Melania fer með formennsku í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna

Mitt í árás Banda­ríkj­anna á Íran hafa þau tekið við for­mennsku í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. For­seta­frú Banda­ríkj­anna mun leiða ráðið í dag og leggja áherslu á „hlut­verk mennt­unar í að efla umburð­ar­lyndi og heims­frið“.

Melania fer með formennsku í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
Melania Trump Yfir­gefur hér Hvíta húsið með eig­in­manni sínum, Donald Trump for­seta, fyrir ávarp hans á Banda­ríkja­þingi í síð­ustu viku. Mynd: AFP

For­seta­frúin Melania Trump mun stýra fundi í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna í dag, en til­kynnt var um þátt­töku hennar í síð­ustu viku áður en Banda­ríkin hófu stríð sitt gegn Íran, eftir ákvörðun eig­in­manns hennar.

Skrif­stofa hennar sagði að fyrr­ver­andi fyr­ir­sætan myndi „brjóta blað í sög­unni hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, taka við fund­ar­hamr­inum þegar Banda­ríkin taka við for­mennsku í Örygg­is­ráð­inu til að leggja áherslu á hlut­verk mennt­unar í að efla umburð­ar­lyndi og heims­frið.“

Stephane Dujarric, tals­maður aðal­fram­kvæmda­stjóra SÞ, stað­festi að við­burður Melaniu yrði í fyrsta sinn sem for­seta­frú – eða for­seta­herra – stýrir fundi í Örygg­is­ráð­inu.

Banda­ríkin munu gegna for­mennsku í ráð­inu í mars.

Þriðja eig­in­kona Donalds Trump for­seta hefur áður spreytt sig á erind­rekstri, einkum með því að reyna að tryggja lausn úkra­ínskra barna sem Rússar rændu.

Pólitísk og fjár­hags­leg spenna hefur auk­ist milli Banda­ríkj­anna og Sam­ein­uðu þjóð­anna á síð­ustu árum, þar sem Trump­stjórnin er …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    þrjú ár enn
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hver er þróaðasta lífvera jarðar ? Hvorki hún né konan hans sitja í Hvítahúsinu.
    1
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Things can't get worse!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár