Sjómannafélag Íslands neitar að boða til félagsfundar

Jónas Garð­ars­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem hann neitar að boða til félags­fundar. Þá full­yrðir hann að ein­ungis 52 af þeim 163 sem skrif­uðu undir beiðni um slíkan fund séu félags­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands.

Sjómannafélag Íslands neitar að boða til félagsfundar
Boðar ekki til fundar Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, ætlar ekki að boða til félags­fundar. Full­yrðir hann að meiri­hluti und­ir­skrifta hafi komið frá öðrum en félags­mönnum.

Ekki verður boðað til félags­fundar í Sjó­manna­fé­lagi Íslands þrátt fyrir beiðni félags­manna þar um. Þetta segir Jónas Garð­ars­son, sitj­andi for­maður félags­ins, í til­kynn­ingu sem hann sendi frá sér í dag. Alls 163 ein­stak­lingar skrif­uðu undir áskorun til stjórnar um að boða til félags­fundar vegna þeirrar alvar­legu stöðu sem komin er upp í félag­inu. Lög félags­ins kveða á um að félags­fundur skuli hald­inn ef hund­rað eða fleiri félags­menn fara fram á slíkt. Jónas full­yrðir hins­vegar í til­kynn­ingu sinni að ein­ungis 52 þeirra sem skrif­uðu undir séu í raun félags­menn í félag­inu. 

Beiðni um félags­fund var lögð fram í kjöl­far háværrar gagn­rýni á hendur Sjó­manna­fé­lags Íslands fyrir að hafa vikið Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttir, sjó­manna og við­skipta­lög­fræð­ingi, úr félag­inu á þeirri for­sendu að hún hefði skaðað hags­muni félags­ins með gagn­rýni sinni. Heiðveig María, sem hugð­ist bjóða sig fram til for­manns, hafði meðal ann­ars bent á mis­ræmi í lögum félags­ins og gagn­rýnt það hvernig þeim hafi skyndi­lega verið breytt á vef­síðu þess með þeim afleið­ingum að hún var ekki lengur kjör­geng.

„Félagið verður ekki yfir­tekið með bak­tjalda­makki og áhlaupi utan­að­kom­andi fólks“

Í beiðni þeirra 163 sem skrif­uðu undir yfir­lýs­ing­una kom fram að þeir telji mik­il­vægt að félags­fundur komi saman í því skyni að félags­menn geti tekið afstöðu til þess hver séu gild­andi lög félags­ins og til að leið­beina stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands í því efni áður en lengra sé haldið. „Máli okkar til stuðn­ing vísum við til rétt­mæt­is­regl­unnar og til mik­il­vægis þess að ekki leiki vafi á gild­andi lögum í félag­inu.“ Þá fara þeir fram á að Heiðveig María verði kölluð á fund­inn. 

Sem fyrr segir full­yrðir Jónas að ein­ungis 52 af þeim 163 sem skrif­uðu undir kröf­una séu félags­menn í félag­inu og því beri stjórn­inni ekki að kalla til félags­fundar.  „Skrif­stofa Sjó­manna­fé­lags Íslands hefur nú borið þessar 163 und­ir­skriftir saman við félaga­skrána. Innan við þriðj­ungur und­ir­skrift­anna, eða 52 ein­stak­lingar, eru félags­menn. Hinir eitt hund­rað og ell­efu eru það ekki.“ Þá end­ur­tekur hann ásak­anir sínar á hendur Heið­veigu Maríu sem hann segir hafa borið fram upp­lognar sakir á for­ystu félags­ins „og skaðað það með vís­vit­andi og því miður áþreif­an­legum hætti.“

Athygli vekur að Jónas er einn skrif­aður fyrir til­kynn­ing­unni en þar þver­tekur hann fyrir að boðað verði til félags­fundar. „Það verður ekki boðað til félags­fundar í Sjó­manna­fé­lagi Íslands á grund­velli þess­ara und­ir­skrifta. Hins vegar verður trún­að­ar­manna­ráð félags­ins sem tók ákvörðun um brott­vikn­ingu Heið­veigar Maríu kallað saman fljót­lega. Um kjör­gengi í stjórn­ar­kosn­ingum þarf hins vegar ekki að ræða. Brott­vikn­ingin skiptir engu máli hvað það varðar. Þar eru lög félags­ins um hið minnsta þriggja ára félags­að­ild afar skýr. Félagið verður ekki yfir­tekið með bak­tjalda­makki og áhlaupi utan­að­kom­andi fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár