Oftar mætti grípa til síbrotagæslu

Krafan um hraða máls­meðferð er skýr í lögum um nálgunar­bann og brott­vísun af heimili. Á þetta bendir Kolbrún Benedikts­dóttir vara­héraðs­saksóknari. Hún segir að lögregla gæti oftar gripið til síbrota­gæslu en þó aðeins í alvarlegustu tilvikunum, þar sem ljóst er að óskil­orðs­bundinn fangelsis­dómur liggur við brotunum.

Dómstólar styðjist við matslista
Dóm­stólar styðj­ist við mats­lista Kolbrún Bene­dikts­dóttir vara­hér­aðs­sak­sókn­ara sat lengi í Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar og hefur umtals­verða reynslu af heim­il­is­of­beld­is­málum. Hún telur að dóm­stólar gætu í auknum mæli nýtt sér mats­lista, sem séu gott tæki til að leggja mat á það hverjir eru lík­legir til að brjóta af sér og hverjir ekki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Skerpt var á ákvæði um nálgunar­bann í nýjum lögum árið 2011, í þeim tilgangi að auka réttar­vernd þolenda. Á þetta bendir Kolbrún Benedikts­dóttir vara­héraðs­saksóknari en hún hefur umtals­verða reynslu af málum er tengjast heimilis­ofbeldi, bæði í starfi sínu sem saksóknari en hún var einnig formaður Barna­verndar Hafnar­fjarðar á árunum 2007 til 2014. „Menn töldu að það væri ekki gert með nægilega skýrum hætti,“ segir Kolbrún. Þegar lögunum sé beitt þurfi að hafa í huga að tvenns konar hagsmunir vegist á, annars vegar réttindi sakbornings til að vera frjáls ferða sinna og geta verið þar sem hann vill, og hins vegar hagsmunir brotaþola af því að þurfa ekki að vera í samskiptum við einhvern sem er ógnandi og hræðir. Þá bendir hún á að ekki megi beita nálgunar­banni ef hægt er að vernda brotaþola með vægari hætti.

Kolbrún segir að lög um nálgunar­bann séu nokkuð skýr. Beita megi úrræðinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár