Yfir tvö þúsund manns ætla að mótmæla ósiðlegu framferði þingmanna

Boð­að hef­ur ver­ið til mót­mæla á Aust­ur­velli á morg­un, laug­ar­dag, en yf­ir 2.000 manns hafa boð­að komu sína á mót­mæl­in. Þar ætla fund­ar­gest­ir að mót­mæla ósið­legu fram­ferði þing­manna Mið­flokks og Flokks fólks­ins og gera þá kröfu að þeir sæti ábyrgð.

Yfir tvö þúsund manns ætla að mótmæla ósiðlegu framferði þingmanna

Meira en tvö þúsund manns hafa boðað komu sína á mótmæli sem skipulögð eru á Austurvelli á morgun vegna nýlegra uppljóstrana úr Klaustursupptökunum. Á Facebook-síðu mótmælanna sem ber yfirskriftina „Klausturs-þingmenn til ábyrgðar * Mótmælum ósiðlegu framferði!“ kemur fram að mótmælin muni hefjast klukkan tvö en nærri því fimm þúsund manns sýna atburðinum áhuga.

„Boðað er til fundar almennings á Austurvelli 1. desember klukkan 14:00 í tilefni af þeim yfirgengilegu fordómum og mannfyrirlitningu sem hópur þingmanna hafði frammi á fundi sínum á Klausturbarnum í Templarasundi. Almenningur á Íslandi lætur ekki bjóða sér svona talsmáta og viðhorf meðal þingmanna eða annarra starfsmanna sinna. Við erum öll jöfn og eigum að njóta sömu réttinda og virðingar,“ segir í yfirlýsingu hópsins sem stendur að viðburðinum.

„Íslendingar fengu ekki fullveldi til að byggja upp samfélag ójafnaðar, þar sem aðeins örfáir karlar, sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár