Sér fram á verulegar hækkanir verðtryggðra skulda vegna árásanna

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, spyr hvort stjórn­völd ætli að bregð­ast við áður en snar­hækk­andi olíu­verð leiði til tug­millj­arða hækk­ana á höf­uð­stól verð­tryggðra skulda íslenskra heim­ila. For­stjóri Skelj­ungs segir ástandið munu hafa „gríð­ar­legar afleið­ingar“ því það sé „vand­fundin sú vara sem ekki er ann­að­hvort fram­leidd eða flutt með olíu.“

Sér fram á verulegar hækkanir verðtryggðra skulda vegna árásanna

Stig­magn­andi átök eftir árás Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran hafa á örfáum dögum valdið miklum svipt­ingum á alþjóð­legum orku­mörk­uðum. Olíu- og gasverð hefur hækkað hratt, flutn­ings­leiðir raskast og hluta­bréfa­mark­aðir víða um heim hafa lækkað.

Þótt bein áhrif hér á landi séu enn tak­mörkuð eru vís­bend­ingar um að þró­unin geti haft víð­tæk áhrif á verð­lag og skuldir íslenskra heim­ila.

„Á meðan heim­ur­inn fylgist með stig­magn­andi átökum í Mið­aust­ur­löndum sitja íslensk heim­ili uppi með afleið­ing­arnar – í formi hækk­andi skulda,“ skrifar Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands, á Facebook.

Hann bendir á að hækk­andi olíu­verð leiði til hærri flutn­ings­kostn­aðar og aðföng hækki í verði sem smit­ist út í verð­lag. Þegar neyslu­vísi­talan hækki hækki verð­tryggðar skuldir sjálf­krafa. 

Alþjóðlegir markaðir bregðast hart við

Á það sama benti Þórður Guð­jóns­son for­stjóri Skelj­ungs á í sam­tali við Vísi, þar sem hann sagði að málið snérist um meira en bens­ín­verð á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár