Sigríður Andersen segir af sér embætti en segist „stíga til hliðar“

Dóms­mála­ráð­herra vill skapa vinnu­frið vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra svarar engu um hvort hún eigi aft­ur­kvæmt. „Ég styð þessa ákvörðun ráð­herr­ans,“ segir for­sæt­is­ráð­herra.

Sigríður Andersen segir af sér embætti en segist „stíga til hliðar“

Sigríður Á. Andersen hefur ákveðið að segja af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Þetta til­kynnti ráð­herra á blaða­manna­fundi rétt í þessu. Hún seg­ist ætla að„stíga til hliðar“ meðan unnið verðiúr þeirri stöðu sem komin er upp vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vildi ekki svara því eftir fund­inn hvort Sigríður ætti aft­ur­kvæmt í rík­is­stjórn en sagði að boðað yrði til rík­is­ráðs­fundar. 

Sigríður sagði að við­horf gagn­vart per­sónu hennar „kunni að trufla þær ákvarð­anir sem þarf að taka“ vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

„Í því ljósi hef ég ákveðið að stíga til hliðar til þess að skapa vinnu­frið næstu vik­urnar, þar sem ein­hverjum spurn­ingum og álita­efnum verði svarað og leggja það til að þessum dómi verði skotið til yfir­rétt­ar­ins. Það verði þá í höndum ann­arra að vera í fyr­ir­svari fyrir dóms­mála­ráðu­neytið á meðan því máli vindur áfram.“ 

Sigríður tal­aði líkt og hún yrði aftur ráð­herra. „Ég mun stíga til hliðar á meðan að komið er til botns í þessu máli og hvernig þessu máli lyktar.“

Þetta er hins vegar ekki hennar að ákveða og sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er lít­ill áhugi á því meðal sam­starfs­flokka Sjálf­stæð­is­flokks­ins að Sigríður taki aftur við ráð­herra­emb­ætti. 

Gagnrýndi framsal dómsvalds

Á fund­inum gagn­rýndi hún Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu harð­lega og boð­aði að dóm­inum yrði áfrýjað til yfir­deildar dóm­stóls­ins. 

„Ég mun ekki láta það átölu­laust að dóm­stólar séu not­aðir í póli­tískum til­gangi,“ sagði hún. „Ég mun heldur ekki­láta það átölu­laust að íslenskir dóm­stólar fram­selji vald til túlk­unar á íslenskum lögum til erlendra dóm­stóla.“ 

Sigríður sagð­ist ekki hafa til­kynnt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um ákvörðun sína fyrir fund­inn. „Hún les bara um þetta í blöð­unum.“ 

Hins vegar hefði hún rætt við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Já, ég er auð­vitað í sam­ráði við hann.“

Sigríður kvaðst nú ætla til fundar við rík­is­stjórn­ina. Þrátt fyrir allt kveðst hún njóta stuðn­ings ann­arra en fárra sem létu per­sónu hennar trufla sig. „Ég lít nú svo á að ég njóti stuðn­ings rík­kis­stjórn­ar­innar. Ég nýt fulls stuðn­ings í mínum þing­flokki.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist styðja ákvörðun ráð­herr­ans. „Ég átti sam­tal við ráð­herr­ann í gær og auð­vitað lýsti ég áhyggjum af stöð­unni og ég styð þá nið­ur­stöðu sem hún hefur kom­ist að,“ sagði hún í við­tali á Alþingi eftir að dóms­mála­ráð­herra kynnti ákvörðun sína. „Ég styð þessa ákvörðun ráð­herr­ans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár