Makríll frá Íslandi sendur til Rússlands gegnum skattaskjól

Félög á Tortóla og í Panama fluttu inn íslenskan makríl til Rússlands. Seljandi var fyrir­tækið Frost­fiskur í Þorláks­höfn sem kom ekki að notkun skatta­skjóls­félaganna.

Innflutningsbannið breytti landslaginu
Inn­flutn­ings­bannið breytti lands­lag­inu Inn­flutn­ings­bannið á íslenskan mak­ríl sem sett var á eftir að Ísland studdi við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi Vla­dimírs Pútíns batt enda á sölu á fisk­teg­und­inni til lands­ins. Mynd: Shutterstock

Makríll frá Íslandi var seldur til Rússlands í gegnum fyrirtæki í skatta­skjólunum Panama og Tortólu áður en innflutnings­bann var sett á þessa fisk­tegund. Þetta kemur fram í tolla­skjölum frá Rússlandi um innflutning á makríl til landsins frá Íslandi. Tolla­skjölin eru frá árunum 2013 og 2014. Ekki kemur fram í tolla­skjölunum hver er eða var eigandi fyrir­tækjanna í skatta­skjólunum sem flutti íslenska makrílinn inn til Rússlands. 

Innflutnings­bannið var sett á árið 2015 eftir að Ísland gaf það út að landið styddi viðskipta­þvinganir Evrópu­sambandsins og Banda­ríkjanna gegn Rússlandi út af innrásinni á Krímskaga, innlimunar svæðisins í Rússland og vegna stríðs­átakanna í Úkraínu. 

Fram að þessum tíma var innflutningur á makríl, fiski sem tiltölu­lega nýlega er kominn inn í íslenska fiskveiði­lögsögu vegna hlýnunar sjávar, frá Íslandi mikill. Árið 2013 seldu Íslendingar til dæmis 113 þúsund tonn af makríl til Rússlands en þetta var um 1/3 hluti af allri makríl­sölu Íslands það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig peninga­slóð stjórn­enda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eigin­kvenna fyrr­verandi stjórn­enda Kaupþings­banka á félögum á aflands­svæðinu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi notast við slík félög í viðskiptum sínum eftir efnahags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr­verandi forstjóri Kaupþings, og eiginkonu hans tengdust til dæmis félögum í Panama­skjölunum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­félagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengdust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peninga­þvætti

Sigurður Gísli Björnsson, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­útflytjandi landsins, er sakaður um að hafa stungið rúmlega milljarði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknninga og aflandsfélög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stófelld brot á skatta­lögum, bókhalds­lögum og peninga­þvætti. Íslenskur lögmaður sem einnig er ákærður segist saklaus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár