Veiðar á villtum dýrum tilgangslausir drápsleikir

Ole Anton Bielt­vedt, stofn­andi Jarð­ar­vina, er sann­færður um að sá dagur muni renna að litið verði á dýraát eins og mannát. Ekki sé eðl­is­munur á mann­eskjum og öðrum spen­dýrum. Hann ætlar sér að stöðva hval­veiðar hér við land.

Veiðar á villtum dýrum tilgangslausir drápsleikir
Kannski stigs­munur en ekki eðl­is­munur á okkur og dýr­unum Ole Anton Bielt­vedt ofbýður með­ferðin á villtum dýrum hér á landi og hyggst berj­ast fyrir hags­munum þeirra á meðan hann hefur afl til. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er algjör­lega sann­færður um að sá dagur muni renna að talað verði um dýraát nán­ast eins og mannát. Við erum að éta vöðva og hold af öðrum spen­dýrum, það er í raun og veru við­ur­styggð. Það verður litið á þetta með sömu fyr­ir­litn­ingu og er í dag litið á þræla­hald í Banda­ríkj­unum, til að mynda. Eftir þetta 100 til 200 ár tel ég að menn verði alveg hættir að éta dýr.“

Hvort þessi spá mun ganga eftir mun Ole Anton Bielt­vedt vit­an­lega ekki upp­lifa, ekki síst í ljósi þess að hann verður 77 ára á þessu ári. En hann ætlar sér að leggja sín lóð á vog­ar­skál­arnar til að þess að þetta verði sú fram­tíð sem við munum búa við. Til þess hefur hann stofnað nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Jarð­ar­vini og nýtir hann tíma sinn og fjár­muni í umtals­verðu mæli til þeirrar bar­áttu.  

Dýrin hafa tilfinningar og skynjun

Ole Anton Bield­vedt er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár