Segir borgarstjóra sýna kvenfyrirlitningu

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir mál­flutn­ing Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í garð Hildar Björns­dóttur, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lít­il­mann­legan.

Segir borgarstjóra sýna kvenfyrirlitningu
Gagn­rýnir borg­ar­stjóra Páll segir mál­flutn­ing borg­ar­stjóra vera lít­il­mót­legan.

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vænir Dag B. Egg­erts­son um kven­fyr­ir­litn­ingu í garð Hildar Björns­dóttur í færslu á Facebook. Ástæðan er yfir­lýs­ingar Dags í fjöl­miðlum um þá kröfu Hildar að hann víki sæti í þriggja manna nefnd sem fara á yfir skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar vegna bragga­máls­ins.

Dagur lýsti því í við­tali við Rík­is­út­varpið að hann teldi að krafa Hildar um að hann víki úr nefnd­inni væri til­komin vegna þess að það hefði mælst illa fyrir innan ákveð­ins hluta bak­lands Sjálf­stæð­is­flokks­ins að Hildur sjálf tæki þátt í vinnu nefnd­ar­innar. Umrædd harð­línu­öfl vilji ekk­ert sam­starf milli meiri­hluta og minni­hluta í borg­ar­stjórn og noti þetta til­efni til að þyrla upp mold­viðri og gera það að póli­tísku upp­hlaups­máli.

Páll segir að orð Dags beri með sér, ef ekki hreina kven­fyr­ir­litn­ingu þá í það minnsta lít­ils­virð­ingu af hálfu borg­ar­stjóra og spyr hvort slíkt sé boð­legt. Hildur hafi fært full­kom­lega mál­efna­leg rök fyrir því að af hverju borg­ar­stjóri ætti ekki að vera þátt­tak­andi í vinnu umræddrar nefndar, þar sem felldir séu áfell­is­dómar um hann sjálfan í skýrslu innri end­ur­skoð­unar. „Að borg­ar­stjór­inn skuli brigsla Hildi um að lúta ein­hverjum huldu­mönnum úti í bæ er lít­il­mót­legur mál­flutn­ingur af hans hálfu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár