Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir íslenska ríkið brotlegt í Landsréttarmálinu

Lögbrot dómsmála­ráðherra við skipun Landsréttar­dómara leiddu af sér að brotið hefur verið gegn rétti dómþola til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir sjálf­stæðum og óvilhöllum dómstóli.

Íslenska ríkið braut gegn rétti manns til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir dómi þegar dómari sem dómsmála­ráðherra hafði skipað með ólögmætum hætti við Landsrétt dæmdi í máli hans.

Þetta er niður­staða Mann­réttinda­dómstóls Evrópu í dómi sem kveðinn var upp í Strassborg rétt í þessu. Telst Ísland hafa brotið gegn 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu en ákvæðið veitir hverjum þeim sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi réttinn til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir sjálf­stæðum og óvilhöllum dómstóli. 

„Sú staðreynd ein og sér að dómari, sem hefur ekki verið skipaður með löglegum hætti í skilningi 6. gr. sátt­málans, dæmi í sakamáli nægir til að komist sé að þeirri niður­stöðu að framið hafi verið brot gegn greininni í samræmi við grundvallar­reglur réttar­ríkisins,“ segir meðal annars í dóminum.  

Þótt málið varði að nafninu til dóm Arnfríðar Einars­dóttur í umferðar­laga­brotamáli Guðmundar Andra Ástráðs­sonar, skjólstæðings Vilhjálms H. Vilhjálms­sonar hæstaréttar­lögmanns fyrir Lands­rétti, hefur hinn nýuppkveðni dómur Mann­réttinda­dómstóls Evrópu gríðar­lega þýðingu fyrir íslenskt réttar­kerfi.

Annars vegar fyrir dómþola í Lands­rétti og hins vegar fyrir þá fjóra dómara sem Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra skipaði við dómstólinn í trássi við mat hæfnis­nefndar sumarið 2017. 

Eins og íslenskir dómstólar hafa marg­staðfest vanrækti dómsmála­ráðherra rannsóknar­reglu stjórnsýslu­réttar við skipun dómara í Landsrétt og sýndi ekki fram á að þeir dómarar sem hún valdi væru hæfustu umsækjendurnir. Fyrir vikið var brotið gegn öðrum umsækjendum um dómara­stöðurnar og hafa þeim verið dæmdar bætur.

Nú liggur fyrir að með lögbroti dómsmála­ráðherra og setu hinna ólöglega skipuðu dómara í réttinum hefur einnig verið brotið gegn mann­réttindum fólks sem hefur verið dæmt í Lands­rétti síðan dómstóllinn tók til starfa.

Má því vænta þess að farið verði fram á endur­upptöku og miska­bætur í fjölda mála sem fjór­menningarnir hafa dæmt. Af 61. gr. stjórnar­skrárinnar leiðir þó að dómurunum fjórum verður ekki vikið úr embætti nema með dómi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár