Drífa: „Á Íslandi þrífst þrælahald“

„Ef við grípum ekki til aðgerða getum við allt eins gefið út yfir­lýs­ingu um að okkur sé sama um að hér þrí­fist þræla­hald,“ skrifar for­seti ASÍ.

Drífa: „Á Íslandi þrífst þrælahald“

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir kjör Rúmena hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu til marks um að þræla­hald sé látið við­gang­ast á Íslandi.

Þetta kemur fram í viku­legum pistli hennar í dag en þar vísar hún til umfjöll­unar Stöðvar 2 í gær­kvöldi um að ASÍ, Efling og Vinnu­mála­stofnun hafi til rann­sóknar hvort fjöldi Rúmena sé í nauð­ung­ar­vinnu hjá fyr­ir­tæk­inu. Um er að ræða starfs­manna­leigu sem kom við sögu í umfjöllun Kveiks um launa­þjófnað og slæma með­ferð erlends verka­fólks í fyrra.

„Laun hafa ekki verið greidd og aðbún­aður er allur hinn versti. Þeir búa saman sex í einu her­bergi og eiga ekki pen­inga fyrir nauð­synjum. Þetta er ekki eins­dæmi og því miður ber­ast örugg­lega ekki öll svona mál til okkar því margir fara til síns heima aftur eftir að hafa verið beittir atvinnu­of­beldi,“ skrifar Drífa.

„Það er hreint hörmu­legt að ekki sé enn komin aðgerð­ar­á­ætlun í mansals­málum og skipu­lagt sam­ræmt eft­ir­lit með öfl­ugri eft­ir­fylgni sem hefur að mark­miði að upp­ræta þessa brota­starf­semi með öllum til­tækum ráðum.“

Hún segir að þegar mál sem þessi komi til stétt­ar­fé­laga sé eng­inn einn aðili sem beri ábyrgð á því að sam­ræma aðgerðir gegn brota­starf­sem­inni og mæti þörfum þolenda. 

„Það þarf að tryggja öryggi fólks, redda hús­næði, mat og stundum heil­brigð­is­þjón­ustu auk þess að skipu­leggja aðgerðir yfir­valda gegn fyr­ir­tækjum. Allt þetta þarf að ger­ast fljótt, örugg­lega og fum­laust. Í dag höfum við ekki þetta skipu­lag og glæpa­menn sem eru svo fégráð­ugir að þeim er sama um grund­vallar mann­rétt­indi geta þannig vaðið uppi nán­ast óáreittir,“ skrifar hún. „Þessi glæpa­fyr­ir­tæki geta svo boðið lágt verð í fram­kvæmdir, jafn­vel á vegum ríkis og sveit­ar­fé­laga því það er sann­an­lega ódýr­ara að fá þræla til verks­ins en fólk sem krefst launa.“

Hún kallar eftir sam­stöðu gegn man­sali og að ákvæði um keðju­á­byrgð verði lög­fest og þei fylgt eftir, kenni­tölu­flakk stöðvum, útboðs­skil­yrði styrkt og eft­ir­lit og aðgerðir gegn brota­fyr­ir­tækjum sam­ræmdar. 

„Ef við grípum ekki til aðgerða getum við allt eins gefið út yfir­lýs­ingu um að okkur sé sama um að hér þrí­fist þræla­hald. Allt þetta og meira til er að finna í til­lögum í tengslum við kjara­samn­inga gegn félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði. En það á ekki að þurfa þrýst­ing sem lausir kjara­samn­ingar bjóða upp á til að taka á grund­vallar mann­rétt­indum. Það er mæli­kvarði á sið­menntað sam­fé­lag hvernig við komum fram við þau sem eru í við­kvæm­ustu stöð­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár