Lánabækur, lekar og leynikisur

Julian Assange og Wikileaks eru aftur í heims­frétt­unum en á dög­unum var stofn­andi leka­síð­unnar hand­tek­inn í sendi­ráði Ekvador í Lundúnum eftir sjö ára langt umsátur lög­reglu. Gefin hefur verið út ákæra á hendur honum í Banda­ríkj­unum fyrir að birta leyniskjöl og fram­tíð hans er óráðin. Assange og Wikileaks hafa haft sterkar teng­ingar við Ísland frá því áður en flestir heyrðu þeirra getið á heims­vísu.

Lánabækur, lekar og leynikisur
Julian Assange Talsmenn tján­ingar- og fjöl­miðla­frelsis ótt­ast að Banda­ríkin reyni að svipta hann frels­inu fyrir mik­il­vægar upp­ljóstr­anir. Mynd: Wikimedia Commons / Cancillería del Ecuador

Rétt fyrir kvöld­fréttir Rík­is­sjón­varps­ins sem fóru í loftið kl. 19.00 þann 1. ágúst 2009 gengu lög­reglu­menn fylktu liði inn í Sjón­varps­húsið í Efsta­leiti og til­kynntu frétta­stjóra að honum væri ekki heim­ilt að flytja fréttir af lána­bók Kaup­þings sem áttu að vera uppi­staðan í frétta­tím­anum. Lögbann hafði verið sett á frétta­flutn­ing­inn að beiðni Kaup­þings í þeim til­gangi að koma í veg fyrir að flett væri ofan af lán­veit­ingum sem áttu eftir að leiða af sér ákærur frá sér­stökum sak­sókn­ara nokkru síðar. Alls hlutu 11 stjórn­endur og starfs­menn Kaup­þings sam­tals 35 ára fang­els­is­dóma fyrir brot sem tengd­ust starf­semi bank­ans.

Boga Ágústs­syni var greini­lega ekki skemmt þegar hann sett­ist niður til að lesa fréttir kvölds­ins og til­kynnti lands­mönnum að lög­reglan hefði stöðvað frétta­flutn­ing af þessu stóra máli í banka­hrun­inu. Hann las hins vegar ítrekað upp vef­slóð­ina www.wikileaks.org og slóðin birt­ist á skjánum. Fæstir höfðu þá heyrt af þeirri síðu en þar mátti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár