Svein Harald Øygard Banka­stjór­inn fyrr­ver­andi segir að allir hlut­að­eig­andi hefðu getað stöðvað geng­is­bundnu bíla­lánin, en bank­arnir hafi passað upp á eigin rass. Mynd: Paal Krokan-Mathisen

Ráðgáta af hverju Ísland var óviðbúið hruni

Svein Harald Øygard, norski hag­fræð­ing­ur­inn sem kall­aður var til í Seðla­banka Íslands til að leysa af Davíð Oddsson árið 2009, segir að allir alþjóð­legir aðilar hafi séð í hvað stefndi fyrir hrun. „Ást­ar­bréf“ Seðla­bank­ans hafi valdið mestu tapi og bank­arnir hafi verið ósjálf­bærir frá 2007. Hann lýsir deilum við starfs­menn AGS og hvernig „gjald­þrota­leið“ Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi tafið fyrir afnámi hafta. Hann gefur út bók um hrunið með við­tölum við fjölda erlendra og inn­lendra aðila.

A

llir alþjóð­legir aðilar sáu í hvað stefndi á Íslandi fyrir banka­hrunið í októ­ber 2008. Íslensku bank­arnir voru ósjálf­bærir frá árs­lokum 2007 og það er ráð­gáta af hverju stjórn­völd und­ir­bjuggu sig ekki betur í sam­vinnu við vina­þjóðir.

Þetta segir Svein Harald Øygard, norski hag­fræð­ing­ur­inn sem var seðla­banka­stjóri á Íslandi frá febr­úar til ágúst 2009. Svein var kall­aður til af minni­hluta­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar í árs­byrjun 2009 til að fylla skarð Davíðs Odds­sonar eftir að honum var ýtt úr Seðla­banka Íslands með laga­breyt­ingu. Hann gegndi emb­ætt­inu í hálft ár á einum mestu umróta­tímum Íslands­sög­unnar þar sem vanda­málin voru ótelj­andi og útrás­ar­for­tíðin virt­ist ætla að binda þjóð­ina í efna­hags­lega fjötra um ókomna tíð.

Svein starfar nú við fyr­ir­tækja­ráð­gjöf í Osló en hefur síð­asta ár unnið að skrifum bókar um aðdrag­anda hruns og eft­ir­mál þess. Hann hefur tekið við­töl við yfir 80 manns, helm­ing­inn á Íslandi og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár