Feimnismál að gefa frá sér barn

Konur geta breytt félags­lega slæmri stöðu í uppbyggilega með því að gefa frekar frá sér nýfætt barn heldur en að fara í fóstur­eyðingu. Þetta segir Birgir Þórarinsson, fyrsti flutnings­maður frumvarps um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldra­orlof. Hann segir það afbökun á tilgangi frum­varpsins að ræða um að greiða eigi mæðrum fyrir að gefa nýfædd börn sín.

Með nýfætt barn í fanginu
Með nýfætt barn í fang­inu Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir það, að gefa barn, stærstu gjöf sem nokkur getur gefið öðrum, til dæmis barn­lausum hjónum sem þrá að eign­ast barn. Móðir geti breytt stöðu sem er von­laus vegna félag­legra aðstæðna í mjög upp­byggi­lega með því að gefa þá gjöf. Mynd: Shutterstock

„Það segir skýrt í frum­varpinu hver tilgangur þess er; að styðja við konur sem ekki hafa fengið stuðning í þessum aðstæðum frá hinu opinbera,“ svarar Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, þegar hann er beðinn að útskýra hver tilgangurinn sé með frumvarpi hans um breytingu á lögum um fæðingar- og fæðingar­orlof, sem gerir ráð fyrir að kona sem gefur barn sitt til ættleiðingar við fæðingu þess fái greiddan fæðingar­styrk að upphæð 135.525 þúsund krónur á mánuði í sex mánuði.

Birgir var afar ósáttur við fyrirsögn á frétt Stundarinnar af frum­varpinu en hún var svohljóðandi: Þingmenn vilja borga mæðrum fyrir að gefa börn sín við fæðingu. Fyrir­sögnina sagði hann í engu samræmi við tilgang frum­varpsins og til þess fallna að afbaka málið verulega.

Bæta slæmri stöðu í uppbyggilega með því að gefa barn

Birgir segir lífs­skoðanir fólks misjafnar og að ekki allar konur geti hugsað sér að enda óvelkomna þungun með fóstur­eyðingu.

Vill opna á umræð­unaBirgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að það sé feimn­is­mál í sam­fé­lag­inu að gefa frá sér barn.

Í sumum tilvikum sé fóstur­eyðing jafnvel ekki valkostur, því það geti verið liðið langt á meðgönguna þegar kona gerir sé grein fyrir því að hún er barns­hafandi. Það er hans mat að konur í slæmri félagslegri stöðu geti jafnvel breytt stöðu sinni í uppbyggilega, gefi þær hjónum sem þrái að verða foreldrar barn sitt. „Að gefa barn sitt við fæðingu er þungt skref að taka, eins og gefur að skilja.

Hins vegar er það sú stærsta gjöf sem nokkur getur gefið öðrum, til dæmis barn­lausum hjónum sem þrá að eignast barn. Þannig er hægt að breyta stöðu sem vegna félaglegra aðstæðna er vonlaus í mjög uppbyggilega. Það að gefa frá sér barn hefur verið mikið feimnismál í okkar samfélagi. Þetta frumvarp er meðal annars einnig hugsað til þess að opna þá umræðu,“ segir hann.

„Það að gefa frá sér barn hefur verið mikið feimnismál í okkar samfélagi.“

Hann bendir jafnframt á að eins og staðan er í dag hafi kona sem gefur barn við fæðingu engan rétt til fæðingar­orlofs eða fæðingar­styrks. Það hafi hins vegar foreldrar andvana fæddra barna, svo dæmi sé tekið. Ýmis útgjöld geti komið til, bæði á meðgöngu og eftir fæðingu. Konur gætu þurft að  taka sér frí frá vinnu, sækja tíma hjá sálfræðingi, að fara í sjúkra­þjálfun eða leita til annarra meðferðar­aðila. Eins og gefi að skilja þurfi viðkomandi kona tíma til að ná sér andlega og líkamlega eftir fæðinguna. „Frumvarpi um fæðingar­styrk vegna ættleiðingar er ætlað að mæta þessu eins og kostur er,“ segir hann.

Ættleiðingu stillt upp sem valkosti á móti þungunarrofi

Í greinar­gerð sem fylgir frum­varpinu segir að ættleiðingar barna sem fædd eru á Íslandi séu fáar og þeim fari fjölgandi sem bíði ættleiðingar. Þá er sérstak­lega tiltekið að fóstur­eyðing sé erfið og í mörgum tilfellum þungbær ákvörðun fyrir konur. Á síðasta ári hafi farið fram 1.007 fóstur­eyðingar af félags­legum ástæðum og þeim fari fjölgandi. Einn af þeim kostum sem konum standi til boða sé að ganga með barn og gefa það við fæðingu til ættleiðingar. Tilgangur frum­varpsins sé að styðja þær konur sem taki ákvörðun um að gefa barn sitt til ættleiðingar við fæðingu.

Nokkuð hefur verið rætt um málið í hinum ýmsu kvenna­hópum á samfélags­miðlum. Flestum ber saman um að konur sem gefa börn sín við fæðingu ættu að fá einhvers konar styrk. Hins vegar þykir rangt að stilla upp ættleiðingu sem valkosti gegn þungunar­rofi. Þungun sé þannig tengd skorti á börnum til ættleiðingar, líkt og þann vanda megi leysa með því að fleiri konur búi til börn í þeim tilgangi að gefa þau frá sér. 

Þær sem gagnrýna frum­varpið telja að ef tilgangur frum­varpsins veita konum stuðning væri nær að niður­greiða getnaðar­varnir, til dæmis, og að styðja þær konur sem velja þungunarrof vegna slæmrar fjárhags­stöðu, svo þær geti jafnvel sjálfar átt börnin sem þær gangi með, fremur en að hvetja þær til að ganga með börn fyrir aðra. Oft sé um að ræða ungar eða félags­lega illa staddar konur og óforsvaranlegt sé að hvetja þær til að eignast börn sem þær ýmist vilja ekki eignast eða geta ekki hugsað um.

Dálítið hættuleg hugmynd, þó upphæðin sé lág

Áslaug Vals­dóttir, formaður Ljósmæðra­félags Íslands, segir mál af þessu tagi flókin og að á því séu margar hliðar. Hún er sammála því að það væri eðlilegt að kona sem gefi barn í fæðingu fái einhvers konar styrk frá ríkinu. Hins vegar segist hún hrædd við að það gæti haft óæskilegar afleiðingar að greiða konum fyrir að gefa frá sér barn. „Þó að þetta sé lág upphæð veit maður aldrei hvort einhverjar konur þvingist út í að ganga með barn, eiga það og gefa það frá sér fyrir þessa peninga, þó litlir séu,“ segir hún.

Hún telur mikil­vægast að efla stuðning við konur í slæmri stöðu. „Ef konur vilja ganga með barn og ættleiða þau finnst mér auðvitað að þær ættu að fá stuðning til þess. En fyrst og fremst þarf að efla stuðning við mæður sem eru í slæmri félagslegri stöðu. Það ætti kannski frekar að styðja þær til að eiga börnin sjálfar, í stað þess að gefa þau frá sér. Mér finnst þetta dálítið hættuleg hugmynd, jafnvel þó að upphæðin sé lág. Hvaða mögu­leikar opnast við þetta, til dæmis? Verður hægt að misnota þetta? Það væri það hræðilegasta í stöðunni,“ segir hún og ítrekar að málið þurfi að skoða vel frá öllum hliðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár