Sjómannafélag Íslands hunsar beiðni félagsmanna

Stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands hefur ekki orðið við beiðni sem þriðj­ungur félags­manna lagði fram þess efnis að boðað yrði til félags­fundar innan sól­ar­hrings.

Vikið úr félaginu
Vikið úr félag­inu Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttur var nýlega vikið úr Sjó­manna­fé­lagi Íslands í kjöl­far gagn­rýni hennar á stjórn þess.

Stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands hefur ekki svarað beiðni á annað hund­rað félags­manna um að fram fari sér­stakur félags­fundur í félag­inu vegna þeirrar alvar­legu stöðu sem þar ríkir. Um þriðj­ungur félags­manna sendi stjórn­inni slíkt erindi seinni part­inn í gær, föstu­dag, þar sem þess var jafn­framt kraf­ist að boðað yrði til slíks fundar innan sól­ar­hrings. Stjórnin hefur ekki orðið við þessu.

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að þeir sem stóðu að und­ir­skrift­ar­söf­un­inni hafi ekk­ert heyrt frá stjórn­ar­mönnum félags­ins þrátt fyrir að sól­ar­hring­ur­inn sé nú lið­inn. Frétta­stofa Stöðvar 2 greindi frá því rétt í þessu að stjórn­ar­menn hygð­ust yfir­fara und­ir­skriftir til þess að ganga úr skugga um það hvort þær væru frá raun­veru­legum félags­mönnum. Stjórnin mun koma saman í byrjun vik­unnar til þess að fara yfir málin en að öðru leyti vís­uðu stjórn­ar­menn á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár