Katrín segir meðaltal hækkana kjararáðs í samræmi við aðra í samfélaginu

Laun æðstu stjórn­enda rík­is­ins hækk­uðu umfram laun dóm­ara sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs. Með fryst­ingu launa þeirra allra muni með­al­tal þeirra verða sam­bæri­legt almennri launa­þróun, segir for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín segir meðaltal hækkana kjararáðs í samræmi við aðra í samfélaginu

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur gefið út yfir­lýs­ingu til að svara til­kynn­ingu frá ASÍ þar sem sagt var að ummæli hennar um fryst­ingu launa þeirra sem áður heyrðu undir kjara­ráð séu „bæði röng og vill­andi“. Í Kast­ljósi RÚV í gær sagði hún að fryst­ing launa þeirra sem áður heyrðu undir kjara­ráð kæmi launum þeirra í „ákveðið sam­ræmi“ við almennt launa­fólk í árs­lok 2018.

Benti Magnús Norðdahl, lög­fræð­ingur ASÍ á að minni­hluti starfs­hóps um mál­efni kjara­ráðs sem skip­aður hafi verið í árs­byrjun lagði til lækkun launa for­seta, ráð­herra, þing­menn, ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra með það að mark­miði að stuðla að sáttum á vinnu­mark­aði. Ákvörðun stjórn­valda um fryst­ingu launa í stað „leið­rétt­ingar og lækk­unar“ þess­ara aðila muni kosta rík­is­sjóð 1,3 millj­arða króna til árs­loka 2021.

Katrín bendir á að ASÍ hafi lagt fram minni­hluta­á­lit í starfs­hópi, en meiri­hlut­inn hafi kom­ist að annarri nið­ur­stöðu í skýrsl­unni. „Alþýðu­sam­band Íslands talar um það að ég hafi farið með rangt mál í Kast­ljósi gær­kvölds­ins þegar ég benti á að með­al­tals­launa­þróun þeirra sem heyra undir kjara­ráð verði sam­bæri­leg við aðra hópa frá árinu 2013 til 2018 svo fremi sem laun þeirra breyt­ist ekki frekar á þessu ári og verði fryst út árið,“ segir Katrín. „Er það í sam­ræmi við nið­ur­stöður skýrslu sem unnin var í sam­ráði stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins og kom út í febr­úar á þessu ári en þar segir orð­rétt:

„Ef ekki verður um frek­ari end­ur­skoð­anir að ræða á árinu 2018, þ.e. laun hald­ist óbreytt frá síð­ustu úrskurðum kjara­ráðs til árs­loka 2018, yrði launa­þróun kjara­ráðs­hóps­ins að með­al­tali við þau mörk sem ramma­sam­komu­lagið setti og að framan hafa verið metin á bil­inu 43-48%. Eins og fram kemur í skýrsl­unni er launa­þróun innan hóps­ins mjög ólík. Til dæmis hafa hér­aðs­dóm­arar fengið 35% hækkun en ráð­herrar 64% hækkun á sama tíma­bili. Ef litið er til lengri tíma, t.d. starfs­tíma kjara­ráðs frá árinu 2006, blasir við önnur mynd en á því tíma­bili hafa laun þess­ara starfs­greina þró­ast með svip­uðum hætti.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár