Helmingur kvennanna óttaðist um líf sitt

Af þeim 135 konum sem dvöldu í Kvenna­athvarfinu í fyrra höfðu einungis 12% lagt fram kæru gagnvart ofbeldis­manni. 14% kvennanna fóru aftur heim til ofbeldis­mannsins, sem er lægsta hlutfall frá upphafi. Aðstoð við börn eftir dvöl er ábótavant, segir framkvæmda­stýra.

Aðeins 12% þeirra kvenna sem dvöldu í Kvenna­athvarfinu á árinu 2018 kærðu manninn sem hafði beitt þær ofbeldi. 5% þeirra fengu nálgunar­bann og 2% neyðar­hnapp. Aðeins 14% þeirra fóru aftur heim til ofbeldis­mannsins, sem er lægsta hlut­fallið frá upphafi.

Þetta kemur fram í tölfræði sem Kvenna­athvarfið hefur tekið saman. Alls komu 135 konur og 70 börn í athvarfið til dvalar í fyrra, en þar að auki 240 konur í viðtöl án þess að dvelja. Þar að auki komu 225 konur í viðtöl í Bjarkar­hlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Konur og börn dvöldu í athvarfinu allt frá einum degi upp í 325 daga. Að meðaltali var dvölin 31 dagur hjá konum en 35 dagar hjá börnum. Af þeim konum sem dvöldu í athvarfinu voru 80% af höfuð­borgar­svæðinu og 67% þeirra af erlendum uppruna.

Af konunum höfðu 47% einhvern tímann hlotið áverka í sambandinu og lögregla hafði í 43% tilvika haft afskipti af gerandanum. 50% sögðust hafa óttast um líf sitt vegna ofbeldisins en aðeins 12% lagt fram kæru. Í fjórðungi þeirra mála hafði dómur fallið.

Í svörum kvennanna kom í ljós að samanlagt 273 börn bjuggu á ofbeldis­heimilum. Í 44% tilvika vissi konan af því að barna­vernd hefði verið tilkynnt um aðstæður barna á heimilinu en í einungis 27% tilvika höfðu börnin fengið aðstoð vegna­ofbeldisins. Í þeim tilfellum var yfirleitt um að ræða eitt viðtal við sérfræðing eða að barnið hefði möguleika á að ræða við starfs­mann skóla.

„Lang­stærstur hluti hópsins hafði enga aðstoð fengið þrátt fyrir að flestum sé nú orðið ljóst að afleiðingar þess að verða vitni að ofbeldi á heimilum geti verið engu síður alvarlegar en afleiðingar þess að vera beitt ofbeldi á heimilum,“ segir Sigþrúður Guðmunds­dóttir, framkvæmda­stýra Kvenna­athvarfsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár