Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á

Beiðni um nálg­un­ar­bann er hafnað eða hún aft­ur­kölluð í nær helm­ingi þeirra til­vika þegar það úrræði kemur til álita hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Úrræðið er sjaldan nýtt og þykir ekki skil­virkt. Á tæpum fjórum árum hefur ein­stak­lingur 111 sinnum verið úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á tíma­bil­inu voru rúm­lega fimm þús­und heim­il­is­of­beld­is­mál í rann­sókn hjá lög­regl­unni.

Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á

NNálg­un­ar­bann er til­tölu­lega nýtt úrræði í íslenskum lögum. Samkvæmt skil­grein­ingu núgild­andi laga er með nálg­un­ar­banni átt við þau til­vik þegar manni er bannað að koma á til­tek­inn stað eða svæði, veita eft­ir­för, heim­sækja eða setja sig með öðru móti í sam­band við annan mann. Reynsla margra brota­þola er að erfitt sé að fá nálg­un­ar­bann. Þá virð­ast úrræði lög­reglu fá, þegar ein­stak­lingur virðir ekki nálg­un­ar­bann.

Litið til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur frá því 1. jan­úar árið 2015 fram til dags­ins í dag komið til álita að ein­stak­lingur sæti nálg­un­ar­banni í 192 málum. Mik­il­vægt er að taka fram að í þeim til­vikum hafa bæði brota­þoli og lög­regla talið þörf á nálg­un­ar­banni, þar sem það skilar sér ekki alltaf í skrán­ingu lög­reglu, þegar aðeins brota­þoli óskar sjálfur eftir nálg­un­ar­banni. Þetta sýna gögn sem upp­lýs­inga- og áætl­ana­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tók saman fyrir Stundina. Blaða­maður Stund­ar­innar hefur óskað eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Nálgunarbönn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár