Systir Bryndísar Schram: „Þetta var mágur minn allsnakinn við hlið mér“

Margrét Schram segir að Jón Baldvin Hanni­bals­son hafi komið nak­inn upp í rúm til sín þegar hún var í heim­sókn hjá hjón­unum á mennta­skóla­aldri. Jón Baldvin ætlar ekki að bregð­ast við frá­sögn­inni fyrr en síðar.

Systir Bryndísar Schram: „Þetta var mágur minn allsnakinn við hlið mér“
Margrét Schram Mágkona Jóns Baldvins seg­ist lítil afskipti hafa haft af honum síðan fjallað var um bréf hans í Nýju lífi árið 2012.

Margrét Schram, mág­kona Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, segir að Jón Baldvin hafi komið nak­inn upp í rúm til sín þegar hún var á mennta­skóla­aldri. Jón Baldvin seg­ist ekki ætla að bregð­ast við fram­burði hennar fyrr en síðar.

Í Stund­inni lýsa fjórar konur kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Jóns Baldvins. Umfjöll­un­ina í heild má lesa í tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í gær.

Margrét er systir Bryn­dísar Schram, eig­in­konu Jóns Baldvins. Í sam­tali við Stundina segir hún að Jón Baldvin hafi áreitt sig kyn­ferð­is­lega þegar hún var í heim­sókn hjá þeim hjónum í Edinborg í upp­hafi sjö­unda ára­tug­ar­ins. Hún hafi lík­lega verið 19 eða 20 ára, í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, en hafi unnið sem flug­freyja yfir sum­arið, og því haft tök á að fara í heim­sókn.

„Ég hafði sam­band við Bryndísi og ekk­ert var því til fyr­ir­stöðu að ég stopp­aði við hjá þeim,“ segir Margrét. „Þegar ég kom á leið­ar­enda var Bryndís ekki heima. Hún hafði þurft að skreppa eitt­hvað, að sögn Jóns, og var ekki vænta­leg heim fyrr en eftir að ég væri farin. Ég man vel hvað mér brá.“

Eftir göngu­ferð um borg­ina og kvöld­verð með Jóni Baldvini hafi hún lagst til hvílu í rúm­stæði á miðju gólfi í stof­unni. „Ekki veit ég hversu lengi ég hafði sofið en ég vakna við að það er eitt­hvað við hlið­ina á mér undir sæng­inni,“ segir hún. „Eitthvað kalt og ókunn­ungt. Mér bregður alveg óskap­lega mikið. Fyllist ein­hverjum við­bjóði og ræðst á skrímslið, trú­lega öskr­andi. Þetta var mágur minn allsnak­inn við hlið mér. Þvílík upp­lifun! Trúlega eins og að fá fulla fötu af ána­möðkum yfir sig.“

Margrét seg­ist hafa lamið og sparkað þar til Jón Baldvin hörf­aði. „Ég man bara hvað mér fannst þetta ógeðs­leg til­finn­ing að finna svona nak­inn lík­ama upp að mér,“ segir hún. „Hvort ég sagð­ist ætla að drepa hann eða hvað, man ég ekki gjörla, en ég spurði hvort hann væri ekki með öllum mjalla og það giftur systur minni. Hann svar­aði: „Það skiptir engu“. Þá fékk ég eig­in­lega annað áfall. Ekki urðu nein átök, hann bara hvarf út.“

Margrét seg­ist lítil afskipti hafa haft af Jóni Baldvini síðan fjallað var um klúr bréf hans til Guðrúnar Harð­ar­dóttur, frænku hans á tán­ings­aldri, í Nýju lífi árið 2012. „Enn þann dag í dag fyllist ég við­bjóði af til­hugs­un­inni um þetta atvik,“ segir hún. „Maður var nú svo grænn á þessum tíma að maður var nú ekki að klaga í ein­hvern. Ég veit svo sem ekki hvern ég hefði getað klagað þetta í.“

„Ég ætla ekki að bregð­ast við þessu fyrr en síðar og þá vel ég tíma, stað og stund.“

Beðinn um við­brögð við sögu Mar­grétar seg­ist Jón Baldvin hvorki ætla að svara henni né öðrum frá­sögnum. „Ég ætla ekki að bregð­ast við þessu fyrr en síðar og þá vel ég tíma, stað og stund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár