Sterkar konur Tvær af þeim konum sem hér segja sögu sína voru til­búnar til að mæta í mynda­töku og sýna and­lit sitt. Ein þeirra komst ekki, þar sem hún býr í útlöndum, þangað sem hún flúði eftir stöðugt áreiti fyrr­ver­andi maka. Hinar fimm treysta sér ekki til að koma fram undir nafni, þar sem þær ótt­ast afleið­ing­arnar. Þær hafa hins vegar allar átta barist fyrir því að fá nálg­un­ar­bann – vegna ofbeldis, ofsókna eða áreitis manna sem hafa sett líf þeirra úr skorðum – með mis­jöfnum árangri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kerfinu mistekst að vernda konur

Átta konur segja reynslu­sögur sínar af nálg­un­ar­banni. Þær eru ólíkar og úr ýmsum áttum en eiga það allar sam­eig­in­legt að hafa kynnst mönnum sem tóku yfir líf þeirra með hót­unum, ofsóknum og ofbeldi. Sögur þeirra sýna að úrræð­inu, sem ætlað er að veita þeim vernd og hvíld frá stöð­ugu áreiti, er veru­lega ábóta­vant.

Ef nálg­un­ar­bönn virk­uðu sem skyldi ættu þau að veita mann­eskjum sem sætt hafa ofbeldi, hót­unum um slíkt eða ítrek­aðri áreitni lang­þráða hvíld. Alltof algengt er hins vegar að þau hafi ekki þau áhrif. Hér er sögð saga átta ólíkra kvenna sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa kynnst mönnum sem tóku yfir líf þeirra með hót­unum, ofsóknum og ofbeldi. Þær hafa lifað við að vera varar um sig og hræddar öllum stundum, að nóttu sem að degi. Sjald­gæft er að sögum þeirra af ofbeldi ljúki með nálg­un­ar­banni, að menn­irnir sem hrella þær hafi látið af hegð­un­inni í kjöl­far þess. Algeng­ara er að þær hafi sjálfar þurft að flýja heim­ili sitt, jafn­vel flytja þaðan alfarið, í annað sveit­ar­fé­lag eða til ann­ars lands, til þess eins að fá að lifa lífi sínu í friði. Í sumum til­vikum hafa kon­urnar sjálfar sætt ofsóknum svo lengi að þær eru orðnar ónæmar fyrir því.

Bannið bar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Nálgunarbönn

Nálgunarbönn: Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á
ÚttektNálgunarbönn

Nálg­un­ar­bönn: Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á

Beiðni um nálg­un­ar­bann er hafnað eða hún aft­ur­kölluð í nær helm­ingi þeirra til­vika þegar það úrræði kemur til álita hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Úrræðið er sjaldan nýtt og þykir ekki skil­virkt. Á tæpum fjórum árum hefur ein­stak­lingur 111 sinnum verið úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á tíma­bil­inu voru rúm­lega fimm þús­und heim­il­is­of­beld­is­mál í rann­sókn hjá lög­regl­unni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár