Spyr hvort „ofsinn á samfélagsmiðlum“ hafi þrýst upp leiguverði

Ásgeir Jónsson hag­fræði­dós­ent segir að Ísland þurfi á sterkum hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum að halda. Segist grátt leik­inn af net­verjum sem hafi um sig ljót orð.

Spyr hvort „ofsinn á samfélagsmiðlum“ hafi þrýst upp leiguverði
Ásgeir Jónsson Mynd: Af vef Háskóla Íslands

Ásgeir Jónsson, dós­ent við hag­fræði­deild Háskóla Íslands sem gegnt hefur hlut­verki for­seta deild­ar­innar und­an­farin ár, spyr hvort „ofs­inn á sam­fé­lags­miðlum“ hafi fælt fjár­festa frá leigu­fé­lag­inu Heima­völlum og ýtt upp leigu­verði. Þetta kemur fram í færslu sem hann birtir á Facebook. 

Ásgeir seg­ist hafa fengið hörð við­brögð þegar hann flutti erindi á morg­un­verð­ar­fundi Heima­valla í febr­úar 2018. Stundin fjall­aði um erindið á sínum tíma, en þar var­aði Ásgeir við því að opin­berir aðilar færu í sam­keppni við einka­að­ila eins og Heima­velli eða GAMMA á leigu­mark­aðnum. Ásgeir var áður efna­hags­ráð­gjafi hjá Gamma sem rak Almenna leigu­fé­lagið. Hann greindi frá því í við­tali við Stundina að hann ynni ekki lengur fast fyrir neina hags­muna­að­ila á leigu­mark­aði. 

„Það var líkt og ég hafði talað hjá glæpa­fé­lagi — tugir rit­uðu ummæli um mig á sam­fé­lags­miðlum sem voru ekki við hæfi móður minnar,“ skrifar Ásgeir í pistli sínum í dag. Hann bendir á að nú liggi fyrir að Heima­vellir verði afskráðir og íbúðir félags­ins mögu­lega teknar úr leigu og seldar, enda hafi hreinar leigu­tekjur Heima­valla ekki dugað fyrir fjár­magns­kostn­aði. 

„Sá sem hér ritar beygir ekki skafl þó net­verjar hafi um hann orð sem mömmu hans myndi sárna. Það er hins vegar áleitin spurn­ing hvort þjóð­fé­lags­um­ræðan hafi fælt fjár­festa frá Heima­völlum – einkum þó líf­eyr­is­sjóð­ina. Ef það er satt — er ofs­inn á sam­fé­lags­miðlum að leiða til hærri leigu — þar fram­boð á leigu­hús­næði minnkar við brott­hvarf Heima­valla og ávöxt­un­ar­krafa félags­ins hlýtur að vera við­mið fyrir alla þá hyggj­ast leigja út hús­næði.“ 

Ásgeir segir að Ísland þurfi á sterkum hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum að halda. Leigan sé há, en ástæða þess sé sú að Ísland er hávaxta­land og fram­boð á nýjum íbúðum tak­markað. „Ýmsar leiðir eru til þess að breyta því — aðrar en glæpa­gera þá sem leigja út hús­næði.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ásgeir tjáir sig um þá hörðu útreið sem hann seg­ist verða fyrir á sam­fé­lags­miðlum og í kommenta­kerfum. Árið 2017 harm­aði Ásgeir hve fátæk­legar við­tökur bók hans um hrunið, Why Iceland?, hefði fengið þegar hún kom út árið 2009. Ásgeir hafði þá um ára­bil starfað sem aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings og for­stöðu­maður grein­inga­deildar bank­ans.

„Virkum í athuga­semdum – sem voru mjög margir á þessum tíma – fannst að það hefði átt að banna mér að skrifa svona bók en fyrst að skað­inn var skeður ætti fólk að sam­ein­ast um að kaupa hana ekki,“ skrif­aði hann í frétta­blaði frá Virðingu hf. „Virkir athuga­semdir eltu mig jafn­vel til útlanda ef ég tók þátt í ráð­stefnum þar ytra og reyndu að leiða óstað­kunn­ugt fólk í allan sann­leika um hvaða mann ég hefði að geyma, en það er önnur saga.“ Sagði Ásgeir að síðan þá hefði „virkum í athuga­semdum fækkað all­mikið sem hlyti að „bera vott um bætt atvinnu­á­stand“.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár