atburða­rás þessa kvölds aug­ljós fyrir mér og okkur systkin­unum,“ segir Ingi Rafn Ragn­ars­son í grein sem hann skrif­aði um atburð­ar­rás­ina að Gýgj­ar­hóli II kvöldið sem faðir hans lést af völdum bróður síns, aðfar­arnótt 31. mars 2018. Greinin er birt í heild sinni hér að neðan. Áður hefur Ingi Rafn lýst þeim per­són­u­árásum sem hann og fjöl­skylda hans sættu í kjöl­far árá­sinnar á föður hans, Ragnar Lýðsson.

Í grein­inni rekur Ingi Rafn lýs­ingar rétt­ar­meina­fræð­ings á atvikum og eru við­kvæmir varaðir við þeirri lýs­ingu. Sjálfur hafi hann mætt hat­urs­fullu augna­ráði föð­ur­bróður síns þegar dóm­ar­inn hafi yfir­gefið rétt­ar­sal­inn. Faðir hans hafi sýnt bróður sínum umburð­ar­lyndi en verið mætt af lít­ils­virð­ingu. „Þakk­lætið er svo sýnt með því að móðga föður minn, drepa hann og síðan leggja sig allan fram um per­sónu­níð.“

Föð­ur­bróður hans hafi tek­ist að fela sitt rétta eðli í gegnum máls­með­ferð­ina fyrir hér­aðs­dómi. Ekki hafi komið fram hvaða mann Valur hefði að geyma en mann­orð föður hans hafi verið svert. „Alveg í upp­hafi, við fyrstu yfir­heyrslur lög­reglu, var helsta áhyggju­efni hans hvenær hann kæmi heim til að laga skað­ann sem orð­spor hans hefði orðið fyrir. Valur var til­bú­inn að ganga alla leið í æru­meið­ingum í garð föður míns til þess að ná því tak­marki. Hann rak lög­fræð­ing­inn sinn, sem er jafn­framt einn af hans bestu vinum, af því hann var ekki nógu ósvíf­inn. Það verður að segj­ast eins og er að ætl­un­ar­verk Vals hefur tek­ist.“

Fyrir dómi í morgunHelgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari benti á að um hafi verið að ræða ítrek­aðar árásir sem leiddu til dauða Ragnars.

Aðalmeðferð hófst í dag 

Forsagan er sú að aðal­með­ferð í máli Vals Lýðs­sonar hófst í Lands­rétti í morgun. Hér­aðs­dómur dæmdi Val í sjö ára fang­elsi fyrir að hafa orðið bróður sínum að bana. Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði þeim dómi, en sak­sókn­ari hafði farið fram á að Valur yrði dæmdur í sextán ára fang­elsi þar sem honum hefði mátt vera ljóst að árás hans gæti endað með and­láti. Hér­aðs­dómur taldi hins vegar að ákæru­vald­inu hefði ekki tek­ist að sanna að Valur hefði ætlað að ráða bróður sínum bana og var hann dæmdur fyrir mann­dráp fyrir stór­hættu­lega lík­ams­árás. 

Fyrir dómi í morgun benti Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari á að um hafi verið að ræða ítrek­aðar árásir sem leiddu til dauða Ragnars. Jafnvel þótt ekk­ert benti til þess að Valur hefði ætlað sér það fyr­ir­fram að verða bróður sínum að bana hafi hann engu skeytt um ástand bróður síns og ekki stöðvað árás­ina þegar hann væri rænu­laus. Ljóst væri að sparkað hefði verið í höfuð Ragnars, og að það hafi lík­lega verið gert eftir að hann missti með­vit­und. Í fram­hald­inu hafi Valur trampað ofan á rifja­hylki bróður síns þegar hann lá í gólf­inu. Árásin væri stór­hættu­leg, offorsið mikið og Ragnar hafi ekki getað varið sig. Engin vörn væri í því að segj­ast hafa verið ölv­aður.

Lögmaður Vals mót­mælti lýs­ingu ákæru­valds­ins á atvikum og sagði atburð­ar­rás­ina vera mjög óljósa. Valur hefur borið fyrir sig minnis­leysi og kaus að tjá sig ekki við skýrslu­töku í Lands­rétti í morgun. Lögmaður Vals sagð­ist hins vegar vera ósáttur við hversu mikla vigt ákæru­valdið legði í blóð­ferla­rann­sóknir á vett­vangi og sagði skýrslu rétt­ar­meina­fræð­ings­ins hlut­dræga, þar sem ekki væri um að ræða sér­fræð­ing sem hefði lífs­við­ur­væri sitt af því að starfa fyrir lög­reglu. Þá mót­mælti hann því að sam­tal Vals við Neyð­ar­lín­una væri notað við með­ferð máls­ins, meðal ann­ars á þeim for­sendum að Valur hefði verið mjög ölv­aður. Ölv­unar­á­stand væri stór ástæða þess að Ragnar hefði látið lífið þetta kvöld.

Krafðist hann sýknu en að hann sagði refs­ing­una í hér­aði hafa verið þunga og miska­bætur sem Valur var dæmdur til að greiða börnum Ragnars væri of háar. Ragnar skildi eftir sig fjögur börn, sem hvert um sig fékk dæmdar þrjár millj­ónir í miska­bætur. Lögmaður þeirra fór í dag fram á tíu milljón króna miska­bætur, þar sem ljóst væri að Ragnar hefði orðið fyrir hrotta­legri atlögðu og bróðir hans hvorki sýnt iðrun né beðist afsök­unar. Þegar börn Ragnars leit­uðu sátta hafi Valur ekki verið til við­ræðu um það. Varnir hans væru fjar­stæðu­kenndar og for­herð­ing hans hefði aukið á miska barn­anna. Valur hafi ekki viljað taka þátt í útfar­ar­kostn­aði bróður síns og lýst yfir skulda­jafn­að­ar­kröfu upp á átta millj­ónir króna sem hann taldi sig eiga á dán­arbú bróður síns. Þeirri kröfu mót­mælti lög­mað­ur­inn ein­dregið.

Dóm hér­aðs­dóms má lesa hér: Ákærði sæti fang­elsi í sjö ár.

Eftir að dómur féll í hér­aði lýsti bæði bróðir þeirra Vals og Ragnars, sem og börn Ragnars heit­ins, því yfir að dóm­ur­inn væri of vægur. Var það skoðun þeirra að Valur hefði átt að fá sextán ára fang­els­is­dóm. Við með­ferð máls­ins hefur margt komið upp sem situr í börn­unum og sonur hans, Ingi Rafn Ragn­ars­son rekur það í grein sem er birt hér að neðan.

Ingi Rafn Á erfitt með að sætta sig við að mað­ur­inn sem varð valdur að dauða föður hans fái að skil­greina karakter hans og skrifar hér til varnar föður sínum.

Grein Inga Rafns:

Morðið að Gýgjarhóli og sannleikurinn 

Frá­sagnir Vals Lýðs­sonar af kvöld­inu örlaga­ríka eru orðnar ansi margar og mis skraut­legar. Upp­haf­lega ætl­aði hann að halda sig við að hann hefði komið að föður mínum um morg­un­inn og að hann myndi óljóst eftir átökum. Hann minnti þó að faðir minn hefði átt upp­tökin og að þeir hefðu skilið sáttir um nótt­ina. Hann hefði svo komið að honum látnum um morg­un­inn.

Hér er það sem raun­veru­lega gerð­ist um nótt­ina.

Blóðferlarannsókn á vettvangi 

Blóð­ferla­rann­sókn á vett­vangi og krufn­ing á líki föður míns leiddi hvort tveggja mjög fljótt í ljós að fátt pass­aði við við frá­sögn Vals. Lítil sem eng­inn ummerki voru um átök á vett­vangi. Augljóst var að atlagan í heild sinni fór fram í þvotta­hús­inu og allar blóð­slett­urnar voru neðan við mitt­is­hæð. Lög­reglan áætl­aði mjög fljót­lega að föður mínum hefði verið komið að óvörum, hann sleg­inn mjög þungu höggi og strax fallið niður á fjóra fætur. Það getur lög­reglan ályktað út frá blóð­slettum á vett­vangi, meðal ann­ars á þvotta­vél. Þar traðkar Valur á pabba sem liggur á fjórum fótum, þar til pabbi missir hend­urnar undan sér og fellur í gólfið. Blóð­slettur sem spýtt­ust út um munn­vik föður míns og áverkar á and­liti sýna að Valur traðkar á höfði föður míns eftir að hann fellur. Höggin eru það mörg og það þung að and­lit föður míns var mjög illa farið. Það var þakið mar­blettum, nefið var skaddað, augun höfðu orðið fyrir hnjaski, stór skurður hafði mynd­ast eftir endi­löngu and­lit­inu og eftir að hafa ítrekað traðkað á annarri hlið föður míns mátti ekki miklu muna að eyrað hefði rifnað af enda mynd­að­ist veg­legur skurður aftan við það.

Það sem rétt­ar­meina­fræð­ing­ur­inn Sebast­ian Kunz afhjúpar síðan fyrir hér­aðs­dómi er sú stað­reynd að Valur gerði hlé á árásinni. Blæð­ingin úr lifur föður míns passar ekki við eina sam­fellda árás og sam­kvæmt Kunz fyrir hér­aðs­dómi gæti hafa liðið hálf­tími milli þess sem Valur traðkar á and­liti föður míns og þar til hann fer ham­förum og möl­brýtur rif­bein föður míns með síend­ur­teknu traðki ann­að­hvort að honum látnum eða við síð­ustu and­ar­tökin. Þetta getur Kunz full­yrt vegna þeirrar reynslu sem hann hefur sem rétt­ar­meina­fræð­ingur. Valur tekur því eitt­hvert hlé eftir að hafa traðkað á and­liti föður míns en ákveður síðan að það sé betra að full­vissa sig um að pabbi sé örugg­lega dauður. Þessum upp­lýs­ingum hefur vænt­an­lega verið haldið frá föð­ur­bróður mínum. Fyrir dómi sá ég í and­liti hans reiði, hneykslan og undrun að rétt­ar­meina­fræð­ing­ur­inn hefði getað kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu við krufn­ingu.

„Við hlið föður míns var fót­spor í blóð­polli“

Þar sem ég þekki Val föð­ur­bróður minn mjög vel þá veit ég að þetta var ekki undrun yfir ósvífni Kunz heldur miklu frekar for­undran. Hvenær Valur sparkar í háls pabba og brýtur hann er ekki getið, hvort það til­heyri fyrri eða seinni árásinni. Árásin á kvið föður míns olli inn­vortis blæð­ingum og var hann í þykkri, gam­alli peysu kvöldið sem hann var myrtur. Í henni var blóð­blettur sem fór ekki saman við inn­vortis áverka og við nán­ari grein­ingu sást að hann var smurður í peys­una. Við hlið föður míns var fót­spor í blóð­polli. Það er blóð­poll­ur­inn sem Valur hélt því fram að hann hefði stigið í um morg­un­inn þegar hann athug­aði með lífs­mark pabba. Það var afhjúpað sem lygi fyrir dómi af þeim orsökum að þá væri ekki hægt að útskýra hvernig blóð­blett­ur­inn end­aði í peysu pabba og neðan á sokki Vals. Í  ofaná­lag var mjög heitt í and­dyr­inu um morg­un­inn og við þannig aðstæður mynd­ast mjög fljótt þorn­un­ar­mynstur í blóð­polla. Með því að skoða fótsporið geta blóð­ferla­fræð­ingar aug­ljós­lega ályktað að Valur stígur í blóðið stuttu eftir verkn­að­inn um nótt­ina en ekki um morg­un­inn.

Þarna afhjúp­ast lygi Vals um athugun á lífs­marki föður míns. Þetta fót­spor vakti upp spurn­ingar hjá lög­reglu og sönn­un­ar­gögnin á vett­vangi koma ekki heim og saman við síbreyti­lega frá­sögn Vals, sem virt­ist fara eftir veðri og vindum. Lög­reglan tekur þess vegna blóð­ferla­rann­sókn með luminoli á því sem næst öllu hús­inu á Gýgj­ar­hóli eftir að rann­sókn átti að hafa verið lokið. Valur var með stóran blóð­blett neðan á sokk­unum sem er lengi að þorna og sam­kvæmt þeim sem þekkja til rann­sókna af þessu tagi, þá hefði húsið allt átt að spor­ast út lengi á eftir. Það er vitað að Valur fer inn á bað, gang og svefn­her­bergi ein­hvern tíma um nótt­ina eða undir morgun. Til þess að kom­ast þangað þarf að ganga í gegnum eld­hús, langan gang og inn í her­bergi. Þarna hefði átt að sjást langur spora­fer­ill eftir Val um nótt­ina en nið­ur­staðan var ekk­ert lítið und­ar­leg. Það fund­ust engin ummerki um neitt.

Þarna komst rann­sókn­ar­lög­reglan á snoðir um það að Valur fer ekki inn í húsið fyrr en undir morgun eða seint um nótt­ina. Eldhúsið er næsta her­bergi við and­dyrið/þvotta­húsið og hurðin sem pabbi snýr með höf­uðið í átt að er úti­dyra­hurðin. Þarna liggur orðið ljóst fyrir að ann­að­hvort stendur Valur yfir pabba megnið af nótt­inni eða fer út.

Læknisskoðun á áverkum Vals 

Læknir skoðar Val eftir hand­töku og eru áverkar hans flokk­aðir undir skrámur með minni háttar blæð­ingum. Það voru teknar myndir af Val eins og venja er við slíkar aðstæður. Blóð­taum­arnir úr þessum skrámum runnu upp í mót sem gefur aug­ljóst merki þess að Valur hafi lagst út af mjög fljót­lega eftir að hin meintu slags­mál áttu að hafa farið fram. Það sem passar ekki inn í eft­ir­talda frá­sögn er sú stað­reynd að Valur er blóð­ugur neðan á sokk­unum, hann á að hafa lagst útaf fljót­lega eftir slags­málin og það er vitað að hann fer inn í rúm um morg­un­inn. Þar finnst bara blóð úr honum sjálfum. Hérna vand­ast málið. Fyrir stað­kunn­uga er það aug­ljóst mál að þegar full­orð­inn maður liggur þversum í and­dyr­inu á Gýgj­ar­hóli þá er nán­ast ekk­ert pláss eftir fyrir annan mann til að leggj­ast niður. Þessa nótt lá faðir minn þvert í gegnum and­dyrið og blóð úr höfði föður míns fyllti upp rest­ina af mögu­legum leg­u­svæðum. Blóð­ferla­grein­ing sýnir fram á að Valur fer ekki inn í hús fyrr en löngu síðar, þegar blóðið undir fótum hans er storknað. Ekki gat hann lagst í þvotta­hús­inu því þar var ekki pláss og til að fara inn í svefn­hebergi Vals þarftu að ganga úr and­dyr­inu, gegnum eld­húsið og inn langan gang. Þar er blóð úr Val sem ætti ekki að vera löngu storknað fyrst Valur fer ekki inn fyrr en undir morgun.

„Versti hlut­inn við morðið á föður mínum er að Valur hafi ekki bara getað sýnt föður mínum þá mannúð að stinga eða skjóta hann frekar enn að traðka hann til bana“

Þarna er orðið ljóst að það er fleiri klukku­tíma tímara­mmi milli þess sem Ragnar faðir minn deyr og Valur fær sínar skrámur. Þess ber að geta að pabbi átti alla tíð auð­velt með að rispa og skrapa á sér hend­urnar við vinnu en mán­uð­ina fyrir morðið hafði pabbi setið við skrif­borð við til­boðs­gerð fyrir stórt verk og því unnið óvenju­lítið með hönd­unum. Það var því það fyrsta sem við systk­inin sáum, að hend­urnar á pabba litu út eins og hann hefði verið nýkom­inn úr hand­snyrt­ingu. Okkur var því ljóst á þeim tíma­punkti að pabbi okkar hafði ekki lent í neinum áflogum, hann hafði ein­fald­lega verið drep­inn. Rétt­ar­meina­fræð­ingur stað­festi að það voru engir áverkar, mar eða nokkur skap­aður hlutur á föður mínum sem benti til þess að hann hefði slegið til Vals eða varið sig. Andlit föður míns var blátt og afmyndað.  Pabbi liggur þvert í gegnum and­dyrið á Gýgj­ar­hóli og lög­regl­una grun­aði strax í upp­hafi að hann hefði verið sleg­inn með bar­efli í upp­hafi atlög­unnar. Gerð var ítar­leg leit en henni var síðan hætt á þeim for­sendum að rétt­ar­meina­fræð­ingur taldi mögu­legt að hægt væri að valda áverkum föður míns með berum höndum og fótum. Þá er árásin talin svo ofboðs­lega heift­úðug að lög­reglan taldi bar­efli hvort sem er ekki hafa mikið að segja við máls­með­ferð.

Það er skemmst frá því að segja að versti hlut­inn við morðið á föður mínum er að Valur hafi ekki bara getað sýnt föður mínum þá mannúð að stinga eða skjóta hann frekar enn að traðka hann til bana. Þá er rétt að það komi fram að trað­kið er metið honum til refsi­lækk­unar fyrir Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands. Til við­bótar hafa verj­endur Vals farið mik­inn með þá stað­reynd að Valur hafi ekki beitt 4 cm vasa­hnífnum, sem hann gengur alltaf með, við slátr­unin­una  á föður mínum og þess vegna geti þetta ekki talist til mann­dráps.

Nú höfum við farið í gegnum nokkra punkta í lög­reglu­rann­sókn­inni. Þrátt fyrir enda­lausar hag­ræð­ingar Vals á frá­sögn sinni þessa nótt, er hún ekki enn farin að ríma við sönn­un­ar­gögnin á vett­vangi og krufn­ingu föður míns.

Samband bræðranna 

Hér er atburða­rásin eins og hún átti sér stað þessa nótt:

Það hefur eng­inn haft meiri þol­in­mæði og lang­lund­ar­geð gagn­vart föð­ur­bróður mínum í gegnum ára­tug­ina en hann pabbi. Eftir því sem Valur  hefur elst hefur sífellt fleira og fleira fólk hætt umgengni við hann. Sumir vegna ofbeld­is­brota og aðrir vegna þess að þeir hafa ein­fald­lega fengið nóg af heimtu­frekj­unni, barna­legri þrjósk­unni, þörf­inni fyrir að hafa alltaf rétt fyrir sér og oft á tíðum hrana­legrar fram­komu. Þrjósk­unni, sem alltaf hefur verið svo sterk að Valur hefur rif­ist þar til við­mæl­and­inn gefst upp. Uppgjöf við­mæl­and­ans hefur alltaf verið honum mik­il­væg­ari heldur en sann­leiks­gildi eða rétt­mæti frá­sagn­ar­innar og hefur fólki sem upp­lifir Val sem rudda í fram­komu því fjölgað með hverju árinu. Þetta er það sem hefur ein­kennt Val alla tíð og allir sem kynnst hafa Val þekkja þessa hlið á honum. Þetta hefur alltaf verið tengt við ein­setu­mann sem býr afskekkt og eng­inn lagt frek­ari merk­ingu í það. Það er ekki fyrr en í dag sem ég átta mig á því að þetta stórfurðu­lega hátt­ar­lag Vals, sem ein­kennir hann og hefur orðið til þess að vax­andi fjöldi fólks hefur forð­ast hann í gegnum árin, er ekki eðli­leg fyrir ein­stæð­ing eða nokkurn annan. Eftir því sem fleiri og fleiri fjar­lægð­ust Val þá fjölg­aði pabbi heim­sókn­unum til hans enda held ég að pabbi hafi verið eini mað­ur­inn sem hefur tekið þess­ari ofstæk­is­frekju og dyntum með jafn­að­ar­geði. Þakk­lætið er svo sýnt með því að móðga föður minn, drepa hann og síðan leggja sig allan fram um per­sónu­níð.

„Ég hef haft sam­band við fjölda fólks sem þekkt hafði föður minn frá tví­tugu til að full­vissa mig um að eðli föður míns hafi alltaf verið eins“

Þar sem ég þekkti báða máls­að­ila vel er atburða­rás þessa kvölds aug­ljós fyrir mér og okkur systkin­unum. Það eru mjög fá mál sem hefðu getað valdið því að pabbi stendur upp og er á förum þessa nótt. Aðdrótt­anir eða niðr­andi ummæli í garð fjöl­skyldu­með­lima föður míns er það sem kemur til greina. Þetta veit ég því pabba þekkti ég vel. Ég hef haft sam­band við fjölda fólks sem þekkt hafði föður minn frá tví­tugu til að full­vissa mig um að eðli föður míns hafi alltaf verið eins. Við­brögðin við frekju og ofstæki Vals þetta kvöld voru að standa upp og fara, eins og hann hafði gert margoft áður. Það er ástæða þess að Valur ræðst á hann og slátrar honum við úti­dyra­hurð­ina, með höf­uðið í átt að úti­dyra­hurð­inni, en ekki í eld­hús­inu. Árásir Vals hafa alltaf verið eins í gegnum tíð­ina; til­efn­is­lausar, kaldar og algjör­lega upp úr þurru enda einn af við­ur­kenndum þáttum sið­blindu. Verksum­merki á vett­vangi, rann­sókn á vett­vangi og krufn­ing gefa grein­ar­góð ummerki um þetta.

Valur ræðst að föður mínum og kemur honum að óvörum og lemur hann niður á fjóra fætur. Þá traðkar Valur á honum þangað til faðir minn limp­ast niður og leggst út af flatur. Þar traðkar Valur ítrekað á and­liti föður míns og sparkar svo fast í háls hans að hann háls­brotnar. Svona átök reyna mjög mikið á þol ein­stak­lings og því tekur hann því nokk­urra mín­útna pásu. Hann  vill síðan full­vissa sig um að hann hafi örugg­lega drepið föður minn og því hefst hann handa við að margtraðka á rif­beinum föður míns og hættir ekki fyrr en rif­beinin eru komin í mél. Einhvers staðar í miðjum hama­gangnum stígur hann í blóð­poll föður míns og smyr blóði á þykku peys­una sem hann var í. Eftir að Valur hefur loks­ins fengið sína útrás fer hann ann­að­hvort út eða stendur í fleiri klukku­tíma yfir föður mínum á meðan hann ræður ráðum sínum. Eftir nokkrar hag­ræð­ingar á vett­vangi fer hann inn í rúm þar sem hann veldur sjálfum sér áverkum á and­liti og brýtur gler­augun sín.    

Ábyrgð varpað á þann látna 

Valur hefur frá því í upp­hafi gert allt til að neita ábyrgð. Í sím­tali við Neyð­ar­lín­una reynir hann að útskýra og leggja áherslu á að lög­reglan verði að vera hæf sínu starfi og megi ekki draga álykt­anir um að morð hafi verið framið, þótt allt bendi til þess. Þetta sím­tal fór fram áður en lög­reglan mætti á svæðið.

„Í sím­tali við Neyð­ar­lín­una reynir hann að útskýra og leggja áherslu á að lög­reglan verði að vera hæf sínu starfi og megi ekki draga álykt­anir um að morð hafi verið framið“

Valur fer einnig mjög snemma í ferl­inu að halda því fram að pabbi hafi tryllst, hann hafi bara orðið að svara fyrir sig og það hefði endað svona. Pabbi á að hafa ráð­ist á Val og í sjálfs­vörn traðk­aði Valur hann til bana. Lengi framan af var Valur að impra á því við lög­reglu­menn­ina hvenær þeir héldu að hann kæm­ist heim, hvort það yrði í dag eða á morgun, og skömmu síðar finnur hann því allt til for­áttu að hluti rann­sókn­ar­innar myndi bíða fram yfir páska, því það þýddi að hann kæm­ist seinna heim. Í gegnum allar yfir­heyrsl­unar, í sam­skiptum við lög­menn­ina sína, rétt­ar­meina­fræð­ing og fyrir framan dóm­ara hefur hann lagt fullan þunga á að útskýra afhverju pabbi hafi átt sök á atburðum næt­ur­innar. Sú frá­sögn hefur tekið stakka­skiptum frá síð­ustu páskum og gerir enn.

Valur lét sér ekki nægja að vera með yfir­lýs­ingar við yfir­heyrslur því þegar gæslu­varð­hald­inu var aflétt var það hans fyrsta verk að safna sér stuðn­ings­mönnum. Ekki veit ég hvort þau trúðu lyg­inni strax í upp­hafi en þau hafa alla­vega sinnt vel því hlut­verki að vera stuðn­ingur við kald­rifj­aðan morð­ingja og lygara og aldrei slegið af skömmum og sví­virð­ingum í garð okkar systk­in­anna. Ég veit það þó fyrir víst að síð­ustu skrif mín hafa ekki valdið iðrun, sam­kennd eða eft­ir­sjá hjá öllu þessu fólki, heldur heift yfir því hvað ég sé ósvíf­inn að tjá mig um raunir okkar systk­in­anna. Það var und­ar­leg til­finn­ing til að byrja með þegar við fengum veður af því að hinir og þessir fóru að ger­ast tíðir heim­sókn­ar­gestir hjá Val. Það var óneit­an­lega sér­stök til­finn­ing að horfast í augu við það að fólk væri til­búið að standa við hlið morð­ingja gegn okkur. Skyn­semin sagði okkur að láta það sem vind um eyrun þjóta þrátt fyrir mikla reiði. Upp­haf­lega vorum við svo barna­leg að trúa því að þetta fólk gæti stillt sér upp á miðj­unni, sýnt Val sam­kennd og verið honum til staðar en svo hjálpað honum að átta sig á því hvað hann væri búinn að gera.

Það var önnur og enn und­ar­legri til­finn­ing þegar fóru að ber­ast sögur og frá­sagnir af atburðum þessa kvölds í beinni mót­sögn við rann­sókn máls­ins. Fyrst var því haldið fram að pabbi hefði dáið brenni­víns­dauða frammi í and­dyri, næsta útgáfa var sú að þeir hafi sleg­ist og pabbi dáið seinna um nótt­ina og sú útgáfa fór af stað eftir að lög­reglan var búin að kom­ast að því að Valur drap hann í and­dyr­inu. Í þriðju útgáf­unni var því stað­fast­lega haldið fram að þetta hefði verið sann­gjarn slagur en pabbi hefði bara orðið undir. Það passar ekki við lík­ams­burði beggja aðila, því pabbi var naut­sterkur og í topp­formi en Valur búinn að vesl­ast heil­mikið upp síð­ast­liðin tíu ár. Samhliða öllu þessu fór svo fram frétta­fluttn­ingur af mál­inu sem var frekar skrýt­inn og okkur varð fljótt ljóst að það var ein­göngu málsvörnin sem kom fór í fjöl­miðla.

„Síðustu skrif mín hafa ekki valdið iðrun, sam­kennd eða eft­ir­sjá hjá öllu þessu fólki, heldur heift yfir því hvað ég sé ósvíf­inn að tjá mig um raunir okkar systk­in­anna“

Sem dæmi má nefna dag­inn sem lög­reglan fékk stað­fest frá rétt­ar­meina­fræð­ingi að Valur hefði traðkað pabba til bana í þvotta­hús­inu. Eina frétt dags­ins var sú að pabbi hafi neytt Val til að fá sér í glas, enda hafi Valur verið hættur að drekka. Ásetn­ingur Vals til að stunda bind­indi fór fram­hjá Erni Lýðssyni sem var með þeim í byrjun kvölds­ins örlaga­ríka. Andmæli Vals gegn áfeng­is­neyslu voru þá ekki kröft­ugri en svo.

Svona hélt þetta áfram í fleiri mán­uði. Eftir því sem rann­sóknin þok­að­ist áfram gerðum við okkur vonir um að þetta fólk og föð­ur­bróðir minn tækju að sjá að sér og þessu afneit­un­ar­á­standi myndi ljúka. Við töldum strax í upp­hafi að besta leiðin væri að láta þetta óaf­skipt en það átti eftir að reyn­ast ein stærstu mis­tök okkar. Alltaf urðu sögu­sagn­irnar svæsnari og svæsnari og það virt­ist sem föð­ur­bróðir minn og sér­trú­að­ar­söfn­uð­ur­inn í kringum hann tækju svara­leysi okkar sem fríu spila­borði. Sögurnar tóku þá einnig breyt­ingum eftir því efni sem barst í fjöl­miðla, stað­festan var ekki meiri en það.  Sögurnar fóru úr því að þeir hefðu rif­ist um kvöldið yfir í það að pabbi hefði kafnað í eigin ælu í þvotta­hús­inu. Forsenda þeirrar sögu var krufn­ing og nið­ur­staða rétt­ar­meina­fræð­ings­ins Kunz, að eftir ítrekuð höf­uð­högg fékk pabbi heila­hrist­ing sem fram­kall­aði upp­köst sem hann náði ekki að koma frá sér.

Ósvífið fólk, og Valur sjálfur, hefur síðan með versn­andi mál­stað ekki hikað við að reyna að ljúga því að Valur hafi ein­ungis verið að reyna end­ur­lífgun með seinni árásinni, þar sem hann traðk­aði á rif­beinum hans.  Þá á hann að hafa stigið í blóð­poll­inn við að athuga með lífs­mark föður míns, sem nú er orðið ljóst að hann laug því til líka. Valur og sér­trún­að­ar­söfn­uð­ur­inn hafa ekki verið að láta sann­girni, sam­kennd, sann­leika né sönn­un­ar­gögn þæl­ast mikið fyrir sér. Samhliða æru­meið­ingum og lygum varð­andi atburði þess­arar nætur, var nær­tæk­ast að ganga alla leið. Bæði Valur og þetta fólk hafa lagt nótt við nýtan dag við að gera föður mínum upp ótrú­leg­ustu sakir. Valur gengur síðan svo langt við yfir­heyrslur, vit­andi það að við systk­inin munum ekki fá máls­skjölin í okkar hendur, að hann reki minni til að eitt­hvert okkar systk­in­anna hafi sagt honum nýlega frá því að pabbi hafi tryllst í gleð­skap og að við höfum eytt kvöld­inu í að róa hann niður. Þetta segir Valur ein­göngu til þess að ýta undir að ekki hafi verið óal­gengt að faðir minn tryllt­ist. Þetta eru aug­ljós­lega upp­lognar ásak­anir manns sem tekur enga ábyrgð á verkum sínum og hefur aldrei gert. Við systk­inin vitum að þetta er til­hæfu­laust en ef eitt­hvað hefði verði til í þessu þá hefðum við aldrei farið að ræða það við marg­faldan ofbeld­is­mann á borð við föð­ur­bróður okkar.

„Eftir því sem rann­sóknin þok­að­ist áfram gerðum við okkur vonir um að þetta fólk og föð­ur­bróðir minn tækju að sjá að sér og þessu afneit­un­ar­á­standi myndi ljúka“

Yfir­heyrsl­urnar yfir Val eru væg­ast sagt fróð­legar. Þar koma fram mál sem Valur hefur í ára­tugi ekki þóst muna eftir hent­ug­leika, en eru ekki gleymd­ari en svo að hann heim­færir það á pabba. Þegar maður heldur að Valur geti ekki sokkið dýpra þá tekur hann upp á því að yfir­færa alla sína ofbeld­is­hneigð yfir á föður minn og sam­tímis eigna sér margar af meg­in­reglum föður míns sem hann hefur gagn­rýnt og hlegið að í ára­tugi. Enda hentar hans eigin hegðun ekki við rétt­ar­með­ferð.

Niðurstaða réttargeðmats 

Við rann­sókn svona mála er geð­mat oft nauð­syn­legt. Við systk­inin þekktum ekki vel til slíkra mála en vissum þó að margt athygl­is­vert ætti eftir að koma þar í ljós hjá Val. Við höfum reyndar alla tíð vitað það en þó ekki vitað hversu slæmir hlut­irnir raun­veru­lega eru fyrr en eftir morðið á föður okkar. Það reynd­ist okkur eins­konar vakn­ing. Nið­ur­staða rétt­ar­geð­mats átti þó eftir að gera fleiri en okkur kjaft­stopp, því þrátt fyrir fjölda ofbeld­is­verka sem Valur hefur gerst sekur um und­an­farna ára­tugi var ein­ungis bent á tvö til þrjú til­vik þar sem hann hafi mögu­lega reiðst óhóf­lega. Maður sem þónokkrum sinnum hefur tekið slíkan skapofsa­tryll­ing að engu lagi er líkt. Sam­ferða­menn Vals í hesta­ferð sáu sér til dæmis þann kost einan að kefla Val og geyma bund­inn yfir nótt, eftir skapofsakast þar sem hann snöggreidd­ist og ætl­aði sér að drepa mann. Árásin kom upp úr þurru og af til­efn­is­lausu.

Vítavert kæru­leysi og áhættu­hegðun gerði það að verkum að Valur hefur áður verið hárs­breidd frá því að bana föður mínum. Öll sér­viskan, allir kæk­irnar, áhættu­hegð­unin og frum­legar og hneyksl­an­legar aðferðir við aflíf­anir á dýrum; þetta eru þættir sem ein­kenna Val og allir sem hann þekkja kann­ast við. Þessir þættir komu ekki fram við rétt­ar­geð­mat. Til víð­tæk­ari grein­ingar á geðslagi Vals voru kall­aðir til tveir vinir hans, þeir sem fremstir hafa farið í flokki stuðn­ings­manna Vals og við æru­meið­ingar föður míns. Þrátt fyrir að þeir hafi margoft hneyksl­ast á hegðun Vals í gegnum tíð­ina og þá sér­stak­lega þá hegðun hans að þykj­ast ekk­ert muna dag­inn eftir drykkju, mæta þeir báðir í við­tal til geð­læknis, full­yrða þeir að Valur hafi oft þjáðst af minnis­leysi eftir drykkju. Ég hef per­sónu­lega heyrt þá gagn­rýna og stundum hlæja að þess­ari barna­legu hegðun, að rétt­læta gjörðir sínar með minnis­leysi dag­inn eftir. En við rétt­ar­geð­mat frömdu þeir mein­særi og könn­uð­ust báðir við að Valur missti oft minnið þegar hann fengi sér í glas. Nið­ur­staða rétt­ar­geð­mats­ins var auð­vitað í takt við for­sendur, þökk sé vand­lega sam­hæfðum aðgerðum. Þeir  pössuðu sig samt á að segja eitt­hvað nei­kvætt og nið­ur­staðan var sú að Valur ætti sér enga for­sögu ofbeld­is­brota og mjög lítið í fari hans áður benti til við­líka hegð­unar. Með mein­særi tveggja vitna var minnis­leysi við drykkju stað­fest. Hegðun hans þetta kvöld væri því ekki hægt að útskýra að neinu leyti nema vegna þess að hann var undir áhrifum áfengis.

„Ég hef per­sónu­lega heyrt þá gagn­rýna og stundum hlæja að þess­ari barna­legu hegðun, að rétt­læta gjörðir sínar með minnis­leysi dag­inn eftir“

Ein­hverjir, alla­vega sér­trún­að­ar­söfn­uð­ur­inn í kringum Val, munu halda því fram um aldur og ævi að Valur sé dæmi um mann sem hefði bara átt að hætta að drekka fyrir löngu. Eðli Vals afhjúp­ast þó ekki bara við drykkju. Eitt af ein­kennum þess sem þjá­ist af sið­blindu er stjórn­leysi með víni en þó einnig þegar ein­stak­lingur er alls­gáður. Valur á fjölda­mörg slík dæmi. Þar má nefna þegar bróðir minn fór í heim­sókn til Vals og umrætt þvotta­hús var í blóð­slettum upp um alla veggi. Þá hafði Valur slátrað flæk­ingsk­etti, sem fór í taug­arnar á honum, með bar­efli sem á ein­hvern und­ar­legan hátt setti blóð út um allt. Annað dæmi er óum­deil­an­lega bréfið sem hann, 33 ára, sendi 19 ára frænku sinni, sem þá stund­aði nám við Mennta­skól­ann á Laug­ar­vatni. Hann byrj­aði á að útlista hvað hann væri hrif­inn af henni. Síðan bauð hann henni að ger­ast frilla sín og end­aði bréfið á að honum þætti rétt­ast að vara hana við, því ef hann fengi tæki­færi til væru sterkar líkur á því að hann stæð­ist ekki freist­ing­una og nauðg­aði henni. Hún hefur allar götur síðan haft varan á sér í sam­skiptum við þennan mann.

Sýnir enga iðrun 

Eftir að hafa lesið okkur til og ráð­fært okkur laus­lega við sér­fræð­inga er okkur hreint ekki skemmt. Ein­föld­ustu kækir, hegðun og atferli föð­ur­bróðar okkar eru ein­kenni sem geð­læknar nota til að meta sið­blindu. Þættir eins og hegðun hans í garð ann­arra sem hann metur sér æðri, hvernig hann beitir augn­sam­bandi sem stjórnun, frá­sagn­ar­stíll og hvernig hann vekur eft­ir­vænt­ingu með frá­sagn­ar­stílnum, sem allir sem hafa kynnst honum þekkja, eru allt saman und­ir­ein­kenni sið­blindu. Í raun­inni er það svo að þau ein­kenni sið­blindu sem hann upp­fyllir ekki að öllu leyti eru vand­fundin. Hann sýnir algjöran skort á eft­ir­sjá og sekt­ar­kennd og hann virð­ist líta svo á að atburðir þess­arar nætur séu að öllu leyti föður mínum að kenna, þrátt fyrir að hann hafi ráð­ist á bróður sinn og traðkað til bana. Nið­ur­staða geð­læknis stað­festi val­kvætt minni Vals sem ítrekað minnis­leysi og að engin fyrri dæmi fynd­ust um slíka hegðun hjá honum.

Sé ein­hver enn í vafa, þá taka við­brögð Vals fyrir dómi af allan vafa, því þar gat hann ekki stillt sig um að skæl­brosa. Valur sýndi ein­ungis í tvígang svip­brigði við alla máls­með­ferð­ina fyrir hér­aðs­dómi og þetta var fyrra skiptið. Ég þekki þetta bros og hef séð það ósjaldan.  Val hafði tek­ist að leysa erfitt verk­efni algjör­lega sér í hag. Nið­ur­staðan var svo hag­stæð honum að hann gat ekki stillt sig um að brosa. Seint teld­ist ég hafa sér­fræði­þekk­ingu á geð­sjúk­dómum en ég myndi telja það sjálf­gefið að eitt­hvað hafi farið úrskeiðis við rétt­ar­geð­mat þegar maður sem er sak­aður um að drepa bróður sinn getur ekki stillt sig um að brosa yfir nið­ur­stöðu rétt­ar­geð­mats.

„Ég þekki þetta bros og hef séð það ósjaldan. Val hafði tek­ist að leysa erfitt verk­efni algjör­lega sér í hag.“

Furðuleg nið­ur­staða geð­mats er eitt en annað er hvað úr því var gert. Meinsæri vina Vals og hans sjálfs varð til þess að ofbeld­issaga hans var á þá vegu að ekk­ert í fari hans fyrir föstu­dag­inn langa hefði getað und­ir­strikað svona hegðun. Fram­burður þeirra þriggja var notuð sem for­saga Vals og þar sem ekk­ert var að finna þar sam­kvæmt þeim, var Valur tal­inn alheil­brigður á geði.

Undir lok rétt­ar­hald­anna sat rétt­ar­meina­fræð­ing­ur­inn fyrir svörum. Sebast­ian Kunz er kenn­ari í rétt­ar­meina­fræði og mik­ill nákvæmn­is­maður. Fyrir dómi heyrð­ust ein­ungis þrjár útgáfur af svörum og öll jafn ákveðin; já og löng rök­semd­ar­færsla í kjöl­farið, það er ekki hægt að greina það í þessu til­viki og for­sendur þess, og síðan neitun og á hvaða for­sendum.

Eftir dramat­íska yfir­ferð á ensku sem þýdd var sam­tímis yfir á íslensku var farið í gegnum morðið á föður mínum skref fyrir skref. Tíminn sem við systk­inin höfðum beðið eftir í sex mán­uði. Opin­berun krufn­ing­ar­innar yrði til þess að áróð­ur­inum, per­sónu­níð­inu og róg­burð­inum í garð föður okkar myndi loks­ins ljúka. Við­brögðin voru dramat­ísk­ari en við áttum von á. Blaða­menn­irnir hættu að skrifa og voru sem stein­runnir, laga­nemar sem fylgst höfðu með, yfir­gáfu sal­inn grát­andi og sjálft fólkið sem er búið að sýna okkur yfir­gengi­legan hroka, frekju og stundað grófan róg­burð í garð föður míns tárað­ist og átti erfitt með að fylgj­ast með. Sá eini sem sýndi lítil við­brögð í rétt­ar­salnum var Valur sjálfur. Okkar vænt­ingar um að sann­leik­ur­inn kæmi loks­ins fram í heilu lagi varð þó að engu þar sem blaða­menn­irnir sem staddir voru í rétt­ar­sal voru í of miklu ójafn­vægi til að fylgj­ast með. Þarna fékkst stað­fest­ing á því sem við systk­inin höfum heyrt frá fag­að­ilum sem starfa við morð­mál; að morðið á föður okkar skip­ast í flokk með ljót­ustu morðum sem hafa verið framin í seinni tíð. Tárvot og frosin and­lit reyndra blaða­manna við rétt­ar­höldin voru end­an­leg stað­fest­ing okkar á því.

Rétt­ar­meina­fræð­ingur greindi auð­vitað frá dán­ar­or­sök fyrir Hér­aðs­dómi. Eftir ítrekuð högg og traðk á höfði föður míns áttu sér stað miklar inn- og útvortis blæð­ingar og heila­hrist­ingur. Hann liggur með­vit­und­ar­laus á gólf­inu eftir höf­uð­höggin og kastar upp, það eru eðli­leg við­brögð við heila­hrist­ingi. Þar sem hann er með­vit­und­ar­laus þá nær hann ekki að koma því frá sér og kafnar með kokið fullt af ælu. Þá bætti rétt­ar­meina­fræð­ingur því við að hefði ekki verið fyrir þessa dán­ar­or­sök þá hefði ein­hver hinna lífs­hættu­legu áverk­anna gert það. Til við­bótar við höf­uð­á­verk­ana var hann háls­brot­inn, rif­beinin stung­ust inn í annað lungað og gegnum lifur. Sebast­ian Kunz full­yrðir fyrir dómi að hefði höf­uð­á­verki föður míns ekki dregið hann til dauða þá hefði lifr­ar­blæð­ingin gert það og hinir áverk­arnir hafi að auki verið lífs­hættu­legir. Eins og við má búast spyr verj­andi Vals rétt­ar­meina­fræð­ing hvort áfengi hafi átt þátt í dauða föður míns. Kunz fer þá í gegnum áverka föður míns aftur og svarar því síðan til að áverk­arnir hafi verið svo alvar­legir að það hefði ekki haft nein áhrif, en eftir ítrekun frá verj­anda Vals svarar hann því auð­vitað til að áfeng­is­magn í blóði hjálpi aldrei til í svona málum. Það hafi þó ekki nein úrslita­á­hrif enda væru fleiri lífs­hættu­legir áverkar en bara heila­hrist­ing­ur­inn sem faðir minn fékk. Þessu til við­bótar upp­lýsir Kunz rétt­inn að árás­irnar á föður minn voru tvær en ekki ein þessa nótt, það verður til þess að föð­ur­bróðir minn snöggreið­ist og virð­ist mjög hissa. Þetta var seinna skiptið sem hann sýndi við­brögð fyrir dómi.

„Því til við­bótar upp­lýsir Kunz rétt­inn að árás­irnar á föður minn voru tvær en ekki ein þessa nótt“

Mannorðið svert

Allt frá morð­inu á föður mínum hefur fólkið í kringum Val unnið að því hörðum höndum að sann­færa sem flesta um að dán­ar­or­sök föður míns hafi verið áfeng­is­neysla og upp­köst um nótt­ina. Þó að meira og meira sé upp­lýst varð­andi atburði næt­ur­innar hefur ekki hvarflað að fólk­inu í kringum föð­ur­bróður minn að hætta þessum fárán­legu rétt­læt­ingum og útskýr­ingum heldur er sami boð­skapur bor­inn út með vax­andi örvænt­ingu og heift. Þessi orðrómur er sá sem kom einna fyrst á kreik og það er ekki fyrr við systk­inin fórum að svara fyrir okkur sem hann fór að missa hljóm­grunn.

Þrátt fyrir útlistun rétt­ar­meina­fræð­ings á áverkum pabba kemst Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé hægt að líta fram­hjá því að áfeng­is­magn föður míns hafi átt þátt í dauða hans og þar með gefur dóm­ur­inn sér for­sendur sem rétt­ar­meina­fræð­ingur neitar að stað­festa. Það er mjög sér­stakt að sitja undir því að Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þrátt fyrir ítrekað traðk á föður mínum, miklar blæð­ingar, inn­vortis og útvortis, mik­inn blóð­missi, háls­brot, brotin rif­bein sem sting­ast í gegnum lifur og valda ofsa­legum blæð­ingum og gati á lunga, þá væri pabbi í raun lífs í dag. Það var nið­ur­staða Hér­aðs­dóms. Hefði pabbi ekki fengið sér í glas með manni sem hann hefði ekki getað gert sér í hug­ar­lund að myndi slátra sér í sturlun­ar­kasti á leið út af heim­il­inu þessa nótt, þá væri hann lif­andi enn í dag. Ólíkt öllum öðrum sam­bæri­legum til­vikum þeirra sem hljóta slíka áverka er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Suð­ur­lands þvert á vitn­is­burð rétt­ar­meina­fræð­ings.

Breyttur framburður 

Þrátt fyrir að fram­burður Vals hafi enn tekið breyt­ingum fyrir mál­flutn­ing í Lands­rétti, þá stang­ast hann ennþá á við öll sönn­ung­ar­gögn á vett­vangi. Nýjasta útskýr­ing Vals er að ráð­ast af sem mestum mætti á fram­burð rétt­ar­meina­fræð­ings og gera honum upp eins ann­ar­legar for­sendur og hann getur. Þarna er hann að gera rétt­ar­meina­meina­fræð­ingnum það sama og hann hefur gert okkur systk­inum og föður okkar und­an­farið ár. Þar sem honum mistókst í Hér­aðs­dómi að sýna fram á átök um nótt­ina er nýja útgáfan sú að faðir okkar hafi, þrátt fyrir að hafa verið á leið­inni út úr húsi, skallað Val svo harka­lega að hann varð sjálfur með­vit­und­ar­laus.

„Þarna er hann að gera réttar­meina­fræð­ingnum það sama og hann hefur gert okkur systk­inum og föður okkar und­an­farið ár“

Pabbi, sem var mjög jafn­lyndur maður, á að hafa ráð­ist á mann sem þekktur er fyrir skapofsa og tryll­ingsköst, en að sá síð­ar­nefndi hafi þó haldið ró sinni þetta kvöld. Eftir að pabbi rot­aði sjálfan sig hélt sjálfs­vörn ofbeld­is­manns­ins áfram og traðk­aði hann því föður minn til bana með góðri pásu á milli. Valur hefur alveg frá fyrstu yfir­heyrslum beitt öllum bola­brögðum sem hann er fær um til að sverta ímynd föður míns. Við systk­inin erum ekki und­an­skilin sem skot­spónn í þeim rétt­læt­ingum. Fljót­lega eftir að pabbi var drep­inn óskaði elsti bróðir minn eftir því að hitta Val og ég gerði slíkt hið sama tveimur vikum seinna. Því var að sjálf­sögðu hafnað en auð­vitað kvis­uð­ust út sögu­sagnir frá stuðn­ings­mönnum hans þess efnis að hann hefði reynt allt til að hitta okkur og sækj­ast eftir ein­hvers­konar fyr­ir­gefn­ingu en við hefðum verið honum fjand­sam­leg og neitað að hitta hann. Þá nefndi hann okkur sem heim­ild fyrir ofbeld­is­hneigð föður okkar við yfir­heyrslur sem átti sér auð­vitað enga stoð í raun­veru­leik­anum.

Við vitn­is­burð sinn fyrir dómi var Valur minntur á sann­sögli við vitn­is­burð. Við systk­inin sáum auð­vitað strax að svo var ekki til­fellið nema fyrstu tvær mín­út­urnar þegar kafl­anum um bremsu­við­gerðir lauk. Ég get ekki sagt að það hafi verið auð­veld staða að sitja undir löngu máli um hvernig atburð­irnir þetta kvöld hefðu æxl­ast, sem voru upp­spuni frá rótum og pössuðu hvorki við per­sónu föður míns, né Vals. Undir lok langs vitn­is­burðar horfir Valur í and­lit dóm­ar­ans og til­kynnir honum að þrátt fyrir stað­fest­ingu við rétt­ar­mat um að hann hefði aldrei fundið fyrir sökn­uði til neins þá hefði hann átt mjög erfitt og fyndi fyrir miklum sökn­uði til föður míns. Svo miklum að hann hefði ekki einu sinni treyst sér að opna mál­skjölin til að kynna sér sönn­un­ar­gögnin. Þetta segir hann og horfir beint í augun á dóm­ar­anum. Þetta kom okkur í opna skjöldu. Þarna vorum við systk­inin enn orð­laus­ari en áður og jókst það síðan þegar hann fer beint í sætið sitt að lok­inni yfir­lýs­ingu sinni, tekur báðar möpp­urnar með mál­skjöl­unum úr höndum lög­fræð­ings síns, lítur á kjöl­inn á þeim og velur aðra þeirra og flettir beint í miðja aðra möpp­una með máls­gögn­unum að myndum sem hann þurfti að benda verj­anda sínum á. Föð­ur­bróðir minn, sem hafði ekki treyst sér til að skoða gögnin fram að þessu, fletti beint á réttan stað í tæp­lega 900 blað­síðna máls­gögnum og dóm­ar­inn sem skip­aður var við rétt­inn horfði á hann allan tím­ann. Þarna sýndi Valur að hann var vel að sér í gögn­unum, hafði und­ir­búið vörn sína vel og laug því aug­ljós­lega fyrir dómi. Hann hafði sann­ar­lega kynnt sér gögnin.

„Ég get ekki sagt að það hafi verið auð­veld staða að sitja undir löngu máli um hvernig atburð­irnir þetta kvöld hefðu æxl­ast“

Ég hef mikið hugsað hvort þetta sé af sama meiði og þau hat­urs­fullu augna­ráð sem hann hefur nýtt hvert tæki­færi til að sýna okkur í þau skipti sem dóm­ari yfir­gefur rétt­ar­sal­inn. Ég hef reyndar ekki enn áttað mig á hvort það sé til þess fallið að hóta okkur eða hvað, en hann skilur alla­vega ekki af hverju við erum honum svona reið.

Að iðrast en krefjast sýknu  

Vörn föð­ur­bróður míns hefur snú­ist um ósann­indi, lygar, róg­burð og rangar sak­ar­giftir í garð föður míns og per­són­u­árásir á okkur systk­inin. Öllum bola­brögðum sem Valur er fær um að upp­hugsa hefur verið beitt. Vörn Vals hefur gengið út á að krefj­ast sýknu, reyna að sýna fram á að ein­hver annar gæti hafi verið að verki en samt seg­ist hann iðr­ast gjörða sinna. Hvernig fer það saman að krefj­ast sýknu og iðr­ast gjörða sinna? Sjálf­sagt þarf maður að vera búinn að leggja stund á lög­fræði í fleiri ár til að skilja hvernig það komi heim og saman. Þrátt fyrir að útgáfur Vals á atburðum þessa kvölds séu farnar að telja í tugum er því haldið fram fyrir dómi að hann hafi verið heið­ar­legur og sam­starfs­fús.  

Eitt af sér­sviðum Vals í gegnum tíð­ina hefur án efa verið aflífun á skepnum. Hann hefur stúd­erað heila­hvel, slag­æðar, stað­setn­ingu á hjörtum og þar fram eftir göt­unum í flestum skepnum. Ein­stakur per­sónu­kuldi Vals og hefur gert það að hann hefur sér­stakt yndi af aflíf­unum á skepnum. Þetta hafa ekki alltaf verið við­ur­kenndar aðferðir og ýmsum áhöldum hefur verið beitt í gegnum tíð­ina, stundum með þeim afleið­ingum að eig­endum skepn­anna sundl­aði. Dómsorð Hér­aðs­dóms komu því okkur veru­lega á óvart. Dómurinn metur það svo að Val hefði ekki mátt verða ljóst að bani hlyt­ist af með því að traðka ítrekað á föður mínum, taka sér góða pásu og halda svo áfram. Ég vitna í orð eins sem komið hefur að máli við mig eftir að dómur féll og þekkir Val mjög vel: Ef Valur er ekki tal­inn fær um að vita hverjar afleið­ingar svona árásar eru, þá er það eng­inn.

Þrátt fyrir að skiptin sem Valur hefur næstum því orðið föður mínum að bana telji orðið þrjú; eitt af gáleysi og tvö af ásetn­ingi,  að ógleymdum löngum, földum ofbeld­is­ferli, þá er það ekki nóg til að vera dæmdur fyrir mann­dráp. Hér­aðs­dómur gengur svo langt að meta það Val til refsi­lækk­unar að hann hafi ekki stungið eða skotið, ein­ung­ist traðkað hann til bana. Pabbi fékk versta dauð­daga sem hugs­ast getur og það er metið morð­ingj­anum til refsi­lækk­unar.

Þó maður líti fram­hjá því að morðið á föður mínum kall­ist lík­ams­árás, þá höfum við systk­inin ekki kom­ist hjá því að hugsa þessa ein­földu stað­reynd:

- Refsiramm­inn í lík­ams­árás­ar­málum er 16 ár. Valur réð­ist tvisvar sinnum á pabba og traðk­aði hann til bana.
- Þrátt fyrir að dóms­málið sé komið á 2. stig í rétt­ar­k­ef­inu kemur fram­burð­ur­inn ekki enn saman við rann­sókn.
- Valur hefur eytt öllum sínum tíma í róg­burð og sam­hæf­ingu á frá­sögnum.
- Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands metur það sem svo að hann skuli sæta sjö ára fang­els­is­vist.

Þar með var það stað­fest, svona með­ferð kallar á ein­ungis sjö ára fang­els­is­vist. Ég hef ekki getað hætt að hugsa um hvaða skil­yrði þarf að upp­fylla til að ná hálfum ramm­anum, átta árum, og hvað þá 16 árum. Mig ein­fald­lega skortir hug­mynda­flug hvernig lík­ams­árás verður verri en sú sem hér um ræðir.

„Pabbi fékk versta dauð­daga sem hugs­ast getur og það er metið morð­ingj­anum til refsi­lækk­unar“

Sé þetta nið­ur­staðan, þá er ljóst að mál föður míns er orðið for­dæm­is­gef­andi varð­andi eft­ir­talin atriði:

  • Upplogið minnis­leysi og upp­login eft­ir­sjá er metin til sann­sögli við máls­með­ferð, þó svo við­mæl­andi breyti oft frá­sögn til að fegra atburði. Sak­born­ingi er frjálst að muna og upp­lýsa um atburði eftir hent­ug­leika en heldur samt ímynd heið­ar­legs manns.

  • Það eru engin við­ur­lög við því að sak­born­ingur fremji mein­særi við vitn­is­burð undir vök­ulu augu dóm­ara.

  • Áfeng­is­pró­senta er metin til refsi­lækk­unar. Því er mik­il­vægt að hella mann fullan fyrst, áður en þú drepur hann. Aðferðir skipta engu.

  • Per­són­u­árásir, lygar og róg­burður gera ekk­ert nema bæta mál­stað, sama hvort það er við yfir­heyrslur eða í garð aðstand­enda.

  • Og síð­ast en ekki síst. Ætlirðu þér að drepa ein­hvern þá er mik­il­vægt að nota ann­að­hvort engin áhöld eða fela morð­vopnið. Sama hversu hrotta­legt morð er, þá dugir það ekki til ákæru nema morð­vopn finn­ist á vett­vangi.

Sjálfsvorkunn viðurkennd sem iðrun

Íslenska lög­reglan er mun fær­ari í rann­sókn í svona málum en ég þorði að vona og lög­regl­unni hefur tek­ist að afhjúpa atburða­rás næt­ur­innar nokkuð vel. Það er eft­ir­fylgn­inni sem er ábóta­vant. Ég geri Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands ekki upp ann­ar­legar for­sendur. Robert Hare, helsti sér­fræð­ingur nútím­ans í sið­blindu, full­yrðir að helstu sér­fræð­ingum og þar með talið sér sjálfum geti yfir­sést sið­blinda hjá fær­ustu ein­stak­ling­unum. Sið­blinda er senni­lega erf­ið­asti geð­sjúk­dóm­ur­inn í grein­ingu en með vand­legri sam­hæf­ingu hefur Val tek­ist að fela sitt rétta eðli og gera sér upp sekt­ar­kennd. Sið­blindum ein­stak­lingum tekst auð­veld­lega að vekja samúð ann­arra  en þeir eru ófærir um að vor­kenna öðrum en sjálfum sér. Föð­ur­bróður mínum hefur tek­ist að fá sjálfs­vor­kunn sína við­ur­kennda sem iðrun og á þeim for­sendum er hann dæmdur. Ég vissi af þessu fyrir máls­með­ferð og gerði mér vonir um að rann­sókn­ar­gögn lög­reglu yrðu fram­burði og leik­þætti föð­ur­bróður míns yfir­sterk­ari en sú varð ekki raunin.

Valur skilur ekki enn þann dag í dag af hverju við systk­inin erum honum svona reið. Sama dag og hann hélt lyga­ræð­una um atburði næt­ur­innar hittum við hann fyrir utan rétt­ar­sal þar sem hann var á leið í lög­reglu­bíl. Þar gerir hann til­raun til að taka í hend­ina á okkur systkin­unum og er hinn eðli­leg­asti. Óli, elsti bróðir minn, þrumar yfir hann hvort hann geri sér enga grein fyrir því hvað hann sé búinn að gera. Við­brögðin komu okkur öllum á óvart, Valur bæði snöggreidd­ist ósvífn­inni og til­kynnti okkur að hér með fari öll okkar sam­skipti í gegnum lög­fræð­inga sem var þó ekki mikil breyt­ing frá fyrri mán­uðum. Allar götur síðan hefur Valur farið mik­inn um ósvífni okkar systk­in­ana og gerir sér engan veg­inn grein fyrir hvers­vegna við erum svona ofsa­lega reið í hans garð. Stað­reyndin er ein­fald­lega sú að Valur iðr­ast einskis. Lengi vel von­aði ég að um afneitun væri að ræða en ef eitt­hvað er að marka Robert Hare þá er ekki svo.

Þegar við systk­inin fórum í Hér­aðs­dóm vorum við von­góð um að lygarnar, per­són­u­árás­irnar á okkur og pabba mundu líða undir lok. Eftir að hafa hlustað á lygarnar og ósam­ræmið við yfir­heyrslur, þar sem Valur laug meira að segja um að hafa athugað með lífs­mark, þá datt okkur ekki annað í hug en að það væri nóg til að hann fengi rétt­mætan dóm. Svo var ekki.

Lagaþrætur fyrir dómi 

Valur hefur sér­hæft sig í laga­þrætum og þeim ein­stak­lingum sem hafa náð að leika á yfir­völd á ein­hvern hátt, það hefur verið honum eins­konar sér­stakt áhuga­mál alla tíð. Valur lítur á svona með­ferð sem eins­konar leik, líkt og köttur að leika sér að mús. Valur bar sigur úr býtum við Hér­aðs­dóm eftir fleiri mán­aða und­ir­bún­ing. Þess vegna finnum við ekki fyrir sömu til­finn­ingu nú, þegar komið er að því að fara fyrir Lands­rétt, og við fundum þegar við fórum fyrir Hér­aðs­dóm. Í stað léttis við máls­með­ferð, líkt og við gerðum fyrir hér­aðs­dóm, finnum við systk­inin fyrir ofsa­kvíða, stressi og áhyggjum. Það er meira en nóg að missa föður sinn á þennan hátt og sitja undir öllum róg­burð­inum, en sigur Vals á rétt­ar­kerf­inu er ekki hlutur sem við eigum auð­velt með að lifa með til við­bótar.

„Í stað léttis við máls­með­ferð, líkt og við gerðum fyrir Hér­aðs­dóm, finnum við systk­inin fyrir ofsa­kvíða, stressi og áhyggjum“

Í rök­semda­færslu sinni fyrir Lands­rétti gengur Valur alla leið. Hann gagn­rýnir áverka föður míns og vill meina að hann hafi skallað sig nokkrum sinnum. Í nauð­vörn hafi hann traðkað hann til bana. Þá finnur hann áverka­lýs­ingu og blóð­ferla­grein­ingu allt til for­áttu. Hann krefst ennþá sýknu vegna þess að honum finnst ákæru­valdið ekki hafa staðið sig nógu vel og hans stærsta bar­áttu­mál ásamt sýknu er að fá lög­fræði­kostnað sinn úr rík­is­sjóði ásamt því að kom­ast undan því að greiða útfar­ar­kostnað föður míns. Að lokum gagn­rýnir hann högga­fjöld­ann við atlög­una sem hann vill vera sýkn­aður af. Róðurinn herð­ist hjá föð­ur­bróður mínum og hægt og rólega sýnir hann sitt rétta eðli. Þrátt fyrir allt þetta stendur málsvörn Vals enn og vill hann meina að hann hafi sýnt iðrun og eft­ir­sjá og verið heið­ar­legur. Þrátt fyrir það gagn­rýnir hann núna hvert og eitt ein­asta smá­at­riði í rann­sókn­inni sem hann getur tínt til.

Ætlunarverkið tókst

Stað­reyndin er ein­fald­lega sú að Val tókst að fela sitt rétta eðli í gegnum alla máls­með­ferð­ina fyrir Hér­aðs­dómi. Alveg í upp­hafi, við fyrstu yfir­heyrslur lög­reglu, var helsta áhyggju­efni hans hvenær hann kæmi heim til að laga skað­ann sem orð­spor hans hefði orðið fyrir. Valur var til­bú­inn að ganga alla leið í æru­meið­ingum í garð föður míns til þess að ná því tak­marki. Hann rak lög­fræð­ing­inn sinn, sem er jafn­framt einn af hans bestu vinum, af því hann var ekki nógu ósvíf­inn. Það verður að segj­ast eins og er að ætl­un­ar­verk Vals hefur tek­ist. Fólk hefur keypt sögu­sagnir af atburðum þess­arar nætur og hefur ekki ennþá með­tekið að Valur sé fær um svona ofbeld­is­verk. Fólk hefur einnig ekki með­tekið að um væri að ræða til­hæfu­lausa árás á mann sem var á förum þessa nótt. Eins ótrú­legt og það kann að hljóma þá er sið­blindur ein­stak­lingur und­an­tekn­ingin á því að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Þegar annar ein­stak­ling­ur­inn er sið­laus þá þurfa tveggja hliða deilur ekki að koma til. Heið­ar­legri og rétt­sýnni menn en pabbi eru vand­fundnir, þó hann hafi haft nóg af göllum eins og hver annar. Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil opin­ber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síð­ustu orðin um föður minn vera nafn­lausan róg­burð frá Val Lýðssyni og fylgjum hans og því sett­ist ég við skriftir.

Ég ætla að þakka hverjum þeim sem las og deilist að vild.  

Ingi R. Ragn­ars­son,
sonur Ragnars heit­ins Lýðs­sonar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár