Félögin íhuga að slíta viðræðum

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir kjara­við­ræður þok­ast lítið og að félögin fjögur, sem vísað hafa deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara, íhugi að slíta þeim.

Félögin íhuga að slíta viðræðum

Þokist kjara­við­ræður ekki á sátta­fundi við Samtök atvinnu­lífs­ins á morgun munu stétt­ar­fé­lögin sem vísað hafa deilu sinni til rík­is­sak­sókn­ara íhuga að slíta við­ræðum. Frétta­blaðið greinir frá.

„Það hljóta allir að gera sér grein fyrir því að ef ekk­ert þok­ast í við­ræð­unum þá verðum við að gera eitt­hvað til að ýta þeim áfram,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Málum Verka­lýðs­fé­lags Akraness, VR, Eflingar og Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur hefur verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Segir Ragnar að með hverjum mán­uði sem við­ræð­urnar drag­ist verði laun­þegar af þremur til fjórum millj­örðum miðað við samn­ings­gerðir félag­anna.

Aðspurður hvort komið gæti til verk­falla segir hann mik­il­vægt að fá hreyf­ingu í við­ræð­urnar. „Það eru engin átök í kort­unum nema félags­menn ákveði og sam­þykki að fara í slíkt. Það er ekki ákvörðun for­manna eða samn­inga­nefnda. Við vinnum eftir kröfum sem félags­menn sam­þykktu en enn sem komið er höfum við ekki fengið sýni­leg við­brögð. Það er til lít­ils að standa í ein­hverri störu­keppni,“ segir Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár