Sigmundur Davíð ávarpar sóknarbörn Fella- og hólakirkju í „karlakaffi“ á morgun

For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi var val­inn einn merkasti karl­femínisti heims af Financial Times árið 2015, en nú er hann í eld­lín­unni vegna ummæla um konur.

Sigmundur Davíð ávarpar sóknarbörn Fella- og hólakirkju í „karlakaffi“ á morgun

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, verður gestur á „karla­kaffi“ í Fella- og hóla­kirkju á morgun.

„Föstu­dag­inn 30. nóv­em­ber er síð­asta karla­kaffi okkar á þessu ári. Gestur okkar að þessu sinni er fyrrum for­set­is­ráð­herra og núver­andi for­maður Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son,“ segir í til­kynn­ingu frá starfs­fólki kirkj­unnar.

„Við bjóðum upp á kaffi og vín­a­brauð, spjall og góða sam­veru. Láttu sjá þig, við tökum hlý­lega á móti ykkur.“

Sig­mundur Davíð var val­inn einn fremsti karl­kyns­femínisti heims af Financial Times árið 2015. Und­an­far­inn sól­ar­hring hefur Stundin birt fréttir af orða­skiptum hans og fleiri þing­manna sem áttu sér­stað á Klaustur Bar.

Þar tók Sig­mundur til að mynda undir með Bergþóri Ólasyni kollega sínum um að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, væri „húrr­andi klikkuð kunta“.

Þá sagði Sig­mundur að kona, sem þeim körlunum þótti ekki jafn „hot“ og áður, hlyti þess vegna að „hrynja niður“ próf­kjörs­lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár