Samkrull við­skipta og stjórn­mála Hér má sjá Davíð Oddsson og Geir H. Haarde ásamt auð­mann­inum Björgólfi Guð­munds­syni, einum þeirra sem eign­uð­ust Lands­bank­ann í einka­væð­ing­unni upp úr alda­mótum sem lit­að­ist af flokkspóli­tík og óform­legum afskiptum ráð­herra af ferl­inu. Með­virkni stjórn­mála­manna gagn­vart banka­mönnum og vafasömum við­skipta­háttum í aðdrag­anda hruns­ins var gagn­rýnd harð­lega í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Mynd: MBL / Golli

Ísland ekki skilið út undan að ástæðulausu

25 af þeim 47 banka­mönnum sem lentu í fang­elsi vegna brota sem tengj­ast fjár­mála­hrun­inu eru Íslend­ingar. Erlendir sér­fræð­ingar horfðu gátt­aðir upp á við­skipta­hætti Íslend­inga en stjórn­völd huns­uðu hættu­merkin, hædd­ust að gagn­rýnendum og leyfðu ósjálf­bæru banka­kerfi að blása út og hrynja.

Ísland hafði málað sig út í horn á haust­mán­uðum 2008 og glatað trausti Breta og Banda­ríkj­anna þegar seðla­bankar heims­ins, með seðla­banka Banda­ríkj­anna í far­ar­broddi, réð­ust í for­dæma­lausar aðgerðir til bjargar alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu og gerðu með sér opna lána­samn­inga um gjald­miðla­skipti (e. currency swap lines).

„Þetta er tví­mæla­laust ein mik­il­væg­asta aðgerð í fjár­mála­sögu síð­ustu ára­tuga,“ segir Ásgeir Brynjar Torfason, lektor á sviði fjár­mála og reikn­ings­halds við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur í fjár­magns­streymi banka. „Fyrst var þetta neyð­ar­að­gerð banda­ríska seðla­bank­ans strax í hrun­inu til vissra seðla­banka. Síðar, árið 2010, voru samn­ingar helstu seðla­banka heims form­festir með sam­komu­lagi þeirra á milli sem tryggði að ekki yrði gjald­eyr­is­þurrð í helstu gjald­miðlum fjár­mála­heims­ins, dollar, evru, pundi, jeni, kana­da­dollar og sviss­neskum franka. Þetta sam­komu­lag var síðan gert ótíma­bundið árið 2013 og upp­hæðin er ótak­mörkuð.“  

Adam Toozepró­fessor í sagn­fræði við Columbia-háskóla í Banda­ríkj­unum og höf­undur nýrrar met­sölu­bókar um alþjóð­lega fjár­mála­hrunið.

Fjallað er ítar­lega um gjald­miðla­skipta­samn­ing­ana í nýrri bók sagn­fræð­ings­ins Adam Tooze um fjár­málakrepp­una, Crashed: How a Decade of Financial Crises Changed the World, sem vakið hefur mikla athygli. Tooze bendir á að hið gríð­ar­lega umfang gjald­miðla­skipta­samn­inga og mik­il­vægi þeirra hafi í raun fallið í skugg­ann á umræð­unni um björgun ein­stakra banka og magn­bundna íhlutun seðla­banka (e. Quantitative Easing). Seðla­banki Banda­ríkj­anna hafi reyndar beitt sér fyrir upp­lýs­inga­leynd um aðgerð­irnar, enda voru þær póli­tískt við­kvæmar og sner­ust um að dæla doll­urum í erlendar banka­stofn­anir án þess að óum­deilt væri að laga­heim­ild væri fyrir því. Það kald­hæðn­is­lega er að atburða­rásin átti sér stað um leið og sú orð­ræða var áber­andi að með fjár­mála­hrun­inu vest­an­hafs hefðu Banda­ríkin spilað rass­inn úr bux­unum og yfir­burða­staða dollar­ans í alþjóða­kerf­inu hlyti nú að heyra sög­unni til. Annað kom á dag­inn og doll­ara­prentun lék lyk­il­hlut­verk í björgun alþjóð­lega fjár­mála­kerf­is­ins.

„Þessi aðgerð hefur ekki hlotið mikla umfjöllun eða verið almennt rædd, en hún er tví­mæla­laust óum­flýj­an­leg afleið­ing af þeim björg­un­ar­að­gerðum sem seðla­bankar heims­ins neydd­ust til að ráð­ast í þegar fjár­mála­kerfi heims­ins var að falla undan eigin þunga. Enginn annar en seðla­bank­arnir gátu bjargað fjár­mála­kerf­inu úr sínum eigin vand­ræðum,“ segir Ásgeir Brynjar í sam­tali við Stundina.

Í nýlegri skýrslu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar stjórn­mála­fræði­pró­fess­ors um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins gagn­rýnir hann harð­lega að Banda­ríkja­menn hafi neitað Íslandi um lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu í formi gjald­eyr­is­skipta­samn­ings í apríl 2008 en veitt ríkjum á borð við Svíþjóð og Sviss slíka aðstoð. „Meg­in­skýr­ingin á því að banda­rísk stjórn­völd neit­uðu Íslandi um fyr­ir­greiðslu er lík­lega sú að Ísland var ekki lengur hern­að­ar­lega mik­il­vægt í þeirra augum,“ skrifar hann. „Gjald­eyr­is­skipta­samn­ingur við Banda­ríkin hefði hugs­an­lega gert Seðla­bank­anum kleift að hafa stjórn á atburða­rásinni og fara „sænsku leið­ina“, sem sænski seðla­bank­inn mark­aði í fjár­málakrepp­unni í Svíþjóð 1991–1992.“ 

Ásgeir Brynjar Torfasonlektor á sviði fjár­mála og reikn­ings­halds við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Erlendum seðlabönkum
leist ekki á blikuna

Í mars 2008 leit­uð­ust banka­stjórar Seðla­banka Íslands með óform­legum hætti eftir gjald­miðla­skipta-samn­ingum við Seðla­banka Bret­lands, Seðla­banka Evrópu, Seðla­banka Banda­ríkj­anna og nor­ræna seðla­banka. Þann 15. apríl sendi svo Davíð Oddsson beiðni þess efnis til Mervyn King seðla­banka­stjóra Bret­lands. King hafn­aði beiðn­inni en bauð hins vegar fram aðstoð sína og kollega sinna við að finna leiðir til að minnka íslenska banka­kerfið. Var þetta í sam­ræmi við þau við­vör­un­ar­orð sem fram höfðu komið um útlána­þenslu, ofvöxt og veikan eig­in­fjár­grunn banka­kerf­is­ins. Seðla­banki Íslands þekkt­ist ekki boðið en ítrek­aði beiðn­ina um gjald­miðla­skipta­samn­ing. Því bréfi var ekki svarað. 

Eftir fund seðla­banka­stjóra G10 land­anna í Basel 4. maí 2008 varð ljóst að Seðla­banka Íslands stóðu ein­vörð­ungu til boða gjald­miðla­skipta­samn­ingar við seðla­banka Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar. Haft er eftir Stefan Ingves, seðla­banka­stjóra Sví­þjóðar, í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að óskýrt eign­ar­hald ásamt örum vexti á efna­hags­reikn­ingi íslensku bank­anna hafi leitt til hættu­á­stands sem íslensk stjórn­völd virt­ust hvorki átta sig á né skilja hvernig mætti leysa úr.

Gjald­miðla­skipta­samn­ingar nor­rænna seðla­banka við Seðla­banka Íslands voru und­ir­rit­aðir með skil­yrðum um að Geir H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra myndi þrýsta á íslensku bank­ana að draga saman stærð efna­hags­reikn­inga sinna með hlið­sjón af til­lögum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Þá var fyr­ir­greiðslan bundin skil­yrðum um að rík­is­stjórn Íslands beitti sér fyrir ákveðnum póli­tískum aðgerðum og athöfnum af hálfu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. „Ráð­herr­arnir und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una 15. maí 2008 ásamt banka­stjórn Seðla­banka Íslands. Yfir­lýs­ingin var ekki birt opin­ber­lega eða lögð fram á rík­is­stjórn­ar­fundi. Lítið varð um efndir á fyrr­nefndum lof­orðum af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar sum­arið 2008. Það varð ekki til að bæta það orð­spor sem fór af íslenskum stjórn­völdum hjá erlendum seðla­bönkum,“ segir í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. „Þegar þarna var komið sögu voru íslensk stjórn­völd orðin mjög ein­angruð að þessu leyti á alþjóða­vett­vangi. Þau áttu því í fá hús að venda þegar kom að falli íslensku bank­anna í októ­ber 2008.“ 

Óábyrg hegðun gróf undan trausti

En er sann­gjarnt að áfell­ast Banda­ríkin og Bretland fyrir að hafa ekki gert gjald­miðla­skipta­samn­ing við Ísland? „Grund­völlur allra við­skipta er traust, sér­stak­lega í banka­rekstri og allra helst meðal seðla­banka. Og ef menn höfðu tapað trausti þá er ekk­ert skrítið að þeir hafi ekki fengið lána­fyr­ir­greiðslu,“ segir Ásgeir Brynjar. „Í raun má velta fyrir sér hvort það hefði ekki verið full­komið ábyrgð­ar­leysi af seðla­banka­stjóra í öðru landi að veita meira fé að láni inn í kerfið hér á Íslandi eftir allt sem á undan var gengið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.
Ráðgáta af hverju Ísland var óviðbúið hruni
ViðtalUppgjörið við uppgjörið

Ráðgáta af hverju Ísland var óvið­búið hruni

Svein Harald Øygard, norski hag­fræð­ing­ur­inn sem kall­aður var til í Seðla­banka Íslands til að leysa af Davíð Oddsson árið 2009, segir að allir alþjóð­legir aðilar hafi séð í hvað stefndi fyrir hrun. „Ást­ar­bréf“ Seðla­bank­ans hafi valdið mestu tapi og bank­arnir hafi verið ósjálf­bærir frá 2007. Hann lýsir deilum við starfs­menn AGS og hvernig „gjald­þrota­leið“ Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi tafið fyrir afnámi hafta. Hann gefur út bók um hrunið með við­tölum við fjölda erlendra og inn­lendra aðila.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár