Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á

Beiðni um nálgunar­bann er hafnað eða hún aftur­kölluð í nær helmingi þeirra tilvika þegar það úrræði kemur til álita hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Úrræðið er sjaldan nýtt og þykir ekki skilvirkt. Á tæpum fjórum árum hefur einstak­lingur 111 sinnum verið úrskurðaður í nálgunar­bann á höfuð­borgar­svæðinu. Á tíma­bilinu voru rúmlega fimm þúsund heimilis­ofbeldismál í rannsókn hjá lögreglunni.

NNálgunarbann er tiltölu­lega nýtt úrræði í íslenskum lögum. Samkvæmt skilgreiningu núgildandi laga er með nálgunar­banni átt við þau tilvik þegar manni er bannað að koma á tiltekinn stað eða svæði, veita eftirför, heimsækja eða setja sig með öðru móti í samband við annan mann. Reynsla margra brotaþola er að erfitt sé að fá nálgunar­bann. Þá virðast úrræði lögreglu fá, þegar einstaklingur virðir ekki nálgunar­bann.

Litið til höfuð­borgar­svæðisins hefur frá því 1. janúar árið 2015 fram til dagsins í dag komið til álita að einstaklingur sæti nálgunar­banni í 192 málum. Mikilvægt er að taka fram að í þeim tilvikum hafa bæði brotaþoli og lögregla talið þörf á nálgunar­banni, þar sem það skilar sér ekki alltaf í skráningu lögreglu, þegar aðeins brotaþoli óskar sjálfur eftir nálgunar­banni. Þetta sýna gögn sem upplýsinga- og áætlana­deild lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu tók saman fyrir Stundina. Blaða­maður Stundarinnar hefur óskað eftir sambærilegum gögnum fyrir landið allt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár