Vill sjá lagaákvæði um eltihrella

Það sem vantar í íslenska lög­gjöf, og myndi koma þeim til góða sem verða fyrir stöð­ugu áreiti og hót­unum um ofbeldi, er sér­stakt laga­á­kvæði um elti­hrella. Þetta er mat Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur, yfir­lög­fræð­ings hjá Lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum.

Vill sjá lagaákvæði um eltihrella
Er í lagi að hringja aftur og aftur? Alda Hrönn Jóhanns­dóttir segir að þegar umræðan um nálg­un­ar­bönn sé tekin þurfi sam­fé­lagið í heild að spyrja sig spurn­inga á borð við þá, hvort það eigi að vera í lagi að hringja 20 eða 40 sinnum á dag í mann­eskju sem ekki vill vera í sam­skiptum við við­kom­andi. Hvort eitt­hvað sé athuga­vert við að setja tak­mark­anir við slíka hegðun. Mynd: Davíð Þór Guðlaugsson

Istanbúl-samn­ing­ur­inn, sem Ísland hefur aðild að og er bind­andi alþjóða­samn­ingur um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi gagn­vart konum og heim­il­is­of­beldi, gerir ráð fyrir sér­stöku laga­á­kvæði í almennum hegn­ing­ar­lögum um elti­hrella. Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, sem leiddi inn­leið­ingu nýs verk­lags í heim­il­is­of­beld­is­málum hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem tekið var upp árið 2015, telur að slíkt ákvæði yrði mjög til bóta, þó að hér á landi hafi hins vegar verið dregið í efa að það sé nauð­syn­legt. „Það kom nýtt ákvæði inn í almenn hegn­ing­ar­lög í apríl 2016 um heim­il­is­of­beldi. En það ákvæði á bara við um tengda aðila og alvar­leg eða síend­ur­tekin til­vik,“ segir hún. Því sé full þörf á sér­stöku laga­á­kvæði um elti­hrella.

Núgild­andi lög um nálg­un­ar­bann segir hún hins vegar góðra gjalda verð þó bæta megi túlkun þeirra. Þau lög hafa verið í gildi frá því í júní 2011 en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Nálgunarbönn

Nálgunarbönn: Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á
ÚttektNálgunarbönn

Nálg­un­ar­bönn: Bitlaust úrræði sem þarf að skerpa á

Beiðni um nálg­un­ar­bann er hafnað eða hún aft­ur­kölluð í nær helm­ingi þeirra til­vika þegar það úrræði kemur til álita hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Úrræðið er sjaldan nýtt og þykir ekki skil­virkt. Á tæpum fjórum árum hefur ein­stak­lingur 111 sinnum verið úrskurð­aður í nálg­un­ar­bann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á tíma­bil­inu voru rúm­lega fimm þús­und heim­il­is­of­beld­is­mál í rann­sókn hjá lög­regl­unni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár