Prakkarastrik Davíðs: Kveikti á gosbrunni til þess að bregða vegfarendum

Dav­íð Odds­syni var boð­ið í há­deg­is­verð í Ráð­húsi Reykja­vík­ur og ját­aði að hafa stund­að sér­kenni­legt prakk­arastrik.

Prakkarastrik Davíðs: Kveikti á gosbrunni til þess að bregða vegfarendum
Einar og Davíð Einar Þorsteinsson bauð Davíð Oddssyni í hádegisverð þegar hann var borgarstjóri. Mynd: Einar Þorsteinsson/Facebook

„Ég bauð Davíð Oddssyni í hádegismat á skrifstofuna þegar ég var borgarstjóri,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og fyrrverandi borgarstjóri, í færslu á Facebook þar sem hann segir frá skemmtilegum hádegisverðarfundi með Davíð, sem lést í gær. Sjálfur hóf Davíð pólitískan feril sinn í borgarmálum og var borgarstjóri í um áratug. Meðal embættisverka var að hefja uppbyggingu á ráðhúsinu við tjörnina, en sjálfur tók hann sæti á Alþingi áður en byggingu lauk.

„Ég var örlítið óviss um hvernig hádegisverðurinn yrði því síðustu samskipti okkar voru eftir kappræður daginn fyrir forsetakosningarnar 2016 og þar var hann frekar ósáttur við rimmu sem við áttum í þættinum. „Davíð gleymir engu,“ hugsaði ég,“ skrifar Einar sem starfaði sem fréttamaður á RÚV áður en hann sneri sér að stjórnmálum.

„Ég ákvað þó að bjóða honum í ráðhúsið því mér þótti áhugavert að ræða við hann um borgarmálin. Hann þáði boðið undir eins enda hafði honum aldrei áður verið boðið á skrifstofu borgarstjóra í ráðhúsinu við Tjörnina sem hann þó hafði forgöngu um að yrði byggt. Hann sagðist frekar vilja fisk en kjöt því hann væri að passa upp á heilsuna. Ég fann að honum þótti vænt um að vera boðið.“

Einar segir fundinn hafa verið skemmtilegan og að Davíð hefði á margan hátt mótað stjórnmál sinnar kynslóðar. Davíð virðist hafa leikið á als oddi á fundinum og viðurkenndi þá óvænt prakkarastrik sem hann greip stundum til á borgarstjóraferlinum. Þannig lýsir Einar samtalinu:

„Davíð fór á kostum í hádegisverðinum, sagði frá hinum og þessum uppákomum í borgarstjóratíð sinni, meðal annars því þegar hann fékk fjarstýringu að gosbrunninum í Tjörninni og notaði hana til að kveikja á honum og bregða fólki sem gekk fram hjá.“

Að endingu vottar Einar fjölskyldu og vinum samúð sína en Davíð lést í gær 78 ára gamall.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
2
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár