Guð blessi Ísland Tíu ár eru í næstu viku síðan banka­hrunið reið yfir og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð um að blessa Ísland. Mynd: OddurBen

Hvað varð um lykilfólk hrunsins?

Tíu ár eru síðan að Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland og banka­hrunið skall á. Stundin birtir af því til­efni yfir­lit um helstu leik­endur í hrun­inu, hvað þeir höfðu með máls­at­vik að gera og hvað hefur á daga þeirra drifið frá hruni.

Tíu ár eru í dag frá því að Geir H. Haarde, þá for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi til íslensku þjóð­ar­innar. Tilefnið var setn­ing neyð­ar­laga sem veittu íslenska rík­inu víð­tækar heim­ildir til inn­gripa á fjár­mála­mörk­uðum til að „gæta hags­muna íslensku þjóð­ar­innar í hví­vetna, koma í veg fyrir að þjóðin verði á skulda­klafa næstu ára­tug­ina og bjarga því sem bjargað verður miðað við núver­andi aðstæður,“ eins og Geir sagði 6. októ­ber 2008. Skömmu áður, 29. sept­em­ber, hafði íslenska ríkið tekið Glitni banka yfir og dag­inn eftir, 7. októ­ber, tók Fjár­mála­eft­ir­litið rekstur Lands­bank­ans yfir. Fjár­mála­eft­ir­litið gerði slíkt hið sama við Kaupþing 9. októ­ber. Þessir dagar eru það sem í dag­legu tali er kallað banka­hrunið eða hrunið.

Áratugur er lið­inn og eft­ir­mál hruns­ins eru hvergi nærri komin fram. Fjöldi fólks missti eignir sínar, fyr­ir­tæki urðu gjald­þrota, þjóð­ar­búið fékk veru­legt högg og næstu ár fóru í að vinna sig út úr …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.
Ráðgáta af hverju Ísland var óviðbúið hruni
ViðtalUppgjörið við uppgjörið

Ráðgáta af hverju Ísland var óvið­búið hruni

Svein Harald Øygard, norski hag­fræð­ing­ur­inn sem kall­aður var til í Seðla­banka Íslands til að leysa af Davíð Oddsson árið 2009, segir að allir alþjóð­legir aðilar hafi séð í hvað stefndi fyrir hrun. „Ást­ar­bréf“ Seðla­bank­ans hafi valdið mestu tapi og bank­arnir hafi verið ósjálf­bærir frá 2007. Hann lýsir deilum við starfs­menn AGS og hvernig „gjald­þrota­leið“ Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi tafið fyrir afnámi hafta. Hann gefur út bók um hrunið með við­tölum við fjölda erlendra og inn­lendra aðila.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár