Segja að VG verði skipt út fyrir Miðflokkinn

Hring­braut fjar­lægði frétt um að öfl innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins vildu stjórn­ar­sam­starf við Mið­flokk­inn.

Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson mynduðu saman ríkisstjórn eftir alþingiskosningarnar 2013. Sú ríkisstjórn sprakk árið 2016 í kjölfar fjöldamótmæla eftir að í ljós kom að báðir stjórnarherrarnir höfðu notast við eignarhaldsfélög í skattaskjólum.
Sig­mundur Davíð og Bjarni Bene­dikts­son mynd­uðu saman rík­is­stjórn eftir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Sú rík­is­stjórn sprakk árið 2016 í kjöl­far fjölda­mót­mæla eftir að í ljós kom að báðir stjórn­ar­herr­arnir höfðu not­ast við eign­ar­halds­fé­lög í skatta­skjólum. Mynd: Pressphotos

Hring­braut birti frétt í gær um að meðal áhrifa­manna í Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum stæði vilji til þess að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu við Vinstri græn og hefja sam­starf við Mið­flokk­inn í stað­inn. Stefnt væri að slíkum breyt­ingum eftir að kjara­samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði lyki en til að hægt væri að mynda stjórn­ar­meiri­hluta þyrftu óháðu þing­menn­irnir Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son að ganga í Mið­flokk­inn eða styðja stjórn­ina. Bjarni Bene­dikts­son gæti orðið for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son utan­rík­is­ráð­herra. 

Þetta kemur nú upp þegar smellt er á linkinn sem áður leiddi að frétt­inni um fyr­ir­hugað stjórn­ar­sam­starf við Mið­flokk­inn.

Skrifin vöktu nokkra kátínu á sam­fé­lags­miðlum áður en þau hurfu af yfir­borði jarðar. Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi rit­stjóri, hafði á orði að svo virt­ist sem Hring­braut hefði „tekið að sér að skrifa frétta­skýr­ingar af Klaust­ur­barnum, sam­fé­lags­um­fjöllun á fimmt­ánda glasi“. „Svona dreymir sauð­drukkna mið­aldra karla um það leyti að þeir þeir missa minnið. Svo vakna þeir 36 tímum seinna, hafa týnt föt­unum og skilja ekk­ert í ver­öld­inni sem þeir lifa innan.“ 

Í grein­inni á vef Hring­brautar kom fram að Sjálf­stæð­is­mönnum hefði „almennt liðið mjög illa með að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Vinstri græna undir for­sæti þeirra“ og það þætti „dap­ur­legt hlut­skipti“ fyrir flokk­inn. Þá kom fram að ýmsir áhrifa­menn í Fram­sókn­ar­flokknum væru sagðir eiga sér þann draum að takast mætti að sam­eina „syst­ur­flokk­ana Framsókn og Mið­flokk­inn“. Flokk­arnir hefðu sams konar stefnu og sæktu fylgi í sömu hópa. „Innan Mið­flokks eru einnig gamlir fram­sókn­ar­menn sem vinna að sáttum. Forsenda fyrir sáttum er talin vera sú að flokk­arnir séu sömu megin við borðið, annað hvort báðir í stjórn eða báðir í stjórn­ar­and­stöðu.“

Stundin sendi Hring­braut fyr­ir­spurn um frétt­ina. Fram kemur í svari að um hafi verið að ræða pistil sem hafi óvart vist­ast sem frétt. Ef vel er að gáð má nú finna pistil á vef Hring­brautar undir dálk­inum Dagfari, svip­aðan þeim sem áður birt­ist sem frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár