Sólveig og bæna­bit­arnir Sólveig les mikið um mat og mat­ar­menn­ingu. Stundum kemur fyrir að hún hrein­lega verður að prófa að búa það til sem hún les um. Þannig var það með kanadísku bæna­bit­ana sem hún réðst í að prufa um dag­inn. Þeir eru í senn fitu­ríkir, sætir og saltir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Handskrifaði uppskriftabækur fyrir dætur sínar

Sagn­fræð­ing­ur­inn og mat­gæð­ing­ur­inn Sólveig Ólafs­dóttir var fimmtán ára þegar mamma hennar lést. Með henni allar hennar ómót­stæði­legu upp­skriftir sem hún geymdi í höfði sér. Síðan þá hefur Sólveig sjálf leit­ast við að skrifa niður upp­skrift­irnar sem verða til í hennar höfði og hug­leið­ingar þeim tengdar.

Með mömmuHér er Sólveig með mömmu sinni, Björgu Magneu Magn­ús­dóttur.

Mamma Sól­veigar Ólafs­dóttur sagn­fræð­ings, Björg Magnea Magn­ús­dóttir, var ein af þessum mögn­uðu konum sem gátu galdrað fram flóknar kræs­ingar í eld­hús­inu að því er virt­ist fyr­ir­hafn­ar­laust. Þegar hún lést, þegar Sólveig var ekki nema 15 ára, fór með henni mikil þekk­ing af ýmsu tagi, ekki síst ara­grúi af ómót­stæði­legum mat­ar­upp­skriftum sem aldrei höfðu verið skrif­aðar niður á blað. „Það má segja að með henni hafi allur bernsku­mat­ur­inn farið,“ segir Sólveig. „Þegar ég svo í ein­hverri brjál­aðri fífldirfsku réði mig sem mat­ráðs­konu í veiði­hús þegar ég var tví­tug fór ég að reyna að grípa úr minn­inu þessar upp­skriftir hennar mömmu. Þar þurfti ég nefni­lega ekki bara að elda – ég hafði gaman af því – en líka að baka sem ég hafði aldrei verið mikið í. Með hjálp systra minna fór ég að skrifa niður upp­skriftir hennar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár