Hagsmunaaðilar hamast gegn innflæðishöftum

„Í ljósi þess hve slæma reynslu við höfum af óheftu inn­flæði erlends skamm­tíma­fjár­magns þykir mér nán­ast grát­legt að ein­ungis tíu árum eftir hrun séu farnar að heyr­ast raddir sem vilja end­ur­taka leik­inn,“ segir Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans.

Hagsmunaaðilar hamast gegn innflæðishöftum
Tempra inn­streymi fjár­magns Seðla­bank­inn hefur sætt harðri gagn­rýni vegna inn­flæð­is­hafta sem kynnt voru til sög­unnar sum­arið 2016 til að sporna gegn vaxta­mun­ar­við­skiptum.

Fólk í fjár­mála­geir­anum og hags­muna­að­ilar í við­skipta­líf­inu hafa beitt sér af krafti gegn inn­flæð­is­höftum Seðla­bank­ans und­an­farna mán­uði. Þar hafa meðal ann­ars stjórn­endur GAMMA verið áber­andi, en fyr­ir­tækið fæst við rekstur verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóða sem fjár­festa meðal ann­ars í skulda­bréfum, og hefur fjár­hags­lega hags­muni af afnámi inn­flæð­is­hafta. Jafn­framt hafa tals­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráðs tekið ein­dregna afstöðu gegn höft­unum og hvatt til þess að þeim verði aflétt sem fyrst.

Að mati Seðla­bank­ans þjóna inn­flæð­is­höftin mik­il­vægu hlut­verki og hafa spornað gegn vaxta­mun­ar­við­skiptum og kerf­is­lægri áhættu í þjóð­ar­bú­skapnum en jafn­framt bætt miðlun pen­inga­stefn­unnar og komið í veg fyrir að aðhald hennar bein­ist um of í far­veg geng­is­styrk­ingar. 

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir að við núver­andi aðstæður væri óráð að afnema inn­flæð­is­höftin. Slíkt myndi á end­anum bitna á lífs­kjörum almenn­ings. 

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í fjár­málum við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, sem nýlega var kjör­inn for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands, er sama sinnis.

„Í ljósi þess hve slæma reynslu við höfum af óheftu inn­flæði erlends skamm­tíma­fjár­magns þykir mér nán­ast grát­legt að ein­ungis tíu árum eftir hrun séu farnar að heyr­ast raddir sem vilja end­ur­taka leik­inn,“ segir Gylfi í sam­tali við Stundina. „Það bendir til þess að mjög hratt fenni yfir reynsl­una frá fyrsta ára­tug ald­ar­innar.“

Inn­flæð­is­höft Seðla­bank­ans, hin sér­staka bindi­skylda, fela í sér að binda þarf 40% af nýju inn­flæði erlends gjald­eyris vegna fjár­fest­ingar í raf­rænt skráðum skulda­bréfum og víxlum útgefnum í krónum auk hávaxtainn­stæðna á vaxta­lausum reikn­ingi í Seðla­bank­anum í eitt ár. Þegar inn­flæð­is­höftin voru kynnt til sög­unnar í júní 2016 höfðu vaxta­mun­ar­við­skipti auk­ist til muna í kjöl­far kynn­ingar stjórn­valda á aðgerða­á­ætlun til los­unar fjár­magns­hafta. Með inn­flæð­is­höft­unum vildi Seðla­bank­inn snúa þeirri þróun við, tempra inn­streymi fjár erlendis frá og hafa áhrif á sam­setn­ingu þess, en jafn­framt stuðla að skil­virk­ari miðlun pen­inga­stefn­unnar. 

Hávær gagnrýni á innflæðishöftin

Ásdís Krist­jáns­dóttir, for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins og vara­maður í stjórn GAMMA, hefur birt tvær greinar und­an­farna mán­uði þar sem pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans er gagn­rýnd harð­lega vegna inn­flæð­is­haft­anna. Hún telur höftin leiða til lak­ari vaxta­kjara, tak­marka láns­fjár­að­gengi og draga úr verð­mæta­sköpun.

Eig­in­maður hennar, Agnar Tómas Möller, fram­kvæmda­stjóri sjóða hjá GAMMA, og Valdimar Ármann, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, hafa sett fram sams konar gagn­rýni. Á vef fyr­ir­tæk­is­ins er að finna þrjá pistla þar sem fundið er að inn­flæð­is­höft­unum. „Við erum lítil þjóð sem þarf á frjálsum við­skiptum að halda og opnir en ekki lok­aðir fjár­magns­mark­aðir munu stuðla að lægra raun­vaxta­stigi, auka fram­leiðslu­getu og skjóta styrk­ari stoðum undir inn­lenda verð­mæta­sköpun,“ skrif­aði Agnar Tómas síðla árs 2017. Um svipað leyti benti Valdimar Ármann á að með inn­flæð­is­höft­unum væri Seðla­bank­inn að beina fjár­fest­ingum erlendra aðila í einn fjár­mála­gern­ing umfram annan, þ.e. í hluta­bréf fremur en skulda­bréf. „Fyr­ir­tæki í leit að hlutafé geta leitað til erlendra fjár­festa en fyr­ir­tæki í leit að láns­fjár­mögnun með skulda­bréfa­út­gáfu eru tak­mörkuð við íslenska fjár­festa. Það er sér­stak­lega óheppi­legt nú þegar fjár­mála­mark­aðir reyna að ná jafn­vægi eftir hafta­aflétt­ingu og tals­verður skortur á fjár­magni ríkir á fyr­ir­tækja­skulda­bréfa­mark­aði.“ 

Nýlega hvatti Við­skipta­ráð til þess í úttekt um sam­keppn­is­hæfni Íslands að höftin yrðu losuð taf­ar­laust. Aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka tók í sama streng í við­tali sem birt­ist í Við­skipta­blað­inu nú í byrjun sept­em­ber. Þá hefur Hörður Ægisson, rit­stjóri Við­skipta­blaðs Frétta­blaðs­ins, fært sams konar rök og Valdimar Ármann gegn inn­flæð­is­höft­unum, sagt þau þurrka upp fjár­magn á fyr­ir­tækja­skulda­bréfa­mark­aði þar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir sitji í raun uppi sem einu leik­end­urnir. „Seðla­bank­inn ætti að rýmka strax um höftin þannig að gerður yrði grein­ar­munur á raun­veru­legum vaxta­mun­ar­við­skiptum og lang­tíma­fjár­fest­ingum í íslensku atvinnu­lífi. Að öðrum kosti munu fyr­ir­tæki og heim­ili enn um sinn þurfa að búa við lak­ari vaxta­kjör en ella,“ skrif­aði hann nýlega í leið­ara sem birt­ist í Frétta­blað­inu.

Þingnefnd kallaði hagsmunaaðila á fund

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, hefur tekið undir áhyggjur af áhrifum inn­flæð­is­haft­anna.

Í mars síð­ast­liðnum fund­aði þing­nefndin um inn­flæð­is­höft með fjórum aðilum sem allir hafa kallað eftir afnámi þeirra; ann­ars vegar með verk­efn­is­stjórn um fram­tíð pen­inga­stefnu Íslands, þeim Illuga Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra, Ásdísi Krist­jáns­dóttur og Ásgeiri Jónssyni, hag­fræð­ingi við HÍ, sem hefur starfað sem efna­hags­ráð­gjafi hjá GAMMA og fyrir verð­bréfa­fyr­ir­tækið Virðingu, og hins vegar með Agnari Tómasi Möller og Stein­grími Finns­syni, fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta hjá Fossa mörk­uðum, sem þá höfðu báðir kallað eftir end­ur­skoðun inn­flæð­is­haft­anna. 

Óli Björn Kárasonþing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Þann 23. mars síð­stlið­inn fór fram sér­stök umræða um inn­flæð­is­höftin á Alþingi að frum­kvæði Óla Björns. „Höftin draga úr sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs, eru skað­leg íslenskum hags­munum og er hlut­fall erlendra fjár­fest­inga á íslenskum verð­bréfa­mark­aði þar af leið­andi mjög lágt í alþjóð­legum sam­an­burði,“ sagði hann.  „Höft, hvort heldur sem það eru inn­flæð­is­höft eða útflæð­is­höft, geta aldrei verið til lengri tíma hluti af ein­hverju hag­stjórn­ar­tæki. Það er bara neyðin ein sem rétt­lætir að þeim sé beitt.“ 

Í þessu sam­hengi er rétt að benda á að fjár­magns­höft af ýmsu tagi voru algeng og álitin mik­il­vægt hag­stjórn­ar­tæki víð­ast hvar í hinum vest­ræna heimi á eft­ir­stríðs­ár­unum, enda gerði Bretton Woods-kerfið, hið alþjóð­lega stofn­ana­fyr­ir­komu­lag pen­inga- og gjald­miðla­mála sem komið var á fót eftir seinni heims­styrj­öld, ekki ráð fyrir óheftum fjár­magns­flutn­ingum. Það gerir þó EES-samn­ing­ur­inn sem Ísland er aðili að.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur ekki séð ástæðu til að bregð­ast við inn­flæð­is­höft­unum. Hins vegar hefur Alþjóða­gjald­eyris-sjóð­ur­inn hvatt Íslend­inga til að aflétta þeim og tekið þá afstöðu að almennt skuli ein­ungis nota slík höft í neyð, í skamman tíma og með hnim­ið­uðum og gagn­sæjum hætti. Í úttekt AGS um Ísland í júní 2017 er ein­dregið lagt til að bindi­skylda verði færð niður í núll, enda fáist ekki séð að aðstæður hafi raun­veru­lega kallað á beit­ingu haft­anna. Sebast­ian Edwards og Kristin Forbes, erlendir sér­fræð­ingar sem starfs­hópur Ásgeirs Jóns­sonar um end­ur­skoðun á pen­inga­stefnu Íslands kall­aði til liðs við sig við mat á íslenskri pen­inga­stefnu og beit­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­tækja, hafa tekið undir sjón­ar­mið AGS og telja rökin fyrir inn­flæð­is­höftum veik, enda hafi inn­flæði erlends fjár­magns ekki verið af þeirri stærð­argráðu fyrir til­komu haft­anna að það hefði vegið að fjár­mála­stöð­ug­leika. Slíkri hættu hefði mátt afstýra með ann­ars konar þjó­hags­var­úð­ar­tækjum.

Leið­rétt­ing: Upp­haf­lega kom fram að GAMMA feng­ist við verð­bréfa­miðlun. Hið rétta er að fyr­ir­tækið rekur verð­bréfa­sjóði og fæst við verð­bréfa­fjár­fest­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gjaldeyrishöft

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár